Saturday, 29 March 2008
Thursday, 27 March 2008
1 dagur eftir
Jæja þá er ekki nema 1 dagur eftir þangað til það er kominn 29 Mars og ég er á leið til Íslands. Orðið alltof langt síðan ég kíkti heim og hlakka ekkert smá til:) Það markverðasta sem hefur gerst seinustu daga er að hugmynd að "social retailing channel" (veit ei hvernig hægt er að þýða það á íslensku - verslunarrás fyrir farsíma með félagslegu ívafi ha ha) hefur verið lögð fyrir aðila sem vinnur náið með Baug og honum leist vel á hugmyndina. Býst við að við höldum áfram að útfæra hugmyndina og leggjum svo í að kynna þetta fyrir Oasis, Karen Millen og fleiri verslunarkeðjum Baugs í apríl. Verður gaman að sjá hver viðbrögð þeirra verða - samt engin leið að giska á þau fyrirfram - en allavega næg vinna framundan í sambandi við það í Apríl. Er byrjaður að undirbúa heimferð - farinn að taka til og svona:) Líklega er það vegna þess að eg er svo spenntur - geri það venjulega aldrei eða ca 10 mín aður en ég fer út á völl:)
Wednesday, 26 March 2008
Órói á Íslandi
http://www.cnbc.com/id/15840232?video=696487936
Þetta er linkur fyrir viðtal við einn helsta hagfræðiprófessor London School of Economics um stöðuna á Íslandi. Þetta er keyrt á stærstu fjármálarásinni - sjónvarpsstöðinni sem flestir miðlarar út um allan heim hafa í gangi þegar þeir eru að vinna. Ég verð að segja að mér finnst það gersamlega ótrúlegt að lítil eyja út í ballarhafi sé að valda svona miklum usla. Hefur einhvern tíman verið umfjöllun um eitthvað samfélag segjum t.d. Brighton í UK - sem er álíka stórt um hvernig hagkerfið er að gera sig þar. Jú eða Möltu. Það góða við þetta viðtal er að prófessorinn segir að það sé í raun allt í himnalagi á Íslandi og þetta se bara usli sem megi rekja til miðlara út í heimi sem hafi veðjað á svokallaða skortsölu. Það er að segja að þeir veðja á að allt fari til fjandans á Íslandi - en ef það gerir það ekki þá tapa þeir peningum í massavís. Þess vegna nota þeir öll tækifæri til að tala Ísland niður í fjölmiðlum, sem smitar út frá sér osfrv. Það er í raun ekkert skrýtið þó að stórfyrirtæki eins og Baugur fjárfesti milljörðum í fjölmiðlafyrirtækji, jafnvel þó vitað sé að fyrirtækið eigi eftir að skila taprekstri í lengri tíma. Þetta einfaldlega getur skipt sköpum til lengri tíma.
Þetta er linkur fyrir viðtal við einn helsta hagfræðiprófessor London School of Economics um stöðuna á Íslandi. Þetta er keyrt á stærstu fjármálarásinni - sjónvarpsstöðinni sem flestir miðlarar út um allan heim hafa í gangi þegar þeir eru að vinna. Ég verð að segja að mér finnst það gersamlega ótrúlegt að lítil eyja út í ballarhafi sé að valda svona miklum usla. Hefur einhvern tíman verið umfjöllun um eitthvað samfélag segjum t.d. Brighton í UK - sem er álíka stórt um hvernig hagkerfið er að gera sig þar. Jú eða Möltu. Það góða við þetta viðtal er að prófessorinn segir að það sé í raun allt í himnalagi á Íslandi og þetta se bara usli sem megi rekja til miðlara út í heimi sem hafi veðjað á svokallaða skortsölu. Það er að segja að þeir veðja á að allt fari til fjandans á Íslandi - en ef það gerir það ekki þá tapa þeir peningum í massavís. Þess vegna nota þeir öll tækifæri til að tala Ísland niður í fjölmiðlum, sem smitar út frá sér osfrv. Það er í raun ekkert skrýtið þó að stórfyrirtæki eins og Baugur fjárfesti milljörðum í fjölmiðlafyrirtækji, jafnvel þó vitað sé að fyrirtækið eigi eftir að skila taprekstri í lengri tíma. Þetta einfaldlega getur skipt sköpum til lengri tíma.
Tuesday, 25 March 2008
Lítið sem gerðist í dag
Lítið sem gerðist í dag. Tveir fundir á morgun. Annar við Ragnar og hinn við almannatengslagúrú. Vonandi gerist meira a morgun en í dag.
