Saturday, 31 May 2008
Fyrsta sparkið:)
Í dag fann Þórunn fyrsta sparkið:) Er greinilega heilmikið efni í íþróttakappa - strax byrjað að hreyfa sig. Hún sagði að þetta væri svona eins og smá kitl:)
Bölvaðir pólverjarnir
Var að horfa a landsleikinn við Pólverja - ekki gott mál. Núna verðum við að reiða okkur á sigur gegn Svíum - en það hefur jú oft verið erfitt. En samt ekki ómögulegt því að okkur tókst nú seinast að gera þeim skráveifu - þannig að þeir komust ekki á stórmót. Hvort að það takist aftur núna verður bara að koma í ljós - finnst reyndar fáranlegt að mótið sé skipulagt þannig að þetta sé á heimavelli eins liðsins. Afhverju ekki að hafa þetta í öðru landi þannig að allir standa jafnt.
Friday, 30 May 2008
Uppboð




Thursday, 29 May 2008
SUÐURLANDSJARÐSKJÁLFTI

Wednesday, 28 May 2008
2000 pöbba
Horfði á Ísland tapa fyrir Veilsverjum - og svo sem ekki mikið um þann leik að segja. Var annars frekar rólegur dagur í dag. Fer a tvo fundi á morgun, og einnig er eg að undirbúa að fara að hitta stóra kráarkeðju í næstu viku - þeir eiga 2000 pöbba.
Monday, 26 May 2008
Bankahelgi að verða búin - loksins
Jæja þá er þessi skollans bankahelgi að verða búin. Ekki að það sé ekki gott að fá smá frí - en það er ekki akkúrat það sem ég er að hugsa um núna. Allt annað skiptir meira máli en það núna. Þannig gott að hægt sé að fara að vinna á fullu á morgun. Náði þó einum fundi með einhverjum fjárfesti fra Dubai í dag og einnig fekk ég bref fra aðila sem segist vera að finna einhverja fjarfesta fyrir mig og eg eigi að senda honum meiri upplysingar. En hann er svo sem ekki sa fyrsti. Nog í bili
Sunday, 25 May 2008
Lítið sem gerðist í dag
Voðalega lítið sem gerðist í dag. Var bara að vinan og fór í gymið og svona. Síðan er frídagur á morgun - enn ein bankamannahelgi núna. En get vonandi unnið í þeim sem eru ekki í UK t.d. fjárfestateymunum í Dubai og Kína. Það er allavega stefnan.
Saturday, 24 May 2008
Bjartsýni
Ja það var bjartsýni að halda að maður myndi ná að klára þetta fyrir hádegi - en nú er þetta búið - 7 ruslapokum seinna! og kl orðin 14:41 - munaði nú ekki nema tæpum 3 klst. Vonum að þetta verði nóg - alvega fram að jólum!!!!! Og þá er komið að því að fa ser kaffi og fara að vinna - alveg þangað til Eurovision byrjar!
Hreinlætissvæði heilans tók völdin - en bara fyrir hádegi
Í dag var því svæði heilans sem sér um hreinlæti að Warren Court nóg boðið og lét til skara skríða - enda oftast bræla yfir helgar hér - og það var sko tekið á því, enda ekki vanþörf á þegar betri helmingurinn hefur ekki látið vöndinn sveiflast svo mánuðum saman. Svona til að gefa ykkur smá "smörþef" af stöðu mála, þá var notuð steinull við þrif á gólfi inn í herberginu þar sem páfinn sefur og spjallar við vegfarendur að hætti húsins. Say no more. Nú er komið að stofunni og skrifstofu borðinu og ætti það að duga fram yfir hádegi.
Friday, 23 May 2008
Bræla
Það var ekkert nema bræla í Newbury. En það var samt ánægjulegt að sofna við fuglasöng, svona sem tilbreyting frá öllu sírenuvælinu á Warren Court. Eiginlega vissi varla hvað þetta var!
