
Það var algjört úrhelli í dag og eg varð gersamlega hundvotur bara á því að labba yfir í líkamsræktina - sem er ekki nema 500m her fra. Sja mynd sem eg tok þegar eg var kominn þangað:) Var óneitanlega gott að fara í gufuna þar á eftir:) Núna næstu daga fer fjör að færast í leikinn og fáranlega stíft prógram framundan. Ég var að telja það en ég á eina 12 fundi bókaða á næstu 3 dögum. Það væri svo sem ekki frásögu færandi, nema að allir þessir fundir - já allir - eru á mismunandi stöðum í London. Það getur tekið svipaðan tíma að fara á milli staða og að fara frá Reykjavík til Selfoss - þetta er svo stórt. En það er rosalega mismunandi, en samt þá verður maður eiginlega alltaf að gera ráð fyrir að lestin tefjist eða bili - þannig að gróflega áætlað þa þarf maður 30-45 min a milli funda hvar sem þeir eru næstum því. Það er alltaf eitthvað í gangi í þessu blessað neðjanjarðakerfi. Hreint ótrúlegt hvað það er erfitt að treysta á það. En sem sagt þetta eru aðallega fundir við auglýsingastofur og fjárfesta. Ég byrja á fundi kl 9:30 í fyrramálið en það er fundurinn sem frestaðist frá mánudegi vegna þess að veðrið var svo slæmt þá að lestirnar gengu ekki. Verst að þeir spa slæmu veðri á morgun líka á nákvæmlega sama tíma og þessi frestaði fundur á að vera - það skildi þá aldrei vera að það þurfi að fresta honum aftur. Það væri ótrúlegt. Hef annars verið í dag að undirbúa kynninguna fyrir alla þessa fundi og er næstum því alveg búin með það. Ætla svo að skella mér í bað og slaka aðeins á þannig að mar sofni nú betur:)
No comments:
Post a Comment