Saturday, 1 March 2008

Bóla Blátannar Haraldar konungs

Hann Haraldur konungur Danmörku á 10 öldinni, hefði líklega átt erfitt með að ímynda sér hvað blessuð tönnin á honum hefur orðið núna 1000 árum seinna. Hann sem sagt var frægur fyrir að koma á sáttum milli stríðandi fylkinga, sem síðan varð grunnurinn að Svíþjóð, Noregur og Danmörk, eins og þau landsvæði eru afmörkuð í dag. Þannig er nafnið komið frá honum, og yfirfært á nýja stafræna merkingu í dag - svona á svipaðan hátt og Blátannar tæknin á að koma á betri samskiptum milli aðila - en þó eflaust ekki á jafn hatraman hátt eins og þetta var á 10 öldinni.

Þessi blátannartækni er grunnurinn í þeirri hugbúnaðarlausn sem við notum í Redspray í dag. Þið getið séð á myndinni, hvernig hver einstaklingur sem notar þessa lausn, verður með svona Blátannar bólu í kringum sig (ca 15 metrar radíus) - þessi bóla er í raun bara útvarpsbylgjur sem flytja boð til farsímans ef eitthvað kemur inn í þennan radíus í kringum síman sem þau geta skilið. Þannig að ef annar einstaklingur með sama hugbúnað kemur innan hvors annars radíusar, þá tala símarnir saman - án þess að einstaklingurinn viti af því - og láta síðan viðkomandi einstakling vita með hljóðmerki eða öðrum aðferðum t.d. hvor að þessi nýi (utanaðkomandi aðili) er eitthvað þess virði að skoða betur. Þannig mun þetta vera bara byrjunin á mikið stærra máli sem snýr að samskiptum yfirhöfuð. Það er nokkuð ljóst að samskipti eru allstaðar t.d. eru það samskipti þegar einhver kaupir eitthvað, eða einhver sér auglýsingu einhverstaðar - annað hvort gagnvirk eða bara í aðra hvora áttina. Þannig mun þetta verða notað í framtíðinni - bólan sem þú verður með í kringum þig mun vinna fyrir þig á allan hátt - ath hvort að einhver athyglisverður afsláttur í verlun sé til staðar, ath hvort að einstaklingurinn sé "nógu spennandi", ath hvort að einhver aðili gæti verið að auglýsa bílinn sinn til sölu og láta þig vita ef þú hefur sagt símanum að þú sert að leita að svipuðum bíl, ath hvort að viðkomandi einstaklingur sé að vinna í sömu atvinnugrein og ef svo þá spyrja þig hvort að þú viljir vista viðkomandi kontact þannig að þið getið verið í sambandi seinna (nafnspjöld munu heyra sögunni til) og svona gæti ég haldið lengi afram - í stórum dráttum þá getur þetta snúið að öllum samskiptum milli tveggja einstaklinga eða einstaklings og tölvu - og það eru nokkur vegin öll samskipti sem gerast í heiminum í dag.

Með þessu móti breytist einnig það sem kallað er "Social Identity" og ég veit ekkert hvernig á að þýða á íslensku - líklega bara "hver maður er gagnvart umhverfinu" - því að þú ert ekki bara a) hvernig þú lítur út og b) hvað þú segir. Það eru þeir tveir grunnþættir sem allir mynda sýna skoðun á þér á - núna mun bætast við hvernig og hvað þú segir tölvunni í símanum. Þannig verðu það partur af því hver þú ert. T.d. hvaða langanir þú hefur og ert í raun bara að hugsa um í dag (þessar hugsanir standa ekki á enninu á þér og þú talar ekki endilega um þær) - en þú getur látið tölvuna vita og svo lætur hún þig vita ef eitthvað sem kemur inn í bóluna hans Haraldar fittar við það sem þú ert að hugsa.

Vona að þessar bólupælingar hafi ekki verið of flóknar:)