Thursday, 27 March 2008

1 dagur eftir

Jæja þá er ekki nema 1 dagur eftir þangað til það er kominn 29 Mars og ég er á leið til Íslands. Orðið alltof langt síðan ég kíkti heim og hlakka ekkert smá til:) Það markverðasta sem hefur gerst seinustu daga er að hugmynd að "social retailing channel" (veit ei hvernig hægt er að þýða það á íslensku - verslunarrás fyrir farsíma með félagslegu ívafi ha ha) hefur verið lögð fyrir aðila sem vinnur náið með Baug og honum leist vel á hugmyndina. Býst við að við höldum áfram að útfæra hugmyndina og leggjum svo í að kynna þetta fyrir Oasis, Karen Millen og fleiri verslunarkeðjum Baugs í apríl. Verður gaman að sjá hver viðbrögð þeirra verða - samt engin leið að giska á þau fyrirfram - en allavega næg vinna framundan í sambandi við það í Apríl. Er byrjaður að undirbúa heimferð - farinn að taka til og svona:) Líklega er það vegna þess að eg er svo spenntur - geri það venjulega aldrei eða ca 10 mín aður en ég fer út á völl:)

No comments: