Friday, 30 May 2008

Uppboð




Ég fór á fund í dag í Conduit Stræti, en það er í miðju Mayfair sem er með fínari hverfum Londonar. Ég var aðeins of snemma og þurfti því að finna eitthvað til að eyða tímanum í 20 mín. Þá sá ég þetta fína uppboðshús (hægt að klikka á myndirnar fyrir ofan og sjá þær stærri), sem er jú víst aðal uppboðshús heimsins og ég náttúrlega bara labbaði inn eins og ég ekkert væri sjálfsagðara. Þegar í andyrið var komið var ég spurður hvaða erinda ég væri þarna og ég náttúrlega sagðist vera að skoða að gera kaup á dýrum málverkum!!! Vissi á þessari stundu ekkert hvað ég var að koma mér út í - gaf upp nafnið bara á fyrirtækinu til að komast inn! Þannig núna er Matchtooth Ltd líklega á skrá hjá þeim sem álitlegur kaupandi á rándýrum málverkum og fleira ha ha ha ha. Ekkert er ólíklegra en það liklegra ti hi. En inn var ég kominn og ekkert nema gaman. Rölti inn í eitthvað veitingahús þarna og jú ég held að ég hafi nu ekki seð saman komið jafn mikið af snobblið á ævinni! Það voru þarna fínar frúr með einhverja kjölturakka sem voru á stærð við einhverjar kisur og það voru þarna kallar með einhverja pípuhatta, reykjandi vindla. Þvílík og önnur eins vitleysa. Síðan lá leiðin náttúrlega inn í uppboðssalin en þar var greinlega allt pakkað þannig ég lét mig nægja að fylgjast með þarna utan við salinn í smá tíma - enda hafði ég nú ekki mikinn tíma, alveg að verða of seinn á fundinn. Samt það var nú frekar fyndið að fylgjast með þessu þarna - þegar ég kom var verið að selja eitthvað málverk sem var merkt LOT 219 - ég er ekki enn búin að finna út hvaða málverk þetta er, enda er ég nokk viss um að þó að ég kæmist að því þá væri ég endu nær!!! En samt þá var þetta smá klikkað að horfa á þetta og hlusta á uppboðahaldarann reyna að fá fólk til að bjóða hærra og hærra - það var þarna til hægra fullt af liði sem var bara í símanum og hækkaði og hækkaði boðið. Spáðu í þeirra veröld - jú situr og skoðar einhverja vefsíðu og hugsanleg kaup á einhverjum myndum allan daginn - og hringir síðan í einhverja gengilbeinur í salnum og biður það um að hækka tilboð og annað. Hvílík gerviveröld þetta lið lifir í. Þá langar mig nú frekar að vinna í aðgerðargenginu í frystihúsinu á Hornafirði. En jú þetta litla málverk sem var þarna til sölu og var númerað LOT 219 fór á GBP 2.7 milljónir - sem eru jú litlar 398 milljónir ísl kr. Það var hálf óraunverulegt að horfa á liðið kaupa þetta á þessa upphæð og fara svo að tala við einhverja gæja um að ná inn 9 milljónum í fyrirtækið sem við höfum verið að berjast við að stofna í 2 ár!!!!!!!!!!!!! Stundum er þessi heimur afskaplega óþolandi og pirrandi - eins gott að maður er úr sveit og spáir því ekki of mikið í þetta allt.

3 comments:

Anonymous said...

Spurning um að fara þangað og finna einhvern til að fjárfesta í Redspray? ;) Vantar ekki aurinn á þessum bæ! Svo er aldrei að vita nema þessi reynsla komi sér vel síðar meir ÞEGAR við förum að versla verk eftir Da Vinci, Picasso og fleiri meistara ;)

rrrobertsson said...

ha ha já ég vona að Redspray fari nú ekki á uppboð strax

Anonymous said...

Átti ekki við það kjánakollur :)