Monday, 10 March 2008

Veðrið mikla


Samkvæmt frettum Morgunblaðsins í morgun þá á að vera hér mesti stormur í manna minnum. Á myndinni sést hin raunverulega staða að einhverju leiti. Það er sem sagt algjört logn og sólskin. Einn og einn maður með regnhlíf. En kannski á þetta eftir að versna. En allavega þá frestði gæjinn sem ég ætlaði að hitta kl 9 í morgun, fundinum fram á miðvikudag. Ekki gott - þetta eru greinilega hálfgerðar gungur og ekki er það góðs viti. Myndin er sem sagt tekin út um gluggan hérna á fjórðu hæð á Warren Court. Með því að klikka á myndina sjáið þið að fólkið stendur bara þarna í mestu makindum sínum og gónir´út í loftið. Ef það væri fáviðri þá væri það að berjast við að standa - haldandi sér í næsta ljósastaur og svo framvegis:)

2 comments:

Anonymous said...

Hvaða spammer er farinn að kommenta hjá þér?!

Anonymous said...

ja þetta er partur af internetinu - opruttnir aðilar gera allt til að spamma - þetta er tölva sem gerir þetta sjalfkrafa a öll blog sem hun finnur og hefur comment moguleika