Wednesday, 12 March 2008

Nóg að gera í dag

Búið að vera nóg að gera í dag. Fór á fund með markaðsmanninum hjá Promethayn Labs í morgun. Þeir vilja breyta um stefnu ef þeir koma inn. Ætlum að skoða þann möguleika og allavega sjá hvort að það næst einhver sameiginlegur rammi um málið. Sendi þeim viðskiptaáætlun sem næsta skref í greiningu þeirra. Vona að ég nái öðrum fundi með þeim fyrir helgi. Var síðan með símafund með Chad Smith og Dave félaga hans, en þessi Dave er víst aðila sem er að vinna hjá Deloitte í Bandaríkunum (hefur verið þar í 6 ár) og hann sem sagt á að vera með Chad í fullri vinnu ef að þeir ná að afla fjármagns í USA. Þeir hafa verið að vinna með viðskiptaáætlunina og laga hana að aðstæðum í USA - sem er mér að kostnaðarlausu og í sjálfu sér gott mál því það verður að aðlaga þetta að aðstæðum á hverjum markaði. Málin fara reyndar að flækjast æði mikið núna, og þá sérstaklega næstu daga þegar eg fer að hitta fleiri. Staðan er þannig að ég er að finna Redspray nýjan farveg til að vaxa í og þá þýðir ekki að hafa bara einn valmöguleika - en hver og einn farvegur vil auðvitað ekki að hin sé til staðar til að auka samkeppni á milli "farvega". Einnig flækir það stöðuna ef aðilar vilja setja inn stefnubreytingu því að það getur verið erfitt. Á morgun mun ég svo hitta John Rudolvsky en hann er yfirmaður allar markaðsmála hjá Vodafone í heiminum. Mega big shot. Einnig mun ég hitta auglýsingastofu sem sérhæfir sig í stafrænum miðlum og eru mjög framarlega á sínu svið t.d. vinnur náið með Microsoft en þeir gætu haft áhuga á að vera með í þróuninni og hugsanlega kynna þetta fyrir sínum kúnahóp. Einnig mun ég hitt aðila frá Akqa en það er auglýsingastofan sem ég hitti vegna Smirnoff - en ég hitti yfirmann þess um daginn og núna er ég sem sagt að hitta undirmann hans í stofunni sem sérhæfa sig sérstaklega á farsímasviðinu. Þannig nóg að gera á morgun.

Það sem flestir virðast vera að "fíla" er þessi endurskilgreining á staðsetningu og framtíðarsýn sem ég gerði fljótlega eftir að Graham og Santosh fóru út úr þessu. Það er að segja að framtíðarsýnin sé "social browser for mobile phones" - sem ég ætla ekki að reyna að þýða á íslensku - jú ok bein þýðing er "félagslegur vafrari fyrir farsíma" ha ha

No comments: