
Í dag er dekur og tiltekt - loksins. Byrjaði á að fara í gymið og svo á sushi staðinn minn góða. Þar prufaði ég alveg nýjan rétt og ég veit að þið trúið þessu ekki - en á matseðlinum þa pantaði ég Waygian Beef - það er að segja eitthvað sérstakt naut og þeir segja að því sé gefið bjór og saki (hrísgrjónavín) á hverjum degi og svo fær það nudd á hverjum degi. Retturinn var nattulega mega dýr - en það smakkaðist ekkert smá vel, er núna orðinn uppáhaldaretturinn minn:) fyrir utan miso supuna:)Siðan for eg sma ut í garð í letikast og sleikti sólina. Nuna er eg kominn heim og ætla að taka til enda ekki vanþörf á. Myndin er af bjórnautinu. Þannig nú er til bjórnaut og rækjuköttur he he
1 comment:
Ég mundi taka veeeeeeeel til því það er mús einhversstaðar á hlaupum að leita eftir nýju heimili! ;-)
Post a Comment