Wednesday, 5 March 2008
Stuttbuxurnar mínar
Ég gleymdi stuttubuxunum mínum í líkamsrækt í gær og ákvað EKKI að leita að þeim í dag. Ástæðan er sú að þær voru orðnar svo slitnar að ég var hættur að þora að vera í þeim. Illa götóttar, enda keyptar fyrir 8 árum í USC í Los Angeles og ekki virðulegum tungnamanni sæmandi í raun. Ég hafði samt þrjóskast (eg er með gríðarlega ríkjandi og ráðríkt þrjóskugen) við að fá mér nýjar. En núna var komið að því - þær ákváðu sjálfar að nú væri nóg komið og viðskilnaðurinn var ekkert svo sár. Því voru góð ráð dýr áðan þegar ég ákvað að fara aftur. Ekki hafði fundist tími yfir daginn að fara út í búð og fjárfesta í nýjum grip. Þá mundi ég eftir því að betri helmingurinn hafði jú gefið mér eitt stykki í fyrra. Þær voru dregnar upp og ég sæll og ánægður ákvað því að prufukeyra þær í kvöld. Skellti mér í sund - en þá gerðist það - í þessum svakalega skriðsundssnúning sem ég tók - þá bara ákváðu þær að skilja við mig líka. En á öllu verri stað - eða í miðri sundlauginni. Það var greinilegt að betri helmingurinn hafði haldið mig feitari en ég var í raun, því það var ekki hægt að festa þær nógu vel - og það var eina sárauppbótin sem ég fekk við þetta frekar neyðarlega tilfelli. Sem betur fer voru nú ekki margir í sundlauginni en ég sá þarna allavega einn mann í eldri kantinu skella upp úr Ha ha
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ég keypti handa þér stuttbuxur til að ganga um í, ekki til að synda í!! Ég keypti sundskýlu handa þér í fyrra sem tollir og er til að synda í!!
Post a Comment