
Þetta er hálf ótrúlegt en ég rakst á þessa mynd sem ég tók fyrir 3 árum - en hún er úr myndaseríunni sem ég tók hérna í London þegar hryðjuverkin voru og ég seldi til Reuters. Þessa mynd rakst ég óvart á á einhverju frönsku bloggi - fyrir algjöra tilviljun. Þessi mynd er líklega ein mest útbreyddasta mynd sem íslendingur hefur tekið. Enda var hún á forsíðu Reuters í þó nokkurn tíma og allir helstu fréttamiðlar heims keyptu af þeim á sínum tíma. t.d. var hún í bakgrunninum í kvöldfréttatíma RÚV - þannig RÚV hefur keypt af Reuters, sem keypti af mér he he þetta er náttúrlega lyginni líkast hvernig þetta gerist í heiminum í dag. Internetið og upplýsingatækin getur látið hlutina breiðast út með ógnarhraða - oft án þess að maður hafi hugmynd um. Þessi mynd er sem sagt tekin út um gluggan hérna á Warren Court þegar við vorum innilokuð vegna spreningar í kjallaranum hjá okkur (neðanjarðalestarkerfið er í kjallaranum hjá okkur - svona nokkurnveginn - kannski aðeins dýpra en í venjulegum kjallara)
No comments:
Post a Comment