Thursday, 22 May 2008
Newbury
Fer fljótlega á fundinn út í sveit, Newbury, og mun líklega gista þar. Kem svo heim fyrir hádegi á morgun. Mun hitta 5 fjárfesta þar á einhverju veitingahúsi og svo munum við líklega fara heim til eins þeirra eftir matinn. Verður örugglega bara gaman.
Wednesday, 21 May 2008
Kominn til London
Kominn heill og sæll til UK. Flugið gekk vel, en þegar heim var komið tók ekki gott við - því að Man Utd vann Chelsea og það var ekki gott. Ekkert er verra í þessum heimi en þegar Man Utd vinnur. Er buinn að fara út í kaupfélag og kaupa mjólk og svona og allt tilbúið í vinnu á morgun. Fer seinni partinn á fundinn í Newbury - þar sem 5 fjárfestar koma saman til að hlusta a fagnaðarerindið:) ti hi
Thursday, 15 May 2008
Tefal Express 2000
Fjárfest hefur verið í ægifögrum silfurlitðum, Tefal Express 2000, hraðsuðukatli, með demantslöguðu hitunarkerfi í botni. Um er að ræða grip sem hægt er á setja á lengur en tvævetur. Þegar ýtt er á on/off takkann kemur fallegt bjölluhljóð eins og maður sé staddur út í haga að hlusta á lóurnar - það er þar með komið sumar á Warren Court - og það neyðarástand sem skapaðist í morgun hefur hér með verið aflétt.
RÚV svarar loksins
Loksins svaraði RÚV fyrirspurn minni vegna þeirra vandamála sem hafa verið útsendingar á vefnum hjá þeim. Vandamálið var að það var ekki samtenging milli raunverulegra útsendinga og vefútsendinga - þannig að þegar einhverjir dagskrárliðir seinkuðu vegna ýmissa ástæðna, þá passaði það ekki inni vefútsendinga. Sme þýddi að þegar maður var kannski búinn að koma sér vel fyrir með pop og kók og ætlaði að horfa a Útsvar eða landsleik í handbolta - þá var slökkt á utsendingu kannski þegar 5 mínútur voru eftir. Vitandi að þeir nota Vyre kerfið til að keyra allt kerfið - en það er kerfið sem við byggðum upp í Salt á sínum tíma, þá er það ekkert vandamál að tengja þessa tvo hluti saman og núna loksins ætla þeir að gera það - hversu langt það verður þangað til það gerist a síðan eftir að koma í ljós. Brefið fra þeim er her fyrir neðan.
Sæll Robert.
Fyrir stuttu var tekið í notkun nýtt útsendingarkerfi Sjónvarpsins og þá missti vefupptökukerfið okkar tengingu við skotlista Sjónvarpsins. Það þýðir að vefupptökurnar eru teknar upp eftir áætluðum dagskrártíma en eins og við vitum þá getur slík dagskrá hliðrast talsvert. Það er verið að vinna að því að laga þetta en þangað til er ekkert hægt að gera annað en að laga upptökurnar eftir á. Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum.
Kveðja,
Sunna Mímisdóttir
Vefstjóri
Sæll Robert.
Fyrir stuttu var tekið í notkun nýtt útsendingarkerfi Sjónvarpsins og þá missti vefupptökukerfið okkar tengingu við skotlista Sjónvarpsins. Það þýðir að vefupptökurnar eru teknar upp eftir áætluðum dagskrártíma en eins og við vitum þá getur slík dagskrá hliðrast talsvert. Það er verið að vinna að því að laga þetta en þangað til er ekkert hægt að gera annað en að laga upptökurnar eftir á. Við biðjumst velvirðingar á óþægindunum.
Kveðja,
Sunna Mímisdóttir
Vefstjóri
Neyðarástand í morgunsárið
Neyðarástand skapaðist her a Warren Court í morgunsárið þegar í ljós kom að hraðsuðuketillinn var bilaður og því ekkert heitt vatn í kaffið:) Hversu slæmt getur það orðið? Fór því þá leið að hita vatnið í potti til að redda málunum - en það tók heila eilífð. Um mjög alvarlegt mál er að ræða og mun ég senda sjálfan mig út af örkinni í dag til að kaupa varahluti í hraðsuðuketilinn góða:)
Wednesday, 14 