Tuesday, 16 December 2008

Fyrsta myndin

Þetta er fyrsta myndin sem var tekin af prinsinum eftir að hann kom í heiminn. Þarna er ljósmóðirinn að skoða hann eftir átökin:) Ætli ég hafi ekki verið nálægt hjartastoppi akkurat þegar þetta var að gerast::)

Wednesday, 3 December 2008

Hringbros

Ánægðir feðgar - en takið eftir því hvað þessi til vinstri er hroðalega þreytulegur en brosir samt næstum því hringinn í kringum jörðina:)

Sunday, 30 November 2008

Fyrsta baðið

Litli prinsinn í fyrsta baðinu sínu:) - hann var nú ekki alveg sæll og glaður með það svona í fyrstu en áttar sig örugglega fjótlega:)

Monday, 24 November 2008

Sunday, 23 November 2008

Prinsinn kominn á skrá

Fyrsta skráin um tilveru Prinsins:) Fest á rúmið hans.

Einn að farast úr monti:)

Friday, 21 November 2008

"Algjör dúlla" eins og stelpurnar segja

Í dag var stór stund því það virðist vera að prinsinn hafi sætt sig við nýja heimilið því að hann ákvað að byrja að merkja sér svæði, og byrjaði á því að pissa heljar stórri sprænu á þetta fína sófasett í stofunni:)

Thursday, 20 November 2008

Raunir nýbakaðra foreldra

Jæja áfram heldur fjörið:) Seinasta nótt byrjaði skrautlega eins og sú þar áður - hann sem sagt fór að gráta um 11 og ég prófaði að skipta á honum - hann hafði sem sagt pissað í bleyjuna. Það tókst. Síðan þegar ég var kominn með hann upp í rúm aftur - þá fór hann að gráta aftur og ívið hærra. Heyrðu þá hafði hann kúkað í bleyjuna á leiðinni til baka, þegar ég var búinn að skipta um bleyjuna vegna pisserísins. Síðan fór að versna í því því að hann hætti bara ekkert að gráta eftir að ég var búinn að skipta um kúkableyjuna, og þá fór aðgerðaáætlun nr 3 af stað og mamman gaf honum brjóstamjólk. Heyrðu stráklingurinn helt afram. Þá fóru nú að renna tvær grímur á hina nýbökuðu foreldra - strákurinn búinn að grenja á háa C-inu í meira en hálftíma og örugglega búinn að vekja alla á hæðinni fyrir ofan. Þá voru góð ráð dýr - við prufðum að syngja einhverja vögguvísur og tókst það herfilega. Hann lækkaði aðeins gráttónin þegar Þórunn söng en hækkaði tóninn þegar ég söng og ég svo sem skil hann vel enda er ég gersamlega laglaus! Þá var prufað að vagga honum og velta í allar áttir en hann gaf sig ekki. Var að verða hás af öskri og við bara skyldum ekkert hvað var í gangi - "neyðarfundur" var í hinni nýju fjöldskyldu og nýjar tilgátur voru reifaðar. Nýjasta tilgátan var að hann vildi fá ábótamjólkina sem að hann fékk eftir að hann fékk brjóstamjólkina þegar hann var á sængurkvennadeildinni á spítalanum! Til að sannreyna þessa kenningu var hæstráðandi á heimilinu vakinn af værum blundi (sem sagt Ásthildur) og aðgerðaráætlun nr 7 hófst. Það var sem sagt til mjólkurduft sem þurfi blanda með sjóðandi vatni, láta kólna undir köldu kranavatni og ég veit ekki hvað. Eftir rúma klukkustund í heljargreipum Prinsins náðist loks að koma ábótamjólk á pela og hann var í bókstaflegri merkingu orðin hás af gráti. Sem betur fer þá tókst þessi aðgerðaáætlun og strákurinn var hinn sælasti og ég held að hann hafi drukkið tvöfaldan skammt. Eftir þetta þá voru bara allir búnir á því og hann svaf stanslaust í eina 4-5 klst samfelt - sem er nýtt met. Og vaknaði síðan ekki fyrr en um 9.30 um morgunin sæll og ánægður og skildi ekkert í þessum foreldrum og afhverju þeir skildu hann ekki kvöldið áður eins og það hefði fylgt með leiðbeiningarbæklingur.

Hann hefur síðan verið sæll og ánægður í allan dag og dundað sér við að reyna að læra að brosa. Hann er meira að segja farinn að halda haus núna aðeins 5 daga gamall - sem er mjög snemmt eins og mer skilst.

Þórunni líður aftur á móti verr en áður - og getur varla labbað núna greyið. Einhver fleiri eftirköst að ágerast. Ætlum að fara til læknis á morgun með hana.

Wednesday, 19 November 2008

Upp með hendur segir Prinsinn

Þá er prinsinn kominn heim til sín í fyrsta skiptið:) Ég svaf á spítalanum í nótt því að Þórunn var orðin svo þreytt eftir andvökunóttina þar á undan. Þetta hófst með látum því að hann vaknaði eftir aðeins 1 klst og heimtaði allan pakkann, mjólk úr brjóst, mjólk sem ábót úr pela, skipta um bleyju og endalaust knús aður en hann samþykkti að fara að sofa aftur:) - og mér var hætt að lítast á blikuna og bjóst við að vera vakinn með 1 klst fresti allan nóttina og næstu vikur! - en svo svaf hann barasta í 3 klst og þá var skipt um allt í snatri og hann svo svaf til 7.15 - þannig ég get nú ekki sagt að þetta hafi verið eins rosalegt eins og upphafið gaf í skyn:) Síðan fórum við heim um hádegi eftir að læknar voru búnir að skoða, pota, stinga fram og til baka. Hann kunni strax vel við sig hér og hefur verið gersamlega sallarólegur síðan hann kom. Hefur varla grátið nema rétt þegar hann var orðinn svangur. Hann sá sjálfan sig í spegli og fannst það voðalega skrýtið - allaveg kom stór undrunarsvipur á hann he he. Þórunn er enn voðalega slöpp, því að hun missti svo mikið blóð - um 1.5 lítra - og neitar að fá blóðgjöf frá læknum. Svo sem skil það - þannig að hún er enn bara að jafna sig og sefur mikið. Hún reynir að borða mikið járn því að það á að flýta fyrir blóðframleiðslu.

Monday, 17 November 2008

Prinsinn að braggast:)

Prinsinn er allur að braggast og byrjaður að fá sér að drekka móðurmjólkina af meiri lyst. Hann var víst eitthvað dregur til þess fyrst enda fékk hann þessa "gulu" sem svo margir nýburar fá. Gulan kemur víst vegna þess að notkun rauðu blóðkornana er á einhvern annan hátt í kviður móður og svo ræður óþroskuð lifrin ekki við breytingarnar fyrstu dagana. En núna er þetta líklega allt yfirstaðið og þá fær hann meiri lyst. Hann var strax byrjaður að heilla allt kvennfólkið þarna á ganginum og allir að knúsa og pota í hann:) Hann kærði sig kollóttan um þetta allt og hélt þvílíku jafnaðargeði allan daginn að það hálfa væri nóg. Grét ekki nema algjör nauðsyn væri - svona rett til að minna foreldrana á að hann þarf að borða vegna þess að hann er ekki alveg tilbúinn að halda á hnífi og gafli á degi 2 !

Thursday, 25 September 2008

Pakka, pakka, pakka

Jæja þa er maður kominn á fullt að pakka. Flutningabíllinn kemur á mánudaginn og svo sef eg í tómri íbúinni um nóttina og tek flug daginn eftir. En þetta er nú meiri vinnan að pakka þessu öllu. Setji í plast, kaupa kassa, limband, skra, og eg veit ekki hvað phufffff.

Saturday, 20 September 2008

Kominn til London aftur


Jæja þá er maður kominn aftur til London og aðeins búinn að jafna sig eftir þessa seinustu viku. Vikan var mikil törn fra a til z. Vorum a stanslausum kynningum, fundum með verkfræðingum, þróunarstjórum og eg veit ekki hvað. Helsta vandamalið fyrir mig var að flestir þarna voru búnir að vera að vinna með þetta hugbúnaðarkerfi í mörg ár og voru því með talvert forskot fram yfir mig - bara buin að studera það í nokkrar vikur. Þannig sat mar oft a fundum og gerði lítið annað en að klóra sér í hausnum - en á hinn bóginn þá er þessi aðferð best að mínu mati. Henda manni bara út í "djúpu laugina", ósyntan og láta mann bara synda einhvernveginn með öllum tiltækum ráðum. Við komum svo gersamlega útkeyrð á hótelherbergið á kvöldin og áttum þá eftir að undirbúa okkur fyrir morgundaginn. Sá ekki mikið af borginni sjálfri, en rak augun í einhverjar viðfræg kennileiti eins og þessi stóri turn þarna - náði ekki einu sinni að mynda turninn því að þegar Hrönn ætlaði að fara að mynda mig með hann í bakgrunni, þá akkúrat varð árekstur á gatnamótunum og athyglin fór á það moment. Við reyndum vorum á helstu breiðgötu Parísar í hótelinu, eitthvað gersamlega óskiljanlegt nafn, eins og annað í frönskunni, og þar var allt að gerast. Fyrir utan hótelið komu Robert De Niro og Pacino (sjá mynd fyrir ofan) - stórleikararnir að kynna einhverja mynd sem var verið að frumsýna þarna á Lido (frægt eitthvað lika) - og svo var Sigurboginn þarna í götunni, einhverja 200 m í burtu. Kannaðist við hann. En mikið fjári var allt dýrt þarna - það var náttúrlega engin hemja bara, en reyndar er það helst vegna þess að gengið hefur hrunið á ísl kr. Sem betur fer borgaði fyrirtækið í París allar ferðirnar sem við vorum að borða á einhverjum fínum veitingahúsum með þeim - annar væri ég kominn í gúanóið:) Hin myndin er einmitt af einum svona fundi, og þarna má sjá Hrönn til hægri og Romain aðalgæjinn sem við vorum í bandi við þarna í París - en hann er hátt settur viðskiptastjóri hjá þeim. Frakkarnir sem við hittum voru auðvitað mjög mismunandi - en allra verst fannst mer hvað þeir töluðu litla ensku margir hverjir - þannig mar var að reyna að skilja þa allan tíman oft. En það er víst bara standard þarna í frakklandi - finnst það reyndar ekki ganga þegar verið er að tala um fyrirtæki sem vill vera í rekstri á alþjóðavísu, en svona er þetta bara. Nuna er eg all fróðari og er búinn að t.d. skila af mer fyrsta verkefinu, en það er svona ákveðin tegund af sveitarfélagagátt fyrir Hafnarfjörð. Þar erum við að setja upp verkferla, viðurkennt verklag, tengjum síðan inn í það skipurit og ábyrgðir, reglur og lög og svo framvegis. Allt verður þetta síðan aðgengilegt fyrir almenning í lokinn. Síðan er Hrönn að vinna fyrir Reykjavíkurborg, erum að fara að gera tilboð í gæðastjórnunarkerfi fyrir Kópavog og Landsspítalann og fl. Þannig þetta er allt a mismunandi stigum og mjög mismunandi hvað stór þessi verkefni geta orðið. En það kemur betur í ljós allt þegar eg kem heim - þa fer eg að skoða þetta betur allt.

