Tuesday, 13 May 2008

Prjóna - spurning - hmm

Buinn að vera að undirbua næstu tvo daga - en það verða 5 fundir nuna á næstu tveim dögum og svo beint heim til Íslands. Verður agætt að slaka aðeins á yfir helgina heima - þó að þetta verði natturlega fáranlega stutt stopp í þetta skiptið. Það er fullt sem þarf að taka ákvorðun um þegar eg kem heim - t.d. hvort við Þórunn tökum kjallaraíbúðina á leigu frá 1 júlí og svona. Ju svo á Bjarki afmæli. Þannig heilasellurnar fá lítið sumarfrí en sem komið er - enda engin ástæða til - nóg að gera, smá álag og stress og þá er mest gaman:) Svo er bara að vona að krúttið dafni vel þarna inni - fer með Þórunni í mæðraskoðun á mánudaginn og þá fær maður vonandi að heyra hjartsláttinn aftur:) Það er ótrúleg tilfinning. Mar á kannski einn daginn eftir að fara að hekla bara - jú eða prjóna húfu - hmm ekki viss reyndar ha ha. Vantar alveg sjálfboðaliða í það - kannski ég spyrji pabba he he veit ekki:) Líkleg væri nú móðir mín betri í það - voðalega handlagin og flínk við allt svona. Held ég hafi ekki erft það frá henni - ekki nema að litlu leiti þá. Jú eða þá bara að þetta eru óræktaðir og leyndir hæfileikar hja mer sem eiga eftir að koma í ljós seinna - líklega best að segja það bara!!!

1 comment:

Anonymous said...

Ég er með slatta af garni hérna sem þú getur dundað þér við að prjóna / hekla úr um helgina ;)

Já, vona að krúttið dafni vel þarna inni.... amk tekur það nógu mikla orku af móður sinni og hormónastarfsemin virðist vera í blóma miðað við ógleðina mína! :)