Monday, 24 March 2008
Súshí-hlátur
Fór og fékk mér japanskan súshí páskamat áðan, sem er svo sem ekkert til að tala um - nema hvað að það fór að snjóa úti þegar eg var að klára að borða. Það voru fáir eftir á staðnum og við tókum öll eftir því að þjónustufólkið frá Japan var að tapa sér yfir þessum fáu snjókornum sem féllu. Höfðu líklega sjaldan eða aldrei séð svona nokk - þau voru hlaupandi um og hlæjandi og meira segja nokkur þeirra tóku upp myndavélina til að reyna að mynda þennan páskafögnuð. Þetta var náttúrlega aldrei neitt neitt - náði ekki einu sinni að festast föl á jörðina og allt búið eftir ca 10 mín. Það var síðan frekar fyndið þegar ég ætlaði að fara að koma mér heim og búinn að borga og svona - nema þá segir þjónninn hátt og snjallt þannig að allir heyrðu - ætlaði greinilega að vera mega fyndinn - en hann spyr "hvort að ég þori út í snjóinn". Eins og þetta væri eitthvað massa dæmi og jafnvel hættulegt. Ég svaraði og sagði honum að ég væri frá Íslandi - og allir í salnum lágu í krampa af hlátri yfir þessari uppákomu. Að sem sagt aumingja þjónninn hefði nú akkúrat þurft að hitta á Íslending til að spyrja þessara annars hálf kjánalegu spurningu. Síðan kom annað hláturkast frá öllum þegar hann spurði hvort að Ísland væri ekki alvega örugglega í Finlandi. Aumingja þjóninn var frekar skömmustulegur þegar ég fór - hafði gert sér grein fyrir að líklega hefði hann nú ekki verið alltof gáfulegur þennan daginn:) he he he
Saturday, 22 March 2008
Stefnumótunarfundur

Það var stefnumótunarfundur hjá mér og Ashwin á fimmtudaginn. Eins og sjá má á nótunum þá var ýmislegt rætt og pælt á þeim fundi - enda staðan æði vandasöm í dag. Ég er ekki viss um að við höfum farið eftir öllu hefðbundnu fræðilegu stefnumótunar leiðunum:) Eins gott að það þarf engin annar að lesa þetta en ég sjálfur. Er annars að bíða eftir að Friðrik Larsen komi í heimsókn - en hann var á leið til London frá Birmingham aðan og ætlar að kíkja við. Friðrik er gamall félagi minn síðan í frjálsum íþróttum í gamla daga en hann var minn helsti keppninautur í 400m hlaupi. Hann er að taka doktorsgráðuna í markaðsfræðum í Birmingham núna. Er bara búinn með 1 ár af 4-5 held eg. Hann keypti líka 3% í Redspray.
Wednesday, 19 March 2008
Ferðaplön
Ferðaplön til Íslands eru eftirfarandi. Kem heim 29 Mars, fer út aftur 7 April. Kem svo aftur heim 24 april og út 1 Maí. Þa kemur Þórunn með mer ut og verður í 2 vikur. Síðan gæti vel verið að ég komi þá líka með henni heim (14 maí) - eða fljótlega eftir það og verði í viku - en það fer alveg eftir stöðu vinnumála á þeim tímapunkti.
Tuesday, 18 March 2008
Gardínur
Ég ákvað að láta verða af því sem ég hef aldrei gert á ævinni áður, eða að þvo gardínur:) - þær voru orðnar svartar - ætlaði sem sagt að koma Þórunni á óvart en svo tókst það ekki, því hún kom ekki. En þetta er samt frekar ótrúlegt með mig og Ásthildi - oft eru við ótrúlega samstíga/sammála - en sem sagt þegar eg akvað að þvo mínar hér í London, þá ákvað hún að gera það líka í Frostaskjólinu. Þetta verður að túlkast sem ótrúleg tilviljun því þetta eru ekki svo tíðar athafnir. Þórunn sagði mér þetta bara af rælni á mánudeginum - en já svona er þetta ha ha
Monday, 17 March 2008
Afmæli, afmæli, afmæli

Sunday, 16 March 2008
Björk - Tíbet - Tíbet
Þetta vídeo (ýtið á örina á glugganum fyrir ofan) sem tekið á farsíma á tónleikum Bjarkar í Shanghai í Kína er ótrúlegt. Nær að fanga stemminguna og svo þegar Björk segir "Tíbet", "Tíbet" þarna á milli hins hefðbundna texta. Það má segja að það hafi á ákveðinn hátt hjálpað til við að hrinda af stað nýrri bylgju af óróa í Tíbet. Það er nákvæmlega svona sem hlutirnir geta gerst. Hin svokölluðu "fiðrildaáhrif" (butterfly-effects)
Þetta minnir mig á það sem gerðist í Chicago fyrir nokkrum áratugum og sýnir hvað það þarf oft lítið til að leiða breytingar sem geta skipt sköpum. Það sem gerðist í Chicago var að það var eldri kona sem var búinn að fá nóg af glæpum í borginni - var búið að vera sérlega slæmt víst. Hún tekur sig því til og ákveður að mótmæla. Hún fer aftur á móti ekki hina hefðbundnu leið. Hún tekur stólinn sinn, hendir öllu út úr herberginu og sest niður. Síðan situr hun þarna og líður og bíður. Þangað til að einhver nágranni tekur eftir þessu og fer að spyrja hana út í afhverju hun sitji þarna. Hun segir honum það og hann helt að hún væri orðin alveg rugluð. Síðan frettir nágranninn hinu meginn þetta og svo endar það með því að fréttaritari héraðsblaðsins kemst að þessu. Kemur og gerir stutta frett um hana. Þetta leiðir síðan til þess að fólk fer að gera ser ferð til að sjá húsið og alltaf stækkar hópurinn sem veit af þessu. Málið endar síðan á forsíðu allra helstu blaða og samkvæmt rannsóknum sem gerðar voru nokkrum árum síðan, þá mátti rekja breytingar í glæpatíðni borgarinnar til þessara tímamóta mótmælaaðgerða sem hún gerði. Gersamlega ótrúlegt. Þetta er það sem maður kallar alvöru leiðtoga. Vona að Björk hafi komið einhverju svipuðu af stað.
Þetta minnir mig á það sem gerðist í Chicago fyrir nokkrum áratugum og sýnir hvað það þarf oft lítið til að leiða breytingar sem geta skipt sköpum. Það sem gerðist í Chicago var að það var eldri kona sem var búinn að fá nóg af glæpum í borginni - var búið að vera sérlega slæmt víst. Hún tekur sig því til og ákveður að mótmæla. Hún fer aftur á móti ekki hina hefðbundnu leið. Hún tekur stólinn sinn, hendir öllu út úr herberginu og sest niður. Síðan situr hun þarna og líður og bíður. Þangað til að einhver nágranni tekur eftir þessu og fer að spyrja hana út í afhverju hun sitji þarna. Hun segir honum það og hann helt að hún væri orðin alveg rugluð. Síðan frettir nágranninn hinu meginn þetta og svo endar það með því að fréttaritari héraðsblaðsins kemst að þessu. Kemur og gerir stutta frett um hana. Þetta leiðir síðan til þess að fólk fer að gera ser ferð til að sjá húsið og alltaf stækkar hópurinn sem veit af þessu. Málið endar síðan á forsíðu allra helstu blaða og samkvæmt rannsóknum sem gerðar voru nokkrum árum síðan, þá mátti rekja breytingar í glæpatíðni borgarinnar til þessara tímamóta mótmælaaðgerða sem hún gerði. Gersamlega ótrúlegt. Þetta er það sem maður kallar alvöru leiðtoga. Vona að Björk hafi komið einhverju svipuðu af stað.
Guy
Dagurinn fór í að undirbúa fund kl 11 í fyrramálið við Guy - en það er vinur Steve 3G. Verður athyglisvert að heyra meira um þessa fjandsamlegu yfirtöku sem þeir eru að gera upp á GBP 80 milljónir. Því ef þetta er að takast hjá þeim - þá ætla ég að reyna að fá samning við þá. Með þann samning í vasanum ætti að reynast mikið auðveldara að finna fjármagn. Þannig það verður athyglisvert að heyra álit Guy á morgun. Eg vona að þeir seu að fara að klára yfirtökuna á innan við 5-6 vikum.
Saturday, 15 March 2008
Slys fyrir utan blokkina

Það var frekar óhuggnanlegt að heyra óhljóðin greinilega út um gluggan áðan, en það hafði orðið slys á milli fólksbíls og vespu. Það tók lögregluna og sjúkrabílinn þónokkurn tíma að koma a staðinn - líklega 10 min. Samt var þetta við hliðina á stærsta sjúkrahúsi Bretlands - ofast kallaður - super-hospital. Síðan ætlið þessu ekki að linna og ég taldi eina 8 bíla þegar mest var og um 17 löggur og lækna. Ótrúlegt - efast um að lögreglan í Rvk gæti leyft ser að senda svona marga. Núna skil ég aftur ég heyri sírenu hljóð 24 klst á sólarhring. Þeir eru ótrúlegir. 8 bílar - svona svipað og þegar hryðjuverkin voru. Einnig vakti það furðu mína - þó það sé örugglega gildar ástæður fyrir því - en sjúkrabíllinn fór ekki af stað fyrr en uþb 15 min eftir að sá slasaði var kominn upp í bílinn. Jafnvel þó að sjúkrahúsið væri við hliðina. En aumingja maðurinn - og þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir að ég vil ekki sjá það að vera að keyra um a vespu í London - eins og stór hópur fólks gerir - umferðin hérna er sú allra versta sem ég hef kynnst og hef eg kynnst þeim nokkrum (ok þessi í Karíó í Egyptalandi var verri). Það keyra allir eins og allir viti nákvæmlega hvað næsti bíl gerir - upp á meter - svo ef einn bíl gerir eitthvað aðeins öðruvísi en flestir búast við - þá er líklegra en ekki að slys verði. Enginn sens gefinn - annað hvort kantu á kerfið eða þú ert bara keyrður niður. Það er allavega mín reynsla af þeim ökuferðum sem ég hef farið í her í London. Þá er nú betra að vera aðeins lengur í neðanjarðarlestunum (þeas ef maður gerir rað fyrir að þær bili eða seinki eins og gerist í helmningi tilvika).
Steve 3G
Var að lesa mig meira til um hvað Steve, þessi sem ég hitti í gær, var að stýra þegar hann hélt uppboð á 3G kynslóðarleyfinu fyrir bresku ríkisstjórnina. Er núna öllu fróðari með það. Hreint ótrúlegt. Upphæðin var jú öllu hærri en ég held - þeas ekki 3 billjónir punda heldur 22 billjónir punda. Það er um það bil tvö og hálf prósent af þjóðarframleiðslu breta ár hvert. Hvorki meira ne minna. Þessi færsla hefur siðan verið stúderuð af fræðimönnum all mikið því að það er talað um að þetta sér stærsta uppboð sem nokkurn tíman hefur verið haldið í heiminum - og það sem flestir benda einnig á var að það var í raun bara verið að selja loftið! Hreint ótrúlegt og kannski ekkert skrýtið að maðurinn sé frægur fyrir þetta. Þetta eru jú 3168 milljarðar ísl kr fyrir að selja loftið eitt saman. Það er ekki slæmt:) ha ha Gersamlega ótrúlegt. Nú er bara að negla gæjann í að ná í fjármagn fyrir Redspray ha ha
Friday, 14 March 2008
Fundir í dag

Rakst á þessa mynd í niður í neðanjarðalestakerfinu. Frekar fyndið að sjá kallana sem voru alltaf fyrir utan hjá mér á Tryggvagötunni - lifna við hérna í neðanjarðalestarkerfinu. Eg bara varð að taka mynd af þeim:)
Dagurinn í dag var æði fjörlegur. Hófst hann með því að hitta Svía einn kl 8 um morgunin en hann hefur yfirumsjón með stefnumálum hjá McDonalds skyndibitakeðjunni. Hann var sem sagt á leiðinni til Svíþjóðar og vildi hitta mig á stuttum fundi á Starbucks til að ræða málin áður en hann tæki lestina út á flugvöll. Heyrðu gæinn varð svo spenntur yfir Redspray og hvernig þetta allt gæti hentað McDonalds að hann bað mig um að koma með sér í lestina út á flugvöll - hann myndi borga:) he he aldrei nokkurtíman hef ég fengið boð um svona nokk. Og það kl 8:30 um morguninn. Ég var því miður með fund eftir 1klst við endurskoðandan sem eg gat ekki frestað þannig eg varð að afþakka gott boð. Í staðin þá hringdi hann í mig í lestina og við spjölluðum saman dágóða stund - ég í strætó og hann í lestinni. Half ótrúleg byrjun á deginum. Síðan hitti ég endurskoðandan og við komumst að því samkomulagi að snúa hans og hans fyrirtækis vinnu allt seinasta ár yfir í hlutafé. Reikningurinn var að nálgast milljónina ísl.kr - þannig að hann fær 0.5% eign í staðinn. Er mjög sáttur við þetta því að "cash is the king" í svona áhætturekstri. Næst hitti ég Azeem - hann er mjög þekktur í bransanum í London, var t.d. yfirmaður nýsköpunarmála hja Reuters og er td. í stjórn Freewire en þeir eru með sjónvarpstöð fyrir stúdenta í netinu sem er búinn að stækka hratt. Þeir nota t.d. middleware frá Industria en það er fyrirtækið sem Guðjón Már fyrirverandi Oz-ari stofnaði. Seinasti fundurinn var síðan með athyglisverðum gæja svo ég segi nu ekki meira. Hann sem sagt sá um útboð breska ríkisins á 3G leyfinu til farsímafyrirtækja. Það leyfi útvegaði breska ríkinu um 2.6 billjónir breskra punda a sínum tíma - þannig að eðlilega þekkir hann mann og annann. Á þeim fundi kom aftur á móti upp ný og athyglisverð hugmynd sem ég hreinilega má ekki segja frá hvers eðli er. Ástæðan er sú að hann er að gera fjandsamlega yfirtöku á fyrirtæki upp á 11 milljarða íslkr. og það er ekki komið í gegn enn. EF það gengur upp þá er mjög líklegt að Redspray myndi fara í samstarf við þetta fyrirtæki því að hann var greinilega að fíla dæmið. Hugsanlega myndi hann einnig hjálpa við að finna þá fjármagn fyrir Redspray. Næsta skref er að láta hann skrifa undir leyndarsamning.
Þannig ég kom heim áðan og er svoleiðis gersamlega búinn a því að einn tíundi væri nóg.
Þetta skal takast. arg. punktur
Thursday, 13 March 2008
Aumingja þvottagrindin
Wednesday, 12 March 2008
Varaformaður umhverfisnefndar ???
Hvaða alsherjar rugl er þetta - hvað er Kjartan Ólafsson að gera sem varaformaður umhverfisnefndar???' Maðurinn er einn alherjar umhverfisandstæðingur. Einhvernveginn hélt ég alltaf að í þá nefnt ætti að velja fólk sem væri að vernda umhverfið - eða hvert er hlutverk þessarar nefndar ef það er ekki það. Og til hvers þá að hafa nefndarmenn sem eru á móti umhverfisvernd í þeirri nefnd - ég bara því miður skil ekki hvað er í gangi hérna.
Nóg að gera í dag
Búið að vera nóg að gera í dag. Fór á fund með markaðsmanninum hjá Promethayn Labs í morgun. Þeir vilja breyta um stefnu ef þeir koma inn. Ætlum að skoða þann möguleika og allavega sjá hvort að það næst einhver sameiginlegur rammi um málið. Sendi þeim viðskiptaáætlun sem næsta skref í greiningu þeirra. Vona að ég nái öðrum fundi með þeim fyrir helgi. Var síðan með símafund með Chad Smith og Dave félaga hans, en þessi Dave er víst aðila sem er að vinna hjá Deloitte í Bandaríkunum (hefur verið þar í 6 ár) og hann sem sagt á að vera með Chad í fullri vinnu ef að þeir ná að afla fjármagns í USA. Þeir hafa verið að vinna með viðskiptaáætlunina og laga hana að aðstæðum í USA - sem er mér að kostnaðarlausu og í sjálfu sér gott mál því það verður að aðlaga þetta að aðstæðum á hverjum markaði. Málin fara reyndar að flækjast æði mikið núna, og þá sérstaklega næstu daga þegar eg fer að hitta fleiri. Staðan er þannig að ég er að finna Redspray nýjan farveg til að vaxa í og þá þýðir ekki að hafa bara einn valmöguleika - en hver og einn farvegur vil auðvitað ekki að hin sé til staðar til að auka samkeppni á milli "farvega". Einnig flækir það stöðuna ef aðilar vilja setja inn stefnubreytingu því að það getur verið erfitt. Á morgun mun ég svo hitta John Rudolvsky en hann er yfirmaður allar markaðsmála hjá Vodafone í heiminum. Mega big shot. Einnig mun ég hitta auglýsingastofu sem sérhæfir sig í stafrænum miðlum og eru mjög framarlega á sínu svið t.d. vinnur náið með Microsoft en þeir gætu haft áhuga á að vera með í þróuninni og hugsanlega kynna þetta fyrir sínum kúnahóp. Einnig mun ég hitt aðila frá Akqa en það er auglýsingastofan sem ég hitti vegna Smirnoff - en ég hitti yfirmann þess um daginn og núna er ég sem sagt að hitta undirmann hans í stofunni sem sérhæfa sig sérstaklega á farsímasviðinu. Þannig nóg að gera á morgun.
Það sem flestir virðast vera að "fíla" er þessi endurskilgreining á staðsetningu og framtíðarsýn sem ég gerði fljótlega eftir að Graham og Santosh fóru út úr þessu. Það er að segja að framtíðarsýnin sé "social browser for mobile phones" - sem ég ætla ekki að reyna að þýða á íslensku - jú ok bein þýðing er "félagslegur vafrari fyrir farsíma" ha ha
Það sem flestir virðast vera að "fíla" er þessi endurskilgreining á staðsetningu og framtíðarsýn sem ég gerði fljótlega eftir að Graham og Santosh fóru út úr þessu. Það er að segja að framtíðarsýnin sé "social browser for mobile phones" - sem ég ætla ekki að reyna að þýða á íslensku - jú ok bein þýðing er "félagslegur vafrari fyrir farsíma" ha ha
Tuesday, 11 March 2008
Rigning

Monday, 10 March 2008
Veðrið mikla

Samkvæmt frettum Morgunblaðsins í morgun þá á að vera hér mesti stormur í manna minnum. Á myndinni sést hin raunverulega staða að einhverju leiti. Það er sem sagt algjört logn og sólskin. Einn og einn maður með regnhlíf. En kannski á þetta eftir að versna. En allavega þá frestði gæjinn sem ég ætlaði að hitta kl 9 í morgun, fundinum fram á miðvikudag. Ekki gott - þetta eru greinilega hálfgerðar gungur og ekki er það góðs viti. Myndin er sem sagt tekin út um gluggan hérna á fjórðu hæð á Warren Court. Með því að klikka á myndina sjáið þið að fólkið stendur bara þarna í mestu makindum sínum og gónir´út í loftið. Ef það væri fáviðri þá væri það að berjast við að standa - haldandi sér í næsta ljósastaur og svo framvegis:)
Sunday, 9 March 2008
Rólegur sunnudagur
Voðalega rólegur sunnudagur. Var að bóka fundi fyrir vikuna og horfði svo á Egil í hádeginu. Meira segja sá þáttur var frekar rólegur - lítið tekist á enda hálfgerð gúrkutíð í fjölmiðlum. Það var helst jafntefli Aresenal sem reddaði málunum:) Liverpool ekki nema 10 stigum á eftir toppliðinu núna:) - en líklega of seint því það eru svo fáir leikir eftir. A morgun er eg svo að fara a fund kl 9 í fyrramálið þar sem eg er að fara a seinni fund með einum fjarfestinum (þessi með skrítnu nöfnin:) - hann vill skoða markaðsmál. Sjáum hvað kappinn segir. Fer því snemma að sofa í kvöld:)
Saturday, 8 March 2008
Reuters myndin mín

Friday, 7 March 2008
Emotiv
http://emotiv.com/
Þetta fyrirtæki er ótrúlegt - byrjun á nýrri byltingu að mínu mati. Þetta snýst um að í staðin fyrir að hafa "headset" (heyrnartól) - þá munum við setja á okkur svipað tól en það mun geta numið hugsanir í heilanum gegnum bylgjur (þær eru jú stafrænar í reynd - elektrónur að færast um í því formi sem heilinn er gerður úr) og þannig getur þetta tæki numið undirmeðvitund hjá fólk og hlutir hreyfast a tölvuskjánum bara við að hugsa. Þetta er ótrúleg tækni og bara byrjunin á því sviði sem snýst um að það verður minni og minni munur á hinum raunverulega heimi og þeim stafræna sem verður búinn til. Þetta er partur af "iðnbyltingunni" sem mun verða á 21st öldinni. T.d. verður ekki langt í það að málverkin á veggjum fólks verða ekki raunveruleg heldur bara endurvarpaðar þrívíddarmyndir - en líta nákvæmlega eins út og hinar raunverulegu fyrir mannsaugað. Bill Gates keypti réttin til að gera þetta fyrir 30 árum á flestum frægustu myndum heims t.d. Picasso etc.
Þetta fyrirtæki er ótrúlegt - byrjun á nýrri byltingu að mínu mati. Þetta snýst um að í staðin fyrir að hafa "headset" (heyrnartól) - þá munum við setja á okkur svipað tól en það mun geta numið hugsanir í heilanum gegnum bylgjur (þær eru jú stafrænar í reynd - elektrónur að færast um í því formi sem heilinn er gerður úr) og þannig getur þetta tæki numið undirmeðvitund hjá fólk og hlutir hreyfast a tölvuskjánum bara við að hugsa. Þetta er ótrúleg tækni og bara byrjunin á því sviði sem snýst um að það verður minni og minni munur á hinum raunverulega heimi og þeim stafræna sem verður búinn til. Þetta er partur af "iðnbyltingunni" sem mun verða á 21st öldinni. T.d. verður ekki langt í það að málverkin á veggjum fólks verða ekki raunveruleg heldur bara endurvarpaðar þrívíddarmyndir - en líta nákvæmlega eins út og hinar raunverulegu fyrir mannsaugað. Bill Gates keypti réttin til að gera þetta fyrir 30 árum á flestum frægustu myndum heims t.d. Picasso etc.
3ja umferða uppvask

Thursday, 6 March 2008
Slappur
Buinn að vera eitthvað hálfslappur í dag og ætla því að fara að sofa núna eldsnemma. Það verður því lítið um blogg í kvöld
Vespur í búri
Wednesday, 5 March 2008
Skrýtin nöfn
Ég hitti Rupesh Chatwini hjá Promethyan Labs í dag - hvað er næst:) En svo virðast sumir her í London bara ekki trúa því að ég heiti Robert Robertsson - eg var að tala við ritara í lögfræðiskrifstofu í dag og það var sama hversu oft ég útskýrði þetta fyrir henni (hversu flókið getur það verið) - þa bara náði hun því ekki. Og það endaði með því að hun bað mig að stafa það og fyrir hvern bokstaf þa sagði hun - B eins og í Belgium, E eins og í England - en svo þegar eg fekk emailið fra henni aðan þá skrifað hun seinna nafnið hjá mér svona - Robert Sson - sem sagt held að Sson væri eftirnafnið eða eitthvað. otrulegt
Stuttbuxurnar mínar
Ég gleymdi stuttubuxunum mínum í líkamsrækt í gær og ákvað EKKI að leita að þeim í dag. Ástæðan er sú að þær voru orðnar svo slitnar að ég var hættur að þora að vera í þeim. Illa götóttar, enda keyptar fyrir 8 árum í USC í Los Angeles og ekki virðulegum tungnamanni sæmandi í raun. Ég hafði samt þrjóskast (eg er með gríðarlega ríkjandi og ráðríkt þrjóskugen) við að fá mér nýjar. En núna var komið að því - þær ákváðu sjálfar að nú væri nóg komið og viðskilnaðurinn var ekkert svo sár. Því voru góð ráð dýr áðan þegar ég ákvað að fara aftur. Ekki hafði fundist tími yfir daginn að fara út í búð og fjárfesta í nýjum grip. Þá mundi ég eftir því að betri helmingurinn hafði jú gefið mér eitt stykki í fyrra. Þær voru dregnar upp og ég sæll og ánægður ákvað því að prufukeyra þær í kvöld. Skellti mér í sund - en þá gerðist það - í þessum svakalega skriðsundssnúning sem ég tók - þá bara ákváðu þær að skilja við mig líka. En á öllu verri stað - eða í miðri sundlauginni. Það var greinilegt að betri helmingurinn hafði haldið mig feitari en ég var í raun, því það var ekki hægt að festa þær nógu vel - og það var eina sárauppbótin sem ég fekk við þetta frekar neyðarlega tilfelli. Sem betur fer voru nú ekki margir í sundlauginni en ég sá þarna allavega einn mann í eldri kantinu skella upp úr Ha ha
Tuesday, 4 March 2008
Auglýsingastofur í dag
Hitti tvo aðila frá auglýsingastofum í dag. Annar er fyrir auglýsingastofunni Akqa í New York og er yfir Smirnoff vörumerkinu. Hann var voðalega kammó og þægilegur í viðmóti - hann vildi láta farsímateymið sitt skoða málið sem næsta skref. Þannig það verða einhverjir fundir með þeim. Einnig hitt aðila fra Euro RSGC og hann ætlar að kynna þetta fyrir öðrum innan sinnan stofunnar. Það sem eg er að gera er að reyna að fa fleiri til að hugsa um hvernig best er að taka vöruna a markað því þessar auglysingastofur eiga jú að vera með frjótt fólk í vinnu. Sjáum hversu frjótt það er:) Er alveg dauðþreyttur eftir þessa fundi því á milli funda þá þarf maður að halda afram að bóka og finna leiðir til að komast og tala við fleiri og svo framvegis. Verð hvíldinni feginn að komast til Rúmeníu í 4 daga eftir 12 daga. Var annars að lesa mbl aðan og líst mér mjog vel a þa hugmynd sem Illugi er með taka upp svisnessa franka á Íslandi - þetta er athyglisverð millileið - ógnar ekki stóra birninum í EU sem byggja sín hagfræðilíkön út a að allir þurfi að taka upp Euro sem koma inn í miðstýringuna í Brussel en á hinn bóginn losar okkur við óþægindi smægðar krónunnar. Ætla að skella mér í líkamsrækt núna og halda svo afram að vinna í kvöld þar til augnlokin fara að kvarta.