Thursday, 11 September 2008

Fimmtudagskveld - 18 dagar i heimkomu

Það fór eins og eg hafði ahyggjur af - tölvan dó og ég þurfti að fara með hana á verkstæði í morgun. Eg slapp reyndar ótrulega vel, því að þeir bættu bara í hana minni og það kostaði ekki nema einhvern 5 þus kr. Eg var farinn að sja fyrir mer að eg þyrfti að kaupa nyja tölvu og eg veit ekki hvað. Siðan í dag gerðist það að Hrönn sendi fyrsta reikningin fyrir mina hönd til Hafnarfjarðarbæjar og Reykjavíkuborgar - og ætti þeir að vera bunir að borga eftir 10 daga giskaði hun:) Ekki háir reikningar en þo nalægt 200þus - gott start, serstaklega þegar eg er bara að læra a þetta kerfi enn og ansi langt fra að vera buinn að læra a það allt. Með því flóknara sem eg hef tekið mer fyrir hendur - forritun og eg veit ekki hvað. En í raun áskorun. Siðan fer eg nuna a laugardaginn til Paris og það verður örugglega strembin vika því þetta verða margir fundir - og endalausir verkfræðingar sem við munum hitta sem eru að reyna að kenna okkur a þetta allt. Fengum email fra Kopavogsbæ í dag og við erum 1 af 3 teymunum sem þeir biðja um að gera tilboð í að vinnan nýtt gæðakerfi fyrir sig. Hrönn var natturlega mjög stolt af þessu því að hinir aðilarnir eru Capacent og Deloitte - bæði stórfyrirtæki með hundurði manna í vinnu. Og svo komum við tvö he he. Þannig þurfum að skila inn tilboði fyrir 30 sept.

Monday, 8 September 2008

Tungnamaður í London 8 sept 2008


Þarna er mynd af tölvunni minni í dag. Þetta so og svo hlýðna vinnudýr er búið að vera svo gersamlega ofnotað seinustu viku að ég þorði ekki annað en að opna vélarhlífina í dag og gefa henni meira möguleika á að kæla sig, því að það var næstum því farið að rjúka úr henni. Síðan á fimmtudag er hún buin að vera á útopnu að niðurhala 2 GB foriti á nóttunni þegar eg hef verið að sofa, sem reyndir náttúrlega óeðlilega mikið á viftuna í tækninu, því að hun kemst ekki í "svefn-mode" þegar hun a að vera á því stigi, svo á daginn hef ég þjöstnast eins og herforingi á henni, því að hun hefur ekki verið að haga ser eins og skyldi - það er að segja hún er orðin of lítil fyrir þau verkefni sem eg er að reyna að gera á hana - það er að segja var að klippa myndband á henni og þá var grafíkkortið orðið of lítið (svipað og dýnamórinn í bíl), harða drifið (svipað og gírkassi í bíl) og öll drifin of hægvirk (svipað og drifskaftið) - þannig að það þurfi að skipta um allt dótið í dag til að hún gæti sinnt sínu hlutverki (komast yfir Ingólfsfjall í fjórða gír og án tilhlaups). Síðan í miðjum klíðum þá hringdi liðið frá Frakklandi og þar var verkfræðingur að reyna að hjálpa mér við að leysa einhver forritunarvandamál vegna verkefnisins í Hafnarfirði. Hún er Ameríkani, sem býr í Frakklandi og er mikil aðdáandi Íslands - sagði hún mér. Hún var mjög fagmannlega - tók smá spjall í byrjun eins og gengur og gerist og svo réðst hún á hlutina með miklum látum - aumingja stelpan gerði sér enga grein fyrir að ég er eingöngu búinn að vera að læra að forrita í 3 vikur og hjólað á mig eins og ég hefði verið búinn að vera að læra foritun í 3 ár, en ég held reyndar að ég hafi skilið hana að mestu og er núna að vinna að þeim tillögum sem hún kom með. Verkefnið er að bua til sveitarfélagagátt fyrir Hafnarfjörð þar sem hægt er að sjá á gagnvirkan hátt hvernig öll skipulagsheildin hjá þeim virkar - þar með talið er skipurit og hverjir sjá um hvað og hvaða ábyrðir þeir hafa, og svo er hægt að klikka a þennan og hinn og þa tengist það þeim viðskiptaferlum sem þeir bera ábyrgð þa og þa er hægt að skoða þá ferla (t.d. umsókn um að fá lóð í Hafnarfirði þá fer ákveðið ferli af stað) og þetta er allt sett fram á skilmerkilegan hátt á internetinu með boxum og örvum. Eg byst við að vinna til allavega 2 í nótt við að klara þetta því að Hrönn vil fara að koma þessu á innranetið til þeirra - allavega áður en við förum á viku námskeið til Frakkanna í París nuna a laugardaginn. Við munum gista a þessu hóteli sem þið sjaið a myndinni fyrir ofan. Síðan til að toppa þetta allt - þá fekk ég símtal frá Cody sem er ég búinn að vera að tala við vegna Redspray hugbúnaðarins undanfarið og við þurfum að kynna allt dæmið fjótlega fyrir Imagine í Írlandi sem er 2 stærsta farsímafélag Írlands. Svo til að trompa þennan dag endanlega þá eru Indverjarnir eitthvað að kvart vegna þess að þeir hafa ekki fengið borða ansi lengi. Svona er líf Tungnamanns í London á 21stu öldinni í hnotskurn

Saturday, 6 September 2008

Grimsnesingar

Er á leið til Ingu ur Grimsnesinu í kvöld. Hun er buin að bua til þessa fínu eplaköku og það er erfitt að neita því þegar manni er boðið, enda buinn að vera að vinna eins og vitlaus seinustu daga og gott að komast aðeins ut. Er siðan að hlusta a Noreg og Ísland á Ras 2 nuna og það er halfleikur og 1-1 - það er nu ekki slæm staða. Vonandi na þeir að halda þessu ut allan leikin.

Thursday, 28 August 2008

1 okt - bæ bæ London - í bili allavega

Þá er það ákveðið - við höfum sagt upp íbúðinni í London og förum alfarið úr henni 1 okt og þá er ég á leið heim á frónið - og held mig þar þangað til eitthvað annað verður ákveðið.

Tuesday, 26 August 2008

Vídeo í fæðingu

Video er í vinnslu sem mun utskyra hvað konceptið er um. Það er þvílík studio uppsetning í litla "bílskurnum" mínum herna í London. Videokameran hennar Þórunner er límt upp með gafferlímbandi og búið að færa borðið nær glugganum þannig hægt sé að nota dagsbirtuna sem HMW kastara - eins og það heitir a Hollívúddískunni. Gallin er að dagsbirtan sem gefst getur breyst a milli taka ef ský dregur fyrir - þannig þá verður maður að reyna að stilla ljósopið sjálfur, en það getur verið erfitt að finna ut hvað er rett birtustig þegar maður hefur síðan ekki ljósmæli. Þannig þetta er töluvert púsl - en vonandi tekst þetta. Síðan tekst vonandi að fá vin hennar Maríu nágranna, sem er atvinnuleikar að mennt, til að lesa inn enska textan:) he he Allar teikningar eru síðan teiknaðar af mér - sem er nú nátturlega bara næstum því fyndið að láta sér detta í hug. Eg sem get ekki einu sinni skrifað nafnið mitt almennilega - það er allavega álit bæði föður míns og Bjarka:) - og ég skil þá vel:) En sjáum í lok vikunnar hvernig þetta hefur gengið eða byrjun næstu.

Sunday, 24 August 2008

Sunnudagsvinna

Lítið að frétta frá London í dag. Það er ein af þessum verslunarmannahelgum og þá eru allir rólegir. Svo fer nú allt að færast í eðlilegt horf aftur og sumarleyfin að verða búin hjá flestum. Þá er hægt að fara að vinna með eðlilegum hætti aftur. Er búinn að vera að vinna með lögfræðingnum í dag að búa til deal memo - já aumingja löffinn hann fær engan frið frá mér og ekki heldur á sunnudögum. Held reyndar að hann hafi lúmskt gaman af þessu - honum langar að frumkvöðlast en kemst ekki frá því sem hann er fastur í. Þess vegna er hann að vinna a sunnudögum og svona við að hjálpa mér - sem er hið besta mál:)

Thursday, 21 August 2008

Prins að bætast við framvarðarsveitina:)



Þórunn og Ásthildur fóru að hitta Prinsinn í dag - hann lét sér nú fátt um finnast og saug bara puttan víst. Reyndi reyndar að senda þeim koss með því að setja stút á munninn - en var víst frekar erfitt þarna í innilauginni:) Þær sögðu að hann hefði verið í svona "rækjustöðu" - eiginlegra svefnstöðu - og hefði ekkert verið að sparka núna. Annars er hann víst stöðugt að skemmta mömmunni með spörkum "lon og don". Ljósmóðirin sagði að algent væri svona ca 10x spörk a 2 klst - en Prinsinn er víst að sparka oft 10x spörk á 20 sec. Gríðar efni her a ferð greinilega:)

Wednesday, 20 August 2008

Framvarðsveitin

Fann þessa ágætu mynd í símanum mínum - skemmtilegar þessar myndir þegar engin er undirbúin fyrir myndatöku:) Þá nást bestu mómentin:)

Tuesday, 19 August 2008

Tækifærið notað


Myndir af íbúðinni eins og hún er akkúrat núna - sem sagt nýji eigandinn að blokkinni að koma a eftir til að taka íbúðina út og þa líklega best að taka smá til:) Þannig fínt að ná mynd af stöðunni eins og hún er núna - svo verður þetta örugglega ekki svona á morgun:) Takið sérstaklega eftir hversu vel er ryksugað - fékk massa 1600 W ryksugu lánaða hjá Maríu nágranna og gólfteppið mátti passa sig að sogast ekki inn líka:)

Sunday, 3 August 2008

Rigning

Rigning og þungbúið í London í dag - en samt voðalegt heitt. Þannig að maður gat labbað í stuttermabol í rigningunni sem er hálf skrytið:) Er að vinna vídeó þessa dagana og reyna að koma þessum blessuð fjárfestingarhópum eitthvað áleiðis í að greina tækifærið. Í dag átti að vera símafundur milli lögfræðingsins okkar og fjarfestisins sem er í sumarfríi! í Frakklandi - en af einhverjum astæðum náðu þeir ekki saman.

Friday, 1 August 2008

Island

Kem til Íslands 6 agust og verð til 16 ágúst. Búið að selja mig í einn dag í stjórnunarráðgjöf til Hafnarfjarðarbæjar! Þetta verður eldskírn í meira lagi. Veit í dag ekkert hvað málið snýst um - en eftir að hafa verið að reyna að koma þessu af stað her i London í 2 ár, þá held eg að mér eigi eftir að finnast allt annað auðvelt miðað við það (eða næstum því).

Saturday, 26 July 2008

London

Kominn til London - og strax byrjaður að vinna a fullu

Sunday, 13 July 2008

Krosslegg fingur í tvo hringi

Þetta er búin að vera mjög erfið vika - en ég er að vona að hún hafi skilað af sér núna þrem aðilum sem eru að skoða málið á alvarlegu nótunum. Kemur betur í ljós í næstu viku hvort um raunverulegan áhuga er að ræða. Annars voða lítið annað að frétta heðan - lífið snýst bara um þetta og ekkert annað. Erfitt að komast ekkert heima, en nú hafa þessi mál að finna fjárfesta bara algjöran forgang.

Friday, 11 July 2008

Kókdós og fl

Alltaf farið að lengjast a milli blogga hja mer. Veit ekki afhverju en líklega skýrist það af álagi á öðrum vígstöðum. Málin eru í ákveðnum farvegi hérna og rosalega erfitt að segja hvernig og hvert þau eiga eftir að fara. Er samt með líklega tvo aðila sem eru að skoða þetta af alvöru hja mer - en ekki bara einn eins og í gær. Það er jákvætt en rosalega erfitt að segja hvernig málin eiga eftir að þróast - þessi kreppa er að gera allt svo margfalt margfalt erfiðara. Það halda allir að sér höndunum. Hitti annars Ingu Hjartardóttir frá Borg í Grímsnesi áðan og var bara gaman að spjalla við hana. Hún er komin með nýja vinnu í fjármáladeildinni hja einhverju markaðsrannsóknarfyrirtæki og kann því vel. Stefnir svo á að mennta sig meira og taka MBA einn daginn. Gott hja henni. Hún hefur aftur á móti misst tenglsin við Íslands meira og meira - en heldur þó sambandi við foreldra sína sem reka víst hótelið þarna hja golfvellinum í Borgarnesi - þarna sem stóra stóra kókdósin er á túninu:)

Tuesday, 8 July 2008

Vinna, vinna

Fundir ganga svona upp og ofan. Hitti fjarfesti í dag og hann ætlar að skoða þetta betur. Er siðan að hitta aðila a morgun sem ætlar að hjalpa mer að finna rettu fjarfestana - hann hefur lista af 750 aðilum. Þannig allavega þekki hann mann og annann. Hitti siðan lögfr í kvöld og við forum yfir stöðuna. Gott að hafa hann með í spilum til að fara yfir allt. Talaði síðan við aðila í Dubai sem eru að reyna að afla fjar þar og þeir eru að fara að hitta fjarfesta a fimmtudag. Þannig allt a fullu í vinnu. Ashwin siðan kominn til baka úr sumarfríi þannig þeir eru byrjaðir að vinna a fullu aftur.

Saturday, 5 July 2008

Allt a fullu um helgina

Búinn að sitja síðan 9 í morgun við að bua til viðskiptatengslahlutan. Ætla barasta að ná að klára það yfir helgina - svo það se bara búið. Þýðir ekki að eyða of miklum tíma í það. Frekar bara rispa þessu af. Þetta verður vefhluti og einnig set eg allt upp a ppt þannig hægt se að syna það a fundum og svona. Þannig lítið um blogg nuna.

Friday, 4 July 2008

Ágætur dagur:)


Goður dagur í dag. Hitti þrjá aðila og allir fundirnir gengu vel. Var buinn að bua til nyja kynningu (myndin fyrir ofan er fyrsti slædinn) og það gæti hafa haft ahrif. Allavega voru allir mjög spenntir og vilja hjalpa til og koma þessu afram. Einn frekar innvígður aðili í verslunarrekstri her í London hefur serstakan ahuga a social retail pælingunni hja okkur, annar sem er að stjorna samningaviðræðum vodafone uk við nokia og hann vill hjalpa til og svo þriðji sem vill finna fjarmagn fyrir mig og jafnvel koma inn í framkvæmdateymið ef fjarmagn næst inn. Þetta eru allt mjög mikilvæg skref - því að finna fjarmagn a þessu stigi snýst um fólk og ekkert annað. Þannig ef það eru fleiri sem vilja tengja sig við þetta þeim mun betra er það fyrir mig. Svo nuna um helgina ætla ég að vinna að uppsetningu að business networking solution - sem snýr að myndun tengsla í atvinnulífinu - og vera tilbúinn með það eftir helgina bæði a slæds og vef, svo eg geti kynnt það fyrir öllum í byrjun næstu viku. Bara til að yta undir að allir taki ákvörðun. Vona að nú fari hlutirnir að komast a hreyfingu á næstu vikum.

Wednesday, 2 July 2008

Venjulegur dagur

Voðalega lítið sem gerðist í dag - nema að ég er að undirbua að fara að hitta Confetti stofnandan a morgun og bíð eftir að heyra fra bresku fjarfestunum sem fengu skyrsluna sem eg skilaði a manudaginn. Buið að vera frekar þungbuið veður í dag og engin sól - vona að þetta batni a morgun:)

Tuesday, 1 July 2008

Birmingham

Fór til Birmingham í gær og tók þessa mynd af einu húsinu þarna í miðborginni - þetta er víst eitt stórt verslunarhús og nær margar hæðir niður í jörðina líka. En sem sagt fór að hitta fjárfesti þarna rétt hjá Birmingham í gær og kom svo við hjá Friðrik Larsen (fra Selfossi) sem er þarna í doktorsnámi. Hann var hinn hressasti þó að hann væri nú víst að tapa einhverjum svaðalegum upphæðum a hlutabrefamarkaðnum seinstu 6 manuðina. Talaði mikið um það. En ferðin tókst bara ágætlega og eg kom heim um hádegi í dag aftur og fór þá strax aftur á fund. Hef siðan verið að sinna því að svara tölvupósti.

Sunday, 29 June 2008

Tæknivæðist:)

Fór í dag út í verslun og keypti mer hvíta töflu til að skrifa og teikna á - svo mikið betra að skipuleggja og hanna allt þannig fyrir mig. Þa getur maður sett upp sviðsmyndir, tekið af þeim ljósmyndir, prentað þær út og haft þær þá til hliðsjónar þegar aðrar eru hannaðar t.d. ef það þarf að hanna vefsiðu sem er mjög flókin. Kemur sér afskaplega vel.

Wednesday, 25 June 2008

Tuesday, 24 June 2008

Fyrstu samskiptin:)

Og prinsinn stækkar og stækkar:) Eg hafði samskipti við hann um helgina í fyrsta skiptið:) það er að segja bankaði í magann og hann svaraði með litlu sparki til baka. Bara sætt:)

Monday, 23 June 2008

Skattur og kínverjar

jæja kominn til London og allt í góðum málum hér. Það er að segja allt eins og það var - voðalega litlar breytingar her, nema þá að buið er að skipta um gólfteppið í lyftunni!!!!! Ja það er búið að skipta um gólfteppið í lyftunni - og engu öðru. Ótrúlegt því hverjum myndi detta það í hug að skipta um þetta og ekkert annað - nema þá bretum - sem eru jú frægir fyrir að hafa gólfteppi allstaðar. T.d. eru þeir einstaklega frægir fyrir að hafa gólfteppi inn á baðherbergjum. Sem er frægt umtölunarefni meðal íslenskra kvenna. Ekkert annað var gert - annað en að skipta um þennan 1x1m golfteppa bút - ekki var lagað neitt annað he he. Gaman að þessum bretum og mætti örugglega skrifa heila skáldsögu bara um gólfteppa áráttu breta.

Annars er það helsta að frétta að kínverjarnir ætla að vera lengur að þessu en ég bjóst við og var ég byrjaður að stressast yfir því í dag - það er að segja ef þeir eru lengur en eg bjost við, þá get eg ekki borgað Ashwin laun um næstu manðarmot og svona - en það er eins og það se einhver verndarenglill yfir þessu ævintýri, því að það var ekki liðinn nema 45 mín í stressinu þegar ég fekk tölvupóst fra endurskoðandanum þar sem hann tjáði mer að við hefðum fengið ágætis summu endurborgaða fra skattinum og hann sem sagt væri að senda mér ávisun með því. he he ekki gat sú endurborgun komið á betri tíma:) algjörlega massa mikilvæg núna á kreppu tímum og það sem betra er - þa er þetta sem sagt endurborgun fyrir einungis 2 mánuði á árinu 2006-2007 og við eigum því að geta fengið allt árið 2007-2008 (skattárið er buið í april her) lika endurborgað:) sem er bara brilli. Þetta er í fyrsta skiptið sem eg fæ eitthvað fa ríkinu endurborgað í þessu frumkvöðladæmi öllu - venjulega reyna þeir allt til að draga úr frumkvöðlum (sem er náttúrlega rugl þegar það er skoðað ítarlegar) - þannig þetta er frekar gott mál og að það skildi gerast her í UK eftir að vera að frumkvöðlast í 15 ár - en er náttúrlega næstum því fyndið:)

Wednesday, 11 June 2008

Seinir

Þessir fjárfestarr eru að gera mig meira gráhærðan - eru svo seinir að svara og taka ákvarðanir að það hálfa væri nóg. Vonast þó til að þetta verið betur komið í ljós þegar ég kem heim a föstudaginn. En mar veit svo sem aldrei.

Tuesday, 10 June 2008

Gazprom

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/06/10/oliuverd_i_250_dali/

Eg nu bara verð að segja það sem mér finnst um þessa frétt - þó að hún hljómi nú voða saklaus því bara verið að geta í framtíðini. En þegar það kemur að því nú verandi forstjóri Gazprom kemur með svona yfirlýsingu, þá er það ekki bara eitthvað grín. Því flestir sem til þekkja vita að núverandi yfirmaður Rússlands, DMITRY MEDVEDEV, er einmitt fyrrverandi yfirmaður Gazprom. Það er því í raun vitfirra að taka ekki mark á þessari yfirlýsingu forstjóra Gazprom. Það þýðir náttúrlega að þetta er og verður staðreynd innan farra ara - og það þarf ekki mikla reiknimeistara til að sja hvaða ahrif þetta hefur þjoðarbuskapinn. Byrjum bara að reikna áhrif a utgerðina/einyrkja allskonar, og svo hvernig það leiðir út í þjoðfelagið. Ég prísa mig allavega alsælan að hafa ekki sokkið ofan í lánafen bankanna á seinustu árum eins og flestir sem ég þekki hafa gert. Margir sem eg þekki og höfðu unnið í mörg ár við að safna fyrir kannski 3-5 milljón króna útborgun í íbúð (þetta tekur kannski 5-10 ár miðað við meðalsparnað launþega) - sitja núna snauðir og velta fyrir sér að allt þetta er farið og mjög líklega eru þeir kominir í 3-5 milljónir í mínus. Jú afhverju? - vegna þess að bankarnir geta auðvellega velt öllum sínum vandamálum út í þjoðfelagið þegar þeim gengur illa og hafa tekið of "gíraða áhættu" í stórum stíl. EKKI GETA ÖNNUR ÞEKKINGARFYRIRTÆKI ÞAÐ OG EKKI ERU ÞAU MINNA MIKILVÆG FYRIR ÞJÓÐARBÚSKAPINN. Frabært ekki satt. Athugið að þetta gerist flest allt vegna þekkingarleysis almennings og ekkert annað. Auðvitað viðurkenna ekki aðilar þetta - en þetta er samt að gerast akkurt nuna. Og það í stórum mæli.
Þegar það er síðan skoðað hvað hann (Gazprom forstjorinn) í raun sagði þá er það nálægt því vitfirring fyrir þann atvinnubúskap sem að skóp mest af atvinnu 20stu aldar - það er að segja iðnbyltinguna . Þetta hefur síðan þau áhrif að ýta undir það sem ég hef alltaf haldið fram frá byrjun þessarar aldar (og ég tók mínar ákvarðanir út fra) að það skyldi tekið mjög alvarlega að næsta bylting er í raun byrjuð (fólk áttar sig venjulega ekki á þessu fyrr en það kemur fram í sögunni - eða skólabókum - en þá er það of seint) - þó að það sé mjög erfitt að greina áhrifin. Þa er eg að tala um þekkingaröldina. Þekkingaröldin finnur ekki mikið fyrir áhrifum á hækkandi bensíni - ekki nema hlutafallslega mjög lítið - það er að segja að komast í vinnu og svona - sem skiptir engu. En ekki kannski 1/3 af kostnaði eins og til dæmis togaraútgerð. Þetta er gott dæmi um þær breyingar sem eru að gerast og fjölmiðlafólk gerir einfaldlega ekki góð skil (enda ekki hagfræðingar) og kemur heldur ekki fram í greiningardeildum banka - því að þeir horfa ekki svona langt fram á veginn. Í grunninn er um að ræða grundvallar breytingar í þjóðfelaginu og þeir sem atta sig ekki á þessum breytingum eiga eftir að finna fyrir tevatninu - ekki í þeim skilningi að þeir eigi eftir að hafa það neitt verr - það er jú bara spurning um viðhorf til lífsins - heldur snýst það um að þeir eiga hreinilega ekki eiga eftir að hafa eins góða möguleika á að finna saltið góða. Hlustið á fólkið í heitu pottunum í sundlaug Selfoss og þá kemur fullt af greinargóðum upplýsingum fram. Þá er maður náttúrlega bara að tala um meðaltalstölur. Gott dæmi um þessar breytingar er þekkingariðnaðurinn sem fjármálaheimurinn vinnur í - þar eru fáranleg forstjóralaun og allt það en þegar það er skoðað þa eru þessir aðilar bara í ólgusjó alþjóðavæðingar þar sem eftirspurn og framboð akvarðar þeirra laun, en ekki bara innanlandamarkaður. Þar af leiðandi er það eðlilegt - síðan miðar náttúrlega allir á Íslandi, þar með taldir fjölmiðlar, allt svona við innanlandamarkað bara og þá er þetta náttúrlega rugl. Sorglegt hvað sumir halda fram í þessum málum og sýnir í raun bara hvað sjóndeildarhringurinn er þröngur hjá viðkomandi. Það er allavega mín skoðun:) Verður gaman að fylgjast með þessu næstu árin því að þá kemur í ljós hvort að þessir útrásarherrar voru mýs! Ég spái því að næstu 5-10 árin eigi eftir að vera frekar erfið á íslandi vegna þess að þær grundvallarbreyingar sem voru nauðsynlegar á árunum 2000-2005 voru ekki gerðar (núna fyrst er verið að krófla í bakkann(til dæmis stofnun Frumtaks, 4 milljarða framtakssjóður, en alltof alltof seint) Það er að segja að breytinga a innviðum þjoðfelagsins þannig að nýsköpun væri mikilvægari í þjóðfelaginu - það gerðust ákveðnar breyingar í þá átt í fjármálageiranum, í sambandi við nýsköpun á viðskiptalíkönu, en það er harla ólíklegt að það hafi skapað samkeppnisforskot þegar skoðað í samhengi við erlenda aðila. Ekki nóg að gíra sig upp bara, sem allir geta gert og kaupa og kaupa en ekki sjá fyrir sér hvernig útgönguleiðin sem skapar afrakstur er. Á hinn bóginn þá hefur skapast gríðar sterk reynsla en næstu árin eiga eftir að sýna hvort að sú reynsla ávaxtast á einhvern hátt. Þannig ég hef ekki séð enn hvar þessi hluti hefur verið að gerast í þjoðfelaginu og þa er það eingöngu merki um afurför ef samkeppnisforskot skapast ekki neinstaðar - fá dæmi eru um goð samksppenisforskot t.d. CCP hefur sýnt góð merki um framþróun. Er það ekki ótrúlegt að á Íslandi hefur ekki orðið meiri framþróun á seinstu 10 árum - ég hef af þessu áhyggjur svo ekki sé meira sagt.

Monday, 9 June 2008

Holand og Italia

Fór með Ása sem er lögfræðingur hjá Exista að horfa a leik Holands og Ítalíu í Evrópukeppninni í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn var ótrúleg skemmtun. Þvílíkur munur að England se ekki með í keppninni í ár - því þá eru allir staðirnir tómir sem sýna leikina og því ekkert mál að fá sæti.

Heyrði frá kinversku fjarfestunum í dag og þeir segjast ætla að gefa svar a morgun. Eg mun því sofa með krosslagði fingur í alla nótt. Ég verð nú reyndar að viðurkenna að þetta er smá klikkun að vera að reyna að selja hlutafé í fyrirtækinu og verðmeta allt fyrirtækið á einar 276 milljónir ísl.kr. Og það án þess að varan sé komin á markað og ekki búin að sanna sig að neinu leiti. Í raun gersamlega ótrúlegt ef það tekst og í raun svipað og að ná að selja sand í Sahara. Það er meira að segja hærra verðmat en Storm var selt inn í Sagafilm á og það var þó fyrirtæki sem var búið að vera í rekstri í 12 ár, með 25 manns í vinnu og svo framvegis. Ef það tekst ekki þá er bara að halda áfram og koma þessu á markað í sumar - erum allavega komnir með samstarfsaðila í það. Þannig ég ætla ekki að gráta gvend þó að það takist ekki - þá er bara að spýta í lófan og setja meiri kraft í allt. En ætli maður myndi ekki þurfa að hætta í venjulegu kaffi og fá sér rótsterkt expresso.

Sunday, 8 June 2008

Ungmennafélag Hvatar

Þessi leikur við Makadóníumenn er líklega lelegri en þegar Ungmennafelag Biskupstungna tók á móti Ungmennafélagi Hvatar úr Grímsnesi árið 1987. Þar var reyndar spilaður fótbolti, en það skiptir ekki máli, því að íslenska liðið spilaði ekki handbolta í dag!!!!!! Hvernig er það yfirhöfuð hægt að klúðra einum 20 dauðafærum í einum leik! Ótrúlegir eru þeir - og ef einhverntíman hefur verið talað um að fara Fjallabaksleið til að komast eitthvað afram þa er það það sem þeir gera hreinlega alltaf. Verðum þa bara að vonast eftir kraftaverki í Laugardalshöllinni 15 juni.

Dekur og tiltektar dagur


Í dag er dekur og tiltekt - loksins. Byrjaði á að fara í gymið og svo á sushi staðinn minn góða. Þar prufaði ég alveg nýjan rétt og ég veit að þið trúið þessu ekki - en á matseðlinum þa pantaði ég Waygian Beef - það er að segja eitthvað sérstakt naut og þeir segja að því sé gefið bjór og saki (hrísgrjónavín) á hverjum degi og svo fær það nudd á hverjum degi. Retturinn var nattulega mega dýr - en það smakkaðist ekkert smá vel, er núna orðinn uppáhaldaretturinn minn:) fyrir utan miso supuna:)Siðan for eg sma ut í garð í letikast og sleikti sólina. Nuna er eg kominn heim og ætla að taka til enda ekki vanþörf á. Myndin er af bjórnautinu. Þannig nú er til bjórnaut og rækjuköttur he he

Saturday, 7 June 2008

Munnur / nef

Ég held að það sé alveg ljóst að þessi Hanna Birna er með munnin fyrir neðan nefið - eða var það ekki í þeirra röð sem þetta á að vera!

Friday, 6 June 2008

Föstudagur kominn:) og helgi framundan

Þessi vika er buinn að vera frekar klikkuð. Það helsta sem hefur gerst er að við erum komnir með samstarfsaðila her í London sem ætlar að hjalpa okkur að koma þessu a markað her. Þeir eru nuna í næstu viku að fara að tala við auglýsanda sem mun síðan styrkja þetta allt. Krosslegg fingurnar fram og aftur að það takist hja þeim. Síðan hitti eg breta sem byr í Kína en hann og tveir sem eru með honum eru að skoða að fjárfesta í þessu. Þeir ætla að gefa mer svar eftir helgi - og einnig þriggja manna hópur herna í London sem hefur líka verið að skoða. Þeir sögðust ætla að gefa mer svar a manudag. Þannig krosslegg fingurnar aftur og eru þeir þá komnir í hring. Bretinn sem er í Kína vil reyna að koma dæminu inn á Kinverska markaðinn og við erum að skoða hvort að Ashwin fari til Shanghai núna eftir ca 10 daga. Þar myndum við reyna að keyra a öðru vörumerki og eru fyrstu hugmyndir herna a þessari síðu: http://www.mindsfield.com/socialbrain


Tók mér kvikmynd í líkamsræktinni og ætla því að horfa a video í kvöld og reyna að slaka aðeins á:) enda búið að vera æði skrautleg vika - og ekki vanþörf á að fara að laga til - uff:)

Thursday, 5 June 2008

Heimkoma - dagsetningar

Er buinn að kaupa farmiða heim, núna þann 13 júní - kem um miðnætti - og fer svo út aftur þann 22 júní með 4 velinni. Þa kemur Þórunn með mer út og verður í einhverjar vikur:) jibbeeeee:)

Tuesday, 3 June 2008

mikið að gera

Í dag, á morgun og á fimmtudaginn er allt brjalað að gera - þannig eg næ ekki að blogga mikið fyrr en a föstudag líklega. Fer af stað a fund kl 7.30 í fyrramalið og sit með einhverjum 3 fjarfestum a Hilton hotelinu við Trafalgar til örugglega hadegis - þa er símafundur með liðinu í Chicago og svo beint a fund með einum af Kínversku fjarfestunum sem eru að skoða þetta - en sem sagt einn þeirra er í heimsokn í London á morgun og hinn. Svo er svipað program í fimmtudaginn - fra morgni til kvölds.

Sunday, 1 June 2008

Tapsárir Svíar

Rosalega var sigurinn sætur á Svíum í dag - en mikið rosalega geta þeir verið tapsárir að ætla að kæra leikinn og reyna að komast áfram á því. Myndi maður vilja komast áfram með það á bakinu - að hafa vælt sig áfram en ekki miðað við hvernig leikurinn fór. Ég held að ef ég væri leikmaður hjá Svíum þá myndi ég nú ekki vilja keppa með það á bakinu. Vonum bara að þeir nái ekki sínu fram.

Saturday, 31 May 2008

Fyrsta sparkið:)

Í dag fann Þórunn fyrsta sparkið:) Er greinilega heilmikið efni í íþróttakappa - strax byrjað að hreyfa sig. Hún sagði að þetta væri svona eins og smá kitl:)

Bölvaðir pólverjarnir

Var að horfa a landsleikinn við Pólverja - ekki gott mál. Núna verðum við að reiða okkur á sigur gegn Svíum - en það hefur jú oft verið erfitt. En samt ekki ómögulegt því að okkur tókst nú seinast að gera þeim skráveifu - þannig að þeir komust ekki á stórmót. Hvort að það takist aftur núna verður bara að koma í ljós - finnst reyndar fáranlegt að mótið sé skipulagt þannig að þetta sé á heimavelli eins liðsins. Afhverju ekki að hafa þetta í öðru landi þannig að allir standa jafnt.

Friday, 30 May 2008

Uppboð




Ég fór á fund í dag í Conduit Stræti, en það er í miðju Mayfair sem er með fínari hverfum Londonar. Ég var aðeins of snemma og þurfti því að finna eitthvað til að eyða tímanum í 20 mín. Þá sá ég þetta fína uppboðshús (hægt að klikka á myndirnar fyrir ofan og sjá þær stærri), sem er jú víst aðal uppboðshús heimsins og ég náttúrlega bara labbaði inn eins og ég ekkert væri sjálfsagðara. Þegar í andyrið var komið var ég spurður hvaða erinda ég væri þarna og ég náttúrlega sagðist vera að skoða að gera kaup á dýrum málverkum!!! Vissi á þessari stundu ekkert hvað ég var að koma mér út í - gaf upp nafnið bara á fyrirtækinu til að komast inn! Þannig núna er Matchtooth Ltd líklega á skrá hjá þeim sem álitlegur kaupandi á rándýrum málverkum og fleira ha ha ha ha. Ekkert er ólíklegra en það liklegra ti hi. En inn var ég kominn og ekkert nema gaman. Rölti inn í eitthvað veitingahús þarna og jú ég held að ég hafi nu ekki seð saman komið jafn mikið af snobblið á ævinni! Það voru þarna fínar frúr með einhverja kjölturakka sem voru á stærð við einhverjar kisur og það voru þarna kallar með einhverja pípuhatta, reykjandi vindla. Þvílík og önnur eins vitleysa. Síðan lá leiðin náttúrlega inn í uppboðssalin en þar var greinlega allt pakkað þannig ég lét mig nægja að fylgjast með þarna utan við salinn í smá tíma - enda hafði ég nú ekki mikinn tíma, alveg að verða of seinn á fundinn. Samt það var nú frekar fyndið að fylgjast með þessu þarna - þegar ég kom var verið að selja eitthvað málverk sem var merkt LOT 219 - ég er ekki enn búin að finna út hvaða málverk þetta er, enda er ég nokk viss um að þó að ég kæmist að því þá væri ég endu nær!!! En samt þá var þetta smá klikkað að horfa á þetta og hlusta á uppboðahaldarann reyna að fá fólk til að bjóða hærra og hærra - það var þarna til hægra fullt af liði sem var bara í símanum og hækkaði og hækkaði boðið. Spáðu í þeirra veröld - jú situr og skoðar einhverja vefsíðu og hugsanleg kaup á einhverjum myndum allan daginn - og hringir síðan í einhverja gengilbeinur í salnum og biður það um að hækka tilboð og annað. Hvílík gerviveröld þetta lið lifir í. Þá langar mig nú frekar að vinna í aðgerðargenginu í frystihúsinu á Hornafirði. En jú þetta litla málverk sem var þarna til sölu og var númerað LOT 219 fór á GBP 2.7 milljónir - sem eru jú litlar 398 milljónir ísl kr. Það var hálf óraunverulegt að horfa á liðið kaupa þetta á þessa upphæð og fara svo að tala við einhverja gæja um að ná inn 9 milljónum í fyrirtækið sem við höfum verið að berjast við að stofna í 2 ár!!!!!!!!!!!!! Stundum er þessi heimur afskaplega óþolandi og pirrandi - eins gott að maður er úr sveit og spáir því ekki of mikið í þetta allt.

Thursday, 29 May 2008

SUÐURLANDSJARÐSKJÁLFTI

Ég held að það sé kýrskýrt að ég sé líklega ekki að færa miklar fréttir til lesenda þessa bloggs - um að Suðurlandsjarðskálftinn varð um kl 4 í dag. En ákváð láta mynd fylgja með hvernig þetta leit fyrir alheiminum núna í kvöld - sem sagt á forsíðu stærstu fréttaveitu heims - CNN. Þetta var frekar óþægileg tilfinning að vera hér í London - frétta af þessu, og svo heyrði maður næst hversu sterkur hann hafði verið - allt síma sambandslaust og maður vissi ekkert meira. Og það var ekki fyrr en um klst seinna að ég náði í Önnu og þá hafði Bryndís náði í foreldrana og enginn hafði slasast. Það var nú mikill léttir - skildist á Bryndísi að þau væru út undir beru lofti því að það væri ráðlagt ef annar skjálfti myndi koma. Síðan frétti maður að sjúkrahúsið hefði eitthvað skemmst og það er nú bara næsta hús við hliðina - og það er frekar sterk byggt hús. Síðan fór maður að sjá fréttir á RÚV og annarstaðar og þá var flest allt í rú og stúi allstaðar - allt hrunið niður og skemmt. Sérstaklega var þó vínbúðin í Hveragerði illa úti - sagði Þórunni það og þá heyrðist í henni: já líklega hefur föður þínum nú verið nokk sama um það he he he

Wednesday, 28 May 2008

2000 pöbba

Horfði á Ísland tapa fyrir Veilsverjum - og svo sem ekki mikið um þann leik að segja. Var annars frekar rólegur dagur í dag. Fer a tvo fundi á morgun, og einnig er eg að undirbúa að fara að hitta stóra kráarkeðju í næstu viku - þeir eiga 2000 pöbba.

Monday, 26 May 2008

Bankahelgi að verða búin - loksins

Jæja þá er þessi skollans bankahelgi að verða búin. Ekki að það sé ekki gott að fá smá frí - en það er ekki akkúrat það sem ég er að hugsa um núna. Allt annað skiptir meira máli en það núna. Þannig gott að hægt sé að fara að vinna á fullu á morgun. Náði þó einum fundi með einhverjum fjárfesti fra Dubai í dag og einnig fekk ég bref fra aðila sem segist vera að finna einhverja fjarfesta fyrir mig og eg eigi að senda honum meiri upplysingar. En hann er svo sem ekki sa fyrsti. Nog í bili

Sunday, 25 May 2008

Lítið sem gerðist í dag

Voðalega lítið sem gerðist í dag. Var bara að vinan og fór í gymið og svona. Síðan er frídagur á morgun - enn ein bankamannahelgi núna. En get vonandi unnið í þeim sem eru ekki í UK t.d. fjárfestateymunum í Dubai og Kína. Það er allavega stefnan.

Saturday, 24 May 2008

Bjartsýni

Ja það var bjartsýni að halda að maður myndi ná að klára þetta fyrir hádegi - en nú er þetta búið - 7 ruslapokum seinna! og kl orðin 14:41 - munaði nú ekki nema tæpum 3 klst. Vonum að þetta verði nóg - alvega fram að jólum!!!!! Og þá er komið að því að fa ser kaffi og fara að vinna - alveg þangað til Eurovision byrjar!

Hreinlætissvæði heilans tók völdin - en bara fyrir hádegi

Í dag var því svæði heilans sem sér um hreinlæti að Warren Court nóg boðið og lét til skara skríða - enda oftast bræla yfir helgar hér - og það var sko tekið á því, enda ekki vanþörf á þegar betri helmingurinn hefur ekki látið vöndinn sveiflast svo mánuðum saman. Svona til að gefa ykkur smá "smörþef" af stöðu mála, þá var notuð steinull við þrif á gólfi inn í herberginu þar sem páfinn sefur og spjallar við vegfarendur að hætti húsins. Say no more. Nú er komið að stofunni og skrifstofu borðinu og ætti það að duga fram yfir hádegi.

Friday, 23 May 2008

Bræla

Það var ekkert nema bræla í Newbury. En það var samt ánægjulegt að sofna við fuglasöng, svona sem tilbreyting frá öllu sírenuvælinu á Warren Court. Eiginlega vissi varla hvað þetta var!

Thursday, 22 May 2008

Newbury

Fer fljótlega á fundinn út í sveit, Newbury, og mun líklega gista þar. Kem svo heim fyrir hádegi á morgun. Mun hitta 5 fjárfesta þar á einhverju veitingahúsi og svo munum við líklega fara heim til eins þeirra eftir matinn. Verður örugglega bara gaman.

Wednesday, 21 May 2008

Kominn til London

Kominn heill og sæll til UK. Flugið gekk vel, en þegar heim var komið tók ekki gott við - því að Man Utd vann Chelsea og það var ekki gott. Ekkert er verra í þessum heimi en þegar Man Utd vinnur. Er buinn að fara út í kaupfélag og kaupa mjólk og svona og allt tilbúið í vinnu á morgun. Fer seinni partinn á fundinn í Newbury - þar sem 5 fjárfestar koma saman til að hlusta a fagnaðarerindið:) ti hi

Thursday, 15 May 2008

Tefal Express 2000

Fjárfest hefur verið í ægifögrum silfurlitðum, Tefal Express 2000, hraðsuðukatli, með demantslöguðu hitunarkerfi í botni. Um er að ræða grip sem hægt er á setja á lengur en tvævetur. Þegar ýtt er á on/off takkann kemur fallegt bjölluhljóð eins og maður sé staddur út í haga að hlusta á lóurnar - það er þar með komið sumar á Warren Court - og það neyðarástand sem skapaðist í morgun hefur hér með verið aflétt.

RÚV svarar loksins

Loksins svaraði RÚV fyrirspurn minni vegna þeirra vandamála sem hafa verið útsendingar á vefnum hjá þeim. Vandamálið var að það var ekki samtenging milli raunverulegra útsendinga og vefútsendinga - þannig að þegar einhverjir dagskrárliðir seinkuðu vegna ýmissa ástæðna, þá passaði það ekki inni vefútsendinga. Sme þýddi að þegar maður var kannski búinn að koma sér vel fyrir með pop og kók og ætlaði að horfa a Útsvar eða landsleik í handbolta - þá var slökkt á utsendingu kannski þegar 5 mínútur voru eftir. Vitandi að þeir nota Vyre kerfið til að keyra allt kerfið - en það er kerfið sem við byggðum upp í Salt á sínum tíma, þá er það ekkert vandamál að tengja þessa tvo hluti saman og núna loksins ætla þeir að gera það - hversu langt það verður þangað til það gerist a síðan eftir að koma í ljós. Brefið fra þeim er her fyrir neðan.

Sæll Robert.

Fyrir stuttu var tekið í notkun nýtt útsendingarkerfi Sjónvarpsins og þá missti vefupptökukerfið okkar tengingu við skotlista Sjónvarpsins. Það þýðir að vefupptökurnar eru teknar upp eftir áætluðum dagskrártíma en eins og við vitum þá getur slík dagskrá hliðrast talsvert. Það er verið að vinna að því að laga þetta en þangað til er ekkert hægt að gera annað en að laga upptökurnar eftir á. Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum.

Kveðja,
Sunna Mímisdóttir
Vefstjóri

Neyðarástand í morgunsárið

Neyðarástand skapaðist her a Warren Court í morgunsárið þegar í ljós kom að hraðsuðuketillinn var bilaður og því ekkert heitt vatn í kaffið:) Hversu slæmt getur það orðið? Fór því þá leið að hita vatnið í potti til að redda málunum - en það tók heila eilífð. Um mjög alvarlegt mál er að ræða og mun ég senda sjálfan mig út af örkinni í dag til að kaupa varahluti í hraðsuðuketilinn góða:)

Tuesday, 13 May 2008

Prjóna - spurning - hmm

Buinn að vera að undirbua næstu tvo daga - en það verða 5 fundir nuna á næstu tveim dögum og svo beint heim til Íslands. Verður agætt að slaka aðeins á yfir helgina heima - þó að þetta verði natturlega fáranlega stutt stopp í þetta skiptið. Það er fullt sem þarf að taka ákvorðun um þegar eg kem heim - t.d. hvort við Þórunn tökum kjallaraíbúðina á leigu frá 1 júlí og svona. Ju svo á Bjarki afmæli. Þannig heilasellurnar fá lítið sumarfrí en sem komið er - enda engin ástæða til - nóg að gera, smá álag og stress og þá er mest gaman:) Svo er bara að vona að krúttið dafni vel þarna inni - fer með Þórunni í mæðraskoðun á mánudaginn og þá fær maður vonandi að heyra hjartsláttinn aftur:) Það er ótrúleg tilfinning. Mar á kannski einn daginn eftir að fara að hekla bara - jú eða prjóna húfu - hmm ekki viss reyndar ha ha. Vantar alveg sjálfboðaliða í það - kannski ég spyrji pabba he he veit ekki:) Líkleg væri nú móðir mín betri í það - voðalega handlagin og flínk við allt svona. Held ég hafi ekki erft það frá henni - ekki nema að litlu leiti þá. Jú eða þá bara að þetta eru óræktaðir og leyndir hæfileikar hja mer sem eiga eftir að koma í ljós seinna - líklega best að segja það bara!!!

Monday, 12 May 2008

Víla og díla

Lítið sem gerðist í dag. Aðallega fór dagurinn í að skiptast a tölvupóstum við Roger sem eg er að reyna að fá í vinnu herna næstu 3 mánuði. Ætla að taka lokafund með honum á morgun og þá verður þetta sett á eða af. Væri gott að geta haft hann í málunum líka því að þetta er alltof mikið álag fyrir einn að eiga við. Fekk einnig tilboð fra Simon Gall sem er til í að hjálpa við að finna fjármagn og koma svo í stjórn - þarf að leggja það tilboð fyrir aðra hluthafa og sja hvort það verður samþykkt. Gæti verið gott að fa hann með í þetta, því hann er vel tengdur herna í UK og með góða reynslu. Þannig var þessi dagur. Jú þá reyndar borgaði Dubai fjarfestirinn það sem hann átti eftir að borga eða um 385þus ikr. þannig að ég gat þa borgað indverjunum mánaðarlaunin sin sem er um 523 þus ikr (fyrir þrjá menn)

Sunday, 11 May 2008

Undirbúningur vegna Nick House Entertainment

Engin hvítasunnuhelgi her - bretarnir eru greinilega ekki mikið að spá í það og líklega er það vegna þess að úrslitaleikurinn í ensku úrvaldsdeildinni var í dag og þá hreinilega tæmptust allar helstu götur í 100 mín. Það var ótrúlegt. Þetta var svona eins og þegar áramótaskaupið er heima! Hef verið alla helgina að útbúa kynningarplagg fyrir Nick House Entertainment en ég hef ákveðið að það reyna að fá þá til að vera samstarfsaðili okkar her í London til að koma Redspray á markað. Þeir hafa allt sem til þarf - nú er bara að sjá hvort að þeir séu til í samstarf. En alltaf betra að vera vel undirbúin áður en maður setur í þá kauða, þetta er svona eitt af mikilvægustu skrefunum í þessum ferli öllum og gríðarmikilvægt ef það tekst. Þeir hafa allt sem við þurfum - t.d. 240.000 manna vefsamfélag (www.londonparties.co.uk), eru eigendur að fjölda næturklúbba og eiga því að sjá sér hag í því að "white-label" lausnina okkar - það er að segja setja sitt vörumerki á hana. Það er oft gert þegar verið er að fara af stað því að það er það vörumerki sem þeirra notendur treysta og því auðveldara að keyra inn nýja vöru á þá. Sjáum hvað gerist í þeim málum núna næstu viku - vona að ég nái fundi með þeim áður en ég fer heim á föstudag. Það er samt alls ekki öruggt því að allt tekur um það bil 10x lengri tíma í Bretlandi en á Íslandi. Veit ekki afhverju en þannig er það bara - alveg sama hvað það er. Nema kannski þegar maður biður um bjór á einhverri krá, þá eru þeir voðalega snöggir - enda algjörir svolgarar.

Thursday, 8 May 2008

Bankaþjónusta pirrar

Ég tók eftir nýlund í bankaþjónustu herna í Bretlandi í dag. Eitthvað sem hefur ekki verið hér áður. Veit ekki hvort að þetta sé merki um að það se kreppa hja þeim eða þá að þeir hafi ráðið inn eitthvað nýtt markaðsseníið. Málið er að núna að þegar maður talar við einhvern bankamann hja HSBC, hvort sem að það er í gegnum síma eða fer í útibúið - þá þurfa þessir kjánar alltaf að reyna að selja manni í lok samtalsins. Þannig fór ég í dag og bað þa um að opna netbankann minn - var með hann bara opinn fyrir fyrirtækið. Jú það gekk ágætlega en svo þegar allt var búið - þá byrjar hann að tala um einhverja innbúatryggingu og hvort að ég sé með svollis. Ég náttúrlega skildi ekkert hvað maðurinn var að fara, því það kom mínu erindi ekkert við - en náði svo að skilja að manninum var full alvara með að reyna að selja mer þetta. Eg nattulega afþakkaði dæmið. Síðan þurfi ég að hringja í símalínuna þeirra í dag því að það var eitthvað að lykilorðinu og eg fór í gegnum einhvern heljarferil af samtali við tölvu, innslætti á tölum og samtölum við einhverjar útvistaða Indverja - sem er nú alveg nógu óþolandi, því þeir tala varla ensku sem einhver maður skilur - þá þurfi þjónustufulltrúinn þar líka að fara að ath hvort að eg vildi ekki fá mer einhverja aðra tegund af sparnaðareikning. Eg atti heldur ekki til orð og fannst þetta alveg fáranlegt því að það kom mínu erindi ekkert við. Eg veit satt best að segja ekki hvort að þetta bætir stöðu þeirra eftir allt. Eflaust ná þeir að selja til einhverra en eg held að þeir pirri hugsanlega fleiri en hitt. Allavega mig - en ég ætla samt ekki að fara í hungurverkfall í bankanum eða reyna að leggja vörubíl fyrir utan útibúið:)

Wednesday, 7 May 2008

Það sem er í gangi

Hitti Tom Kozlowski í dag og hann bætist við hópinn af fjárfestum sem sýnir Redspray alvarlegan áhuga. Núna ætlar hann að tala við tvo felaga sína, skrifa undir leyndarsamning og fá svo öll gögn til að skoða. Hann byggði upp fyrirtæki (City Practioners) sem þjónustaði fjármálastofnanir með flókin upplýsingatæknikerfi og seldi það síðan fyrir ári síðan. Þegar hann seldi það þá velti það 6 milljörðum ísl kr - þannig hann hefur reynslu. Hægt er að lesa frettatilkynningu um söluna her: http://www.capco.com/WorkArea/showcontent.aspx?id=3608

Aðrir aðilar sem eru enn að skoða og velta þessu fyrir sér eru þessir þrír Bretar og Kanadamenn í Shanghai, Kína, það er Sifco fyrirtækið í Dubai, doktorinn í endurskoðun við Uni of Chicago (London útibú), allt ex-Vodafone gengið í Newbury, Trevor og Kim (þessi sem á 7 bíla, þyrlu og flugvél), Chad í Chicago sem hefur verið að tala við fjarfesta í Dubai og hann segir að hann se mjög heitur, svo 4-5 aðrir sem eg hef ekki enn hitt og svo nuna þessi Tom Kozlowski og felagar. Þetta bara hlýtur að takast!!!! Skal.

Einnig erum við mjög líklega að fá tvo nyja starfsmenn í hlutastarf sem munu byrja að vinna með mér á næstunni. Það eru Roger sem er svona social media expert - markaðssérfræðingur og svo kona sem hefur verið stjórnandi á markaðsviðinu í Intel örgjörvafyrirtækinu. Hun mun fokusera á fagsýningar og hvernig hægt er að nota kerfið í þannig umhverfi eða allavega að byrja að skoða það mál.

Síðan er ég að endurskipuleggja stjórn fyrirtækisins og mjög líklega mun endurskoðandinn okkar, Andrew, koma nýr inn og svo lögfræðingurinn Alessandro líka. Þeir taka við af Graham og Santoshi í stjórn. Mjög anægður með það, því alltaf gott að hafa reynda endurskoðanda og lögfræðinga í stjórn - enda eru þetta svið sem ég hef afskaplega lítin áhuga á en þarf samt að eyða tíma í að hafa áhyggjur af. Þannig þetta léttir af mér áhyggjunum og eg get fokuserað minn tíma á hluti sem skipta meira mali.

Þannig nóg að gera og svo ekki sé meira sagt.

Monday, 5 May 2008

Bankamannahelgi

Ein af mörgum verslunarmannahelgum Breta var í dag. Það kallast Bank holiday - sem þýðist frekar bankamannahelgi - heldur en verslunarmannahelgi. Þetta er sem sagt helgi þar sem það er frí á mánudegi líka. En eg veit ekki hversu margar svona helgar eru yfir árið allavega 4-5x. Þannig lítið sem ekkert gerðist í dag. Fer vonandi að færast fjör í þetta allt á morgun. Er búinn að þvo og vaska upp og það segir nú meira en margt annað:)

Sunday, 4 May 2008

Hvert næst

Þetta Redspray ævintýri er farið að taka mig til ótrúlegustu staða. Aldrei hafði eg heyrt af Newbury fyrr - en þann 22 Maí þá verður þar fundur með stórum hópi af fjárfestum sem vilja kynna ser þetta dæmi. Einir sex aðila, flestir fyrrum yfirmenn Vodafone í Bretlandi og svipað. Og það verður bara prógram - eg verð sóttur út á lestarstöðina, svo verður farið á eitthvað veitingahús eða svipað - fordrykkur, síðan held eg kynningu og þeir kynna sig og svo matur. Síðan fæ ég að gista heima hjá forsprakkanum og heim daginn eftir. Var bara að fá email um þetta - allt skipulagt hja þeim. Frekar fyndið. Þeir hljóta að hafa áhuga. Meðfylgjandi er kort af umhverfinu við London þannig að hægt se að átta sig á staðsetningunni. Þetta er ca 1 klst með lest fra London.

Heim eftir 11 daga

Var að kaupa miða heim 16 Maí og svo út aftur 21 Maí. Fra föstudegi til miðvikudags. Fyrirtækið borgar þessa ferð.

Saturday, 3 May 2008

Fyrsta myndin

Fyrsta myndin sem eg tek af Robertsson Jr. eða Robertsdottir. Eftir aðeins 12 vikna meðgöngu:) Allt kom eðilega út í fyrstu ómskoðuninni. Hrikalega ánægður:)

Wednesday, 23 April 2008

Dubai menn greinilega heitir


Þeir í Dubai virðast vera voðalega heitir fyrir Redspray. Fekk í dag email fra fyrirtæki í Dubai sem eg hef aldrei heyrt fra aður - en þeir reka tískuverslanir, hótel, eru með byggingar fyrirtæki og fl - velta einhverjum USD 60 milljónum (4.5 milljörðum ísl kr) og þeir sem sagt koma með tilögu að fyrrabragði að þeir fari í samstarf með að setja Redspray upp í M-Austurlöndunum - og lögðu þeir til að þeir myndu setja 22 milljónir ísl kr í það mál. Eg veit eiginlega ekki hvað ég a að segja - því þetta kom mér svo á óvart. En allur svona áhugi er góður og hjálpar til við fjármögnun hérna í London. Jafnvel þó að ekkert verði af samningum við þá. Núna get eg synt öllum fjárfestunum sem ég hitti á morgun þetta bréf - og það ýtir á hlutina. Engin vil missa af lestinni - fjárfestar eru jú alveg eins og rollurnar í Tungnaréttum - þegar ein byrjar að hlaupa þá hlaupa allar. Á fræðimáli er það kallað "the ketchup effect" - tómatsósu effektinn.

Dubai gæi borgar

Fjarfestirinn sem keypti 1% hefur nuna borgað GBP 10.000 af 12.500 - það er að segja 1.4 milljón isl kr. Hann gat ekki borgað meira per dag með netbankanum sínum og borgar afganginn því á morgun. Þó þetta sé lítið þá skiptir þetta gríðarlegu máli fyrir okkur. Svo ekki sé meira sagt.

Tuesday, 22 April 2008

Niðurröðun funda!

Þetta er ótrúlegt hvernig þetta niðurraðast þessir fundir á vikurnar. Maður gerir allt í að reyna að ná fjárfestum á fund til að geta synt þeim hugbúnaðinn - og svo reynir maður að dreifa þessu jafn a milli daga. En stundum þa kemur þetta í bunum og svo einkennilega vil til að allir hafa beðið um daginn sem eg er að fara til Íslands. Hef líklega fundið þetta á mér þegar ég bókaði miðann að fara ekki 1-2 dögum fyrr - eins og mig langaði. En sem sagt þá byrjar programmið kl 8:30am um morgunin á fundi í Capital Club sem er svona lokaður klúbbur í City fjármálahverfinu - þar hitti ég tvo fjárfesta sem eru að leita að næsta verkefni sem þeir munu fara inní. Svo hitti eg Andy kl 10:30am en hann var einn af yfirmönnum BT - hann er að skoða fjarfestingu og sagði mer að hann hefði langan lista af spurningum. Það verður eitthvað skrautlegt:) Þessi fundur er á allt öðrum staði í London þannig það verður að minnsta kosti 45 min ferðalag. Svo kemur fundur kl 12 með konu sem var ein af yfirmönnum Intel örgjörvafyrirtækisins. Siðan kemur seinasti fundur kl 1.30pm - og svo beint út á völl eftir það örugglega, því það er er ofast 1 klst í ferðalög á milli. Þannig það verður öruggulega vel þreyttur ferðalangur sem kemur heim til Íslands um miðnætti - því þessir fundir eru ekki auðveldir - maður er settur á "grillið" og svo er bara "gefið skotleyfi" og flestir af þeim sem fá skotleyfi þennan daginn eru jollar sem hafa áratuga reynslu í þessum geira - og eiga því auðveldara með að sjá áhættuþættina. Síðan strax kl 10 a föstudagsmorgni er símafundur með þrem fjárfestum í Shanghai í Kína sem hafa verið að skoða þetta seinustu viku eða svo.

Er annars í dag að hitta í annað sinn stofnanda www.zubka.com en það er Red Herring 100 fyrirtæki - en hann virðist hafa góðan áhuga samstarfi - þannig að þegar við verðum tilbunir að þá verði þetta notað í að hjálpa fólki að finna nýja vinnu með þessu tóli sem við höfum þróað - en það tæki nokkuð langan tíma að fullþróa svollis. Betra að byrja þá snemma að skoða það. En málið fyrir mig er að ef hægt er að búa til einhverja samninga við svona aðila - þá lítur þetta meira spennandi út fyrir hugsanleg fjárfesta í dag og það er það sem þetta allt snýst um.

Hitti aðila í gær sem er svona social media expert - hefur sem sagt verið að sérhæfa sig í þessum geira sem við erum - og eg tel meiri líkur en ekki á að hann fari að vinna með okkur - hugsanlega í kringum 75% stöðu og myndi hann eingöngu fá borgað í kauprétti á hlutabréfum. Því það er eini möguleikinn hja okkur nuna. Gæti verið gríðalega mikilvægt fyrir okkur núna á þessum tímapunkti. Verst að lögfræðingurinn er að fara í uppskurð í dag og mun því ekki geta útbúið kauprettarsamningana fyrir en eftir hugsanlega viku - en þaðv erður bara að hafa það. Greyið er að fara í uppskurð því það hafa stíflast einhverjar ennis eða nefholur eða eitthvað - víst mjög sársaukaful aðgerð. Þannig best að vera ekki að bögga hann of mikið næstu daga.

A morgun hitti ég svo Andrew - en hann er markaðsfræðingur hjá Orange símafyrirtækinu - frekar fyndin týpa - en maður er með doktorsgráðu í dýrasálfræði og vinnur svo hjá símafyrirtæki ha ha. Hvernig er hægt að vera með doktorgráðu í dýrasálfræði - uff! Ég held að ég myndi t.d. ekki skilja meira hvað hestur eða rolla hugsar þó að ég stúdera það í 5-6 ár! A nog með sjálfan mig:)

Monday, 21 April 2008

Álfgeir Íslandsmeistari í körfubolta :)

Ekkkkkkkert smá stoltur af "litla" frænda mínum núna. Hann var að verða Íslandsmeistari með KR í körfubolta í 8 flokki. Bara brilli:) og til hamingju Álfgeir. Hér er linkur þar sem hægt er að lesa meira: http://www.karfan.is/index.php?option=com_content&task=view&id=6271&Itemid=40

Sunday, 20 April 2008

Sunnudagar erfiðastir

Sunnudagar eru erfiðastir. Ég er bara með einn tilgang herna í London núna og það er að koma þessu dæmi af stað - það er því erfiðast að vera her þegar allir taka frí á sunnudögum. Laugardagar eru ekki eins slæmir því að þa eru margir að vinna en sunnudaga taka flestir ser frí. En þa er bara að horfa a Silfur Egils:) - hann bjargar alveg fyrri parti dags en seinni er erfiðari. Reyndi í dag að skipuleggja vikuna sem er framundan en það tók svo sem ekki langan tíma. Byrja daginn á morgun á að hitta aðila sem gæti hugsanlega farið að hjálpa mer herna og myndi hann þa eingöngu fa borgað í kaupretti á hlutabrefum. Kemur betur í ljós a morgun - en það væri sko ekki vanþörf á að fa einhverja hjálp. Vona að hann se til í tuskið

Saturday, 19 April 2008

Dubai fókus í allan dag

Dagurinn í dag verður tileinkaður Sameinuðu Arabísku Furstadæminu (UAE) og Dubai. Allur fókus mun á að byggja upp tengsl við aðila þar sem gætu hugsanlega hjalpað til við fjármögnun þar. Hefur gengið áægtlega í morgun og ég er nú þegar kominn með 2 aðila sem sýna áhuga á að hjálpa til. Astæðan fyrir þennan fókus er að menningin er öðruvísi þarna niður frá og það hafa margir verið að benda mer a að Redspray myndi smellpassa inn í þessa menningu hja þeim - mikið betur en í UK. Þannig um að gera að skoða þessi mal þarna - og svo er ekki verra að þeir vita í raun ekkert hvað þeir hafa að gera við allt þetta olíufjármagn sem hefur runnið til þeirra - aumingja greyin - þurfa hjálp:) Jú þetta verður reyndar ekki eini fókusinn - því Liverpool og Fulham eru að fara að spila nuna kl 3:)

Thursday, 17 April 2008

Farsíminn fundinn

Það ótrúlega gerðist í dag - maður hringdi fra staðnum sem eg var a fundi í gær og sagði mer að síminn minn hefði fundist. Eg helt að þetta myndi aldrei gerast í stórborginni London - en greinilega enn til heiðarlegt fólk her:) Eg sem sagt var buinn aður að hringja í þa til að biðja mig lata mig vita ef þeir myndu finna eitthvað - og í gær hringdi enginn, þannig eg var buinn að gefa upp alla von - en svo koma þessi hringing í dag og eg for svo og sótti hann aðan. Hann hafði einhvernveginn dotið niður a milli seta í sófanum. Brilli:)

USC vinur

Vinurinn minn fra Rússlandi sem var besti vinur minn í USC í Los Angeles - þegar eg var þar í seinna skiptið - fór að vinna í fjármálageiranum. Hann fór að vinna í svokölluðum sjóða sjóði. Það er að segja aðili sem fjárfestir í sjóðunum - svona svipað dæmi og lífeyrissjóðir en samt ekki. Fekk þetta email fra honum í morgun. Hann er greinilega ekki alskostar anægður með íslensku bankana! Þeir hafa einhverja milljarða bandaríkjadala í þeim og greinilega ekki serlega anægðir með gang mala. En svona er þetta stundum.


very fun times indeed.. anywhere in the financial industry.. what a shitshow!

how is everything with you? i missed you in London - was there a couple of weeks ago.. you still in the early stage VC business?

by the way, what's going on with Icelandic banking industry!? we got billions of investments in Kaupthing, Landsbanki and Glitnir and we are getting our faces ripped off.. ;-)

Wednesday, 16 April 2008

Allt við sama heygarðhornið

Ekkert nýtt í fréttum héðan úr London. Held áfram á fullu. Nuna er veðrið aðeins byrjað að vera betra her í London - ekki endalaus rigning og læti. Sólin byrjuð að kíkja við einstöku sinnum. Ju týndi farsímanum í dag - eða rettara sagt einum af þeim sem eg nota. Það á svo sem ekki eftir að skipta sköpum því ég á 3 alveg eins - en alltaf slæmt að missa verðmæti. Líklega hefur einhver fingralangur laumast í vasan minn út á götu.

