Monday, 24 March 2008
Súshí-hlátur
Fór og fékk mér japanskan súshí páskamat áðan, sem er svo sem ekkert til að tala um - nema hvað að það fór að snjóa úti þegar eg var að klára að borða. Það voru fáir eftir á staðnum og við tókum öll eftir því að þjónustufólkið frá Japan var að tapa sér yfir þessum fáu snjókornum sem féllu. Höfðu líklega sjaldan eða aldrei séð svona nokk - þau voru hlaupandi um og hlæjandi og meira segja nokkur þeirra tóku upp myndavélina til að reyna að mynda þennan páskafögnuð. Þetta var náttúrlega aldrei neitt neitt - náði ekki einu sinni að festast föl á jörðina og allt búið eftir ca 10 mín. Það var síðan frekar fyndið þegar ég ætlaði að fara að koma mér heim og búinn að borga og svona - nema þá segir þjónninn hátt og snjallt þannig að allir heyrðu - ætlaði greinilega að vera mega fyndinn - en hann spyr "hvort að ég þori út í snjóinn". Eins og þetta væri eitthvað massa dæmi og jafnvel hættulegt. Ég svaraði og sagði honum að ég væri frá Íslandi - og allir í salnum lágu í krampa af hlátri yfir þessari uppákomu. Að sem sagt aumingja þjónninn hefði nú akkúrat þurft að hitta á Íslending til að spyrja þessara annars hálf kjánalegu spurningu. Síðan kom annað hláturkast frá öllum þegar hann spurði hvort að Ísland væri ekki alvega örugglega í Finlandi. Aumingja þjóninn var frekar skömmustulegur þegar ég fór - hafði gert sér grein fyrir að líklega hefði hann nú ekki verið alltof gáfulegur þennan daginn:) he he he
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Spurning hvernig móttökur þú færð næst þegar þú mætir á staðinn? ;)
Post a Comment