Monday, 3 March 2008
Sköpun í skólum
http://www.ted.com/talks/view/id/66
Búið að vera allt vitlaust að gera í dag - hef ekki komist að blogga einu sinni. Þa er það orðið slæmt:) Eg varð bara að setja inn linkinn herna fyrir ofan en hann leiðir viðkomandi til myndbands sem er hvernig sköpun er eyðilögð í skólum. Þá erum við að tala um seinni stigin - ekki barnaskóla. Eg verð að segja að ég er ótrulega sammála honum og gaman að hlusta á Sir Ken Robinson. Myndbandið er a ensku.
Búið að vera allt vitlaust að gera í dag - hef ekki komist að blogga einu sinni. Þa er það orðið slæmt:) Eg varð bara að setja inn linkinn herna fyrir ofan en hann leiðir viðkomandi til myndbands sem er hvernig sköpun er eyðilögð í skólum. Þá erum við að tala um seinni stigin - ekki barnaskóla. Eg verð að segja að ég er ótrulega sammála honum og gaman að hlusta á Sir Ken Robinson. Myndbandið er a ensku.
Sunday, 2 March 2008
Ekki slæmt
ALLLLLT AÐ GERAST

Saturday, 1 March 2008
Bóla Blátannar Haraldar konungs

Þessi blátannartækni er grunnurinn í þeirri hugbúnaðarlausn sem við notum í Redspray í dag. Þið getið séð á myndinni, hvernig hver einstaklingur sem notar þessa lausn, verður með svona Blátannar bólu í kringum sig (ca 15 metrar radíus) - þessi bóla er í raun bara útvarpsbylgjur sem flytja boð til farsímans ef eitthvað kemur inn í þennan radíus í kringum síman sem þau geta skilið. Þannig að ef annar einstaklingur með sama hugbúnað kemur innan hvors annars radíusar, þá tala símarnir saman - án þess að einstaklingurinn viti af því - og láta síðan viðkomandi einstakling vita með hljóðmerki eða öðrum aðferðum t.d. hvor að þessi nýi (utanaðkomandi aðili) er eitthvað þess virði að skoða betur. Þannig mun þetta vera bara byrjunin á mikið stærra máli sem snýr að samskiptum yfirhöfuð. Það er nokkuð ljóst að samskipti eru allstaðar t.d. eru það samskipti þegar einhver kaupir eitthvað, eða einhver sér auglýsingu einhverstaðar - annað hvort gagnvirk eða bara í aðra hvora áttina. Þannig mun þetta verða notað í framtíðinni - bólan sem þú verður með í kringum þig mun vinna fyrir þig á allan hátt - ath hvort að einhver athyglisverður afsláttur í verlun sé til staðar, ath hvort að einstaklingurinn sé "nógu spennandi", ath hvort að einhver aðili gæti verið að auglýsa bílinn sinn til sölu og láta þig vita ef þú hefur sagt símanum að þú sert að leita að svipuðum bíl, ath hvort að viðkomandi einstaklingur sé að vinna í sömu atvinnugrein og ef svo þá spyrja þig hvort að þú viljir vista viðkomandi kontact þannig að þið getið verið í sambandi seinna (nafnspjöld munu heyra sögunni til) og svona gæti ég haldið lengi afram - í stórum dráttum þá getur þetta snúið að öllum samskiptum milli tveggja einstaklinga eða einstaklings og tölvu - og það eru nokkur vegin öll samskipti sem gerast í heiminum í dag.
Með þessu móti breytist einnig það sem kallað er "Social Identity" og ég veit ekkert hvernig á að þýða á íslensku - líklega bara "hver maður er gagnvart umhverfinu" - því að þú ert ekki bara a) hvernig þú lítur út og b) hvað þú segir. Það eru þeir tveir grunnþættir sem allir mynda sýna skoðun á þér á - núna mun bætast við hvernig og hvað þú segir tölvunni í símanum. Þannig verðu það partur af því hver þú ert. T.d. hvaða langanir þú hefur og ert í raun bara að hugsa um í dag (þessar hugsanir standa ekki á enninu á þér og þú talar ekki endilega um þær) - en þú getur látið tölvuna vita og svo lætur hún þig vita ef eitthvað sem kemur inn í bóluna hans Haraldar fittar við það sem þú ert að hugsa.
Vona að þessar bólupælingar hafi ekki verið of flóknar:)
Raunir ísskápsins
Subscribe to:
Posts (Atom)