Saturday, 12 April 2008

Dubai

Fekk í dag sendan samninginn um kaup fjarfestisins fra Dubai a 1% í Matchtooth. Hann á að borga fyrir það 1.8 milljón isl kr. fyrir hlutinn. Þetta hefur tekið hann tvo manuði að skrifa undir - þannig nu er bara að sja hvort að það a eftir að taka jafnlangan tima að senda peninginn. En allavega mjög gott skref því þetta er auðvitað bindandi samningur í alla staði.

Friday, 11 April 2008

Chicago

Dagurinn í dag kom svo sem agætlega út - hitti professor í endurskoðunarfræðum við Háskólann í Chicago / University of Chicago sem hefur áhuga a að setja fjarmagn í Redspray. Hun ætlar að hitta lögfræðingin okkar sem næsta skref. Hun er ekki einhver ríkisbubbi - en synist sem svo að hun hafi áhuga a að setja einhverja millur í okkur. Það væri mjög gott - því að hun hefur frabært tengslanet í Uni of Chicago og það getur verið gríðarlega mikilvægt. Hitti siðan seinna í dag Alessandro lögfr okkar og hann var bara hress - serstaklega var hann hress með frettirnar af "incubation" dæminu hja mer:) Eg er nuna að skipuleggja lokahnykk í þetta allt hja okkur í Redspray - sem gæti þýtt fjármögnunar-roadshow í boston, silion valley, london og geneva. En hvort að það tekst veltur á næsta mánuði og hvort að það takist að ná inn því private investor fjármagni sem þarf til að fara þessa leið. vona að það takist - því þetta er búið að vera nógu fjári erfitt. Eg reyndar breytti fjárhagsáætlunum félagsins í dag - bara smá - eða þannig að ég myndi fá eðlileg lágmarkalaun - ef að fjármagn næst. Það er allavega lágmark að byrja a að setja það inní áætlanir. Hvað sem að svo gerist. Ef bjartsýni er ekki til staðar þá gerist ekki neitt. Það er bara svo einfalt. Þeir sem eru risk-averse verða bara að halda afram að halda ser í handriðið. Punktur.

Næsta skref hja mer er að keyra með miklum latum næstu daga á alla hugsanlega möguleika á private investment fjarmagni - þetta þyðir að kaupa professional account hja Linkedin, greiningar á venture blogs til að finna þa sem hafa verið að fjarfesta og exita, bein keyrsla a aðila sem eru a aSmallWorld og hafa synt einhver ahuga a fjarmögnun, keyrsla a tengslanet sem nuna í dag telur yfir 1000 manns í London og nagrenni osfrv. Þannig það verður nóg að gera næstu daga - og það gæti hugsanlega komið niður á tíðni bloggfærsla!

Er farinn að selja fyrir Landsbankann he he - óvart!

Landsbankinn ætti að vera stoltur af mer nuna:) Verst að þeir hafa ekki hugmynd:) Í gegnum aSW - vefsamfelagið fyrir ríka og fræga fólkið (mínus þessi úr Tungunum he he) var haft samband við mig í gær - þar sem eg er fra Islandi. Það var einhver sjóðstjóri í Sviss sem vildi fa alit mitt á stöðunni á Íslandi því hann væri að spa í að taka þátt í stóru skuldbrefaútboði hja þeim - því hann grunaði að það væri verið að tala Ísland niður ogsfrv. Eg sendi honum nokkrar línur og nokkra linka a video t.d. viðtal við Richard Portes úr London Business School á CNBC og fekk siðan þessi skilaboð í morgun:

Hi Robert,

Well, "takk" for the information and "takk II" for making me laugh. After i read your pm i booked in the bond into my clients
portfolio, - i would say you are a good salesman !

If you are in Switzerland once drop me a line or give me a call (+ 41 79 420 96 13) and let`s have a drink together. Thanks for
your help.

Best,

Ivan

Wednesday, 9 April 2008

Flensa

Enn með einhverja bölvaða flensu og ekki í miklu bloggstuði vegna þess

Monday, 7 April 2008

Heimkoma


Kominn heilu á húfi til London aftur. Lenti í því að komast ekki langt á flugvellinum í dag, því það var allt troðið vegna komu Fernerbache til London, en þeir eiga að keppa við Chelsea a morgun í meistaradeildinni. Þeir unnu Chelsea ut í Tyrkalandi í seinustu viku og þess vegna vakti koma þeirra til landsins meiri athygli en góðu hófu gengdi. Ótrúlegt en þetta lið var þarna eins og leikurinn væri byrjaður - söng og lek öllum illum látum. Annars er eg allur að koma til eftir að hafa fengið flensu alla seinustu viku. Í dag var fyrsti dagurinn í langan tíma sem mér leið svona nokkurvegin eðlilega, en ákvað að hafa daginn í dag rólegan svo að mér slái ekki niður aftur eins og líklega gerðist a fimmtudag. Enda eins gott því það verður allt brjalað að gera næstu daga. Svo einfalt er það.

Saturday, 29 March 2008

jibeee

7 klst í heimferð - jibbbeeeeee

Thursday, 27 March 2008

1 dagur eftir

Jæja þá er ekki nema 1 dagur eftir þangað til það er kominn 29 Mars og ég er á leið til Íslands. Orðið alltof langt síðan ég kíkti heim og hlakka ekkert smá til:) Það markverðasta sem hefur gerst seinustu daga er að hugmynd að "social retailing channel" (veit ei hvernig hægt er að þýða það á íslensku - verslunarrás fyrir farsíma með félagslegu ívafi ha ha) hefur verið lögð fyrir aðila sem vinnur náið með Baug og honum leist vel á hugmyndina. Býst við að við höldum áfram að útfæra hugmyndina og leggjum svo í að kynna þetta fyrir Oasis, Karen Millen og fleiri verslunarkeðjum Baugs í apríl. Verður gaman að sjá hver viðbrögð þeirra verða - samt engin leið að giska á þau fyrirfram - en allavega næg vinna framundan í sambandi við það í Apríl. Er byrjaður að undirbúa heimferð - farinn að taka til og svona:) Líklega er það vegna þess að eg er svo spenntur - geri það venjulega aldrei eða ca 10 mín aður en ég fer út á völl:)

Wednesday, 26 March 2008

Órói á Íslandi

http://www.cnbc.com/id/15840232?video=696487936

Þetta er linkur fyrir viðtal við einn helsta hagfræðiprófessor London School of Economics um stöðuna á Íslandi. Þetta er keyrt á stærstu fjármálarásinni - sjónvarpsstöðinni sem flestir miðlarar út um allan heim hafa í gangi þegar þeir eru að vinna. Ég verð að segja að mér finnst það gersamlega ótrúlegt að lítil eyja út í ballarhafi sé að valda svona miklum usla. Hefur einhvern tíman verið umfjöllun um eitthvað samfélag segjum t.d. Brighton í UK - sem er álíka stórt um hvernig hagkerfið er að gera sig þar. Jú eða Möltu. Það góða við þetta viðtal er að prófessorinn segir að það sé í raun allt í himnalagi á Íslandi og þetta se bara usli sem megi rekja til miðlara út í heimi sem hafi veðjað á svokallaða skortsölu. Það er að segja að þeir veðja á að allt fari til fjandans á Íslandi - en ef það gerir það ekki þá tapa þeir peningum í massavís. Þess vegna nota þeir öll tækifæri til að tala Ísland niður í fjölmiðlum, sem smitar út frá sér osfrv. Það er í raun ekkert skrýtið þó að stórfyrirtæki eins og Baugur fjárfesti milljörðum í fjölmiðlafyrirtækji, jafnvel þó vitað sé að fyrirtækið eigi eftir að skila taprekstri í lengri tíma. Þetta einfaldlega getur skipt sköpum til lengri tíma.

Tuesday, 25 March 2008

Lítið sem gerðist í dag

Lítið sem gerðist í dag. Tveir fundir á morgun. Annar við Ragnar og hinn við almannatengslagúrú. Vonandi gerist meira a morgun en í dag.

Monday, 24 March 2008

Súshí-hlátur

Fór og fékk mér japanskan súshí páskamat áðan, sem er svo sem ekkert til að tala um - nema hvað að það fór að snjóa úti þegar eg var að klára að borða. Það voru fáir eftir á staðnum og við tókum öll eftir því að þjónustufólkið frá Japan var að tapa sér yfir þessum fáu snjókornum sem féllu. Höfðu líklega sjaldan eða aldrei séð svona nokk - þau voru hlaupandi um og hlæjandi og meira segja nokkur þeirra tóku upp myndavélina til að reyna að mynda þennan páskafögnuð. Þetta var náttúrlega aldrei neitt neitt - náði ekki einu sinni að festast föl á jörðina og allt búið eftir ca 10 mín. Það var síðan frekar fyndið þegar ég ætlaði að fara að koma mér heim og búinn að borga og svona - nema þá segir þjónninn hátt og snjallt þannig að allir heyrðu - ætlaði greinilega að vera mega fyndinn - en hann spyr "hvort að ég þori út í snjóinn". Eins og þetta væri eitthvað massa dæmi og jafnvel hættulegt. Ég svaraði og sagði honum að ég væri frá Íslandi - og allir í salnum lágu í krampa af hlátri yfir þessari uppákomu. Að sem sagt aumingja þjónninn hefði nú akkúrat þurft að hitta á Íslending til að spyrja þessara annars hálf kjánalegu spurningu. Síðan kom annað hláturkast frá öllum þegar hann spurði hvort að Ísland væri ekki alvega örugglega í Finlandi. Aumingja þjóninn var frekar skömmustulegur þegar ég fór - hafði gert sér grein fyrir að líklega hefði hann nú ekki verið alltof gáfulegur þennan daginn:) he he he