
Í dag gerðist það. Hér til hliðar má sjá "eftir-mynd", en vegna þess að þetta blogg er ekki læst og það gætu því leynst viðkvæmar sálir sem skoða bloggið - var ákveðið að sýna ekki "fyrir-mynd". Eins og sjá má var verkið þó nokkuð að umfangi og flokkast hjá mér sem 3ja umferða uppvask - þar sem skipta þurfti um vatn þrisvar sinnum. Einnig er þetta góð leið til að gera vörutalningu, því að þarna á myndinni er því allt leirtau/pottar/hnífapör sem til eru á heimilinu. Njótið þessa að greina myndina en örvæntið ekki - því svona mynd mun örugglega koma fyrir mannasjónir aftur með rísandi sól.
No comments:
Post a Comment