Friday, 14 March 2008

Fundir í dag


Rakst á þessa mynd í niður í neðanjarðalestakerfinu. Frekar fyndið að sjá kallana sem voru alltaf fyrir utan hjá mér á Tryggvagötunni - lifna við hérna í neðanjarðalestarkerfinu. Eg bara varð að taka mynd af þeim:)

Dagurinn í dag var æði fjörlegur. Hófst hann með því að hitta Svía einn kl 8 um morgunin en hann hefur yfirumsjón með stefnumálum hjá McDonalds skyndibitakeðjunni. Hann var sem sagt á leiðinni til Svíþjóðar og vildi hitta mig á stuttum fundi á Starbucks til að ræða málin áður en hann tæki lestina út á flugvöll. Heyrðu gæinn varð svo spenntur yfir Redspray og hvernig þetta allt gæti hentað McDonalds að hann bað mig um að koma með sér í lestina út á flugvöll - hann myndi borga:) he he aldrei nokkurtíman hef ég fengið boð um svona nokk. Og það kl 8:30 um morguninn. Ég var því miður með fund eftir 1klst við endurskoðandan sem eg gat ekki frestað þannig eg varð að afþakka gott boð. Í staðin þá hringdi hann í mig í lestina og við spjölluðum saman dágóða stund - ég í strætó og hann í lestinni. Half ótrúleg byrjun á deginum. Síðan hitti ég endurskoðandan og við komumst að því samkomulagi að snúa hans og hans fyrirtækis vinnu allt seinasta ár yfir í hlutafé. Reikningurinn var að nálgast milljónina ísl.kr - þannig að hann fær 0.5% eign í staðinn. Er mjög sáttur við þetta því að "cash is the king" í svona áhætturekstri. Næst hitti ég Azeem - hann er mjög þekktur í bransanum í London, var t.d. yfirmaður nýsköpunarmála hja Reuters og er td. í stjórn Freewire en þeir eru með sjónvarpstöð fyrir stúdenta í netinu sem er búinn að stækka hratt. Þeir nota t.d. middleware frá Industria en það er fyrirtækið sem Guðjón Már fyrirverandi Oz-ari stofnaði. Seinasti fundurinn var síðan með athyglisverðum gæja svo ég segi nu ekki meira. Hann sem sagt sá um útboð breska ríkisins á 3G leyfinu til farsímafyrirtækja. Það leyfi útvegaði breska ríkinu um 2.6 billjónir breskra punda a sínum tíma - þannig að eðlilega þekkir hann mann og annann. Á þeim fundi kom aftur á móti upp ný og athyglisverð hugmynd sem ég hreinilega má ekki segja frá hvers eðli er. Ástæðan er sú að hann er að gera fjandsamlega yfirtöku á fyrirtæki upp á 11 milljarða íslkr. og það er ekki komið í gegn enn. EF það gengur upp þá er mjög líklegt að Redspray myndi fara í samstarf við þetta fyrirtæki því að hann var greinilega að fíla dæmið. Hugsanlega myndi hann einnig hjálpa við að finna þá fjármagn fyrir Redspray. Næsta skref er að láta hann skrifa undir leyndarsamning.

Þannig ég kom heim áðan og er svoleiðis gersamlega búinn a því að einn tíundi væri nóg.

Þetta skal takast. arg. punktur

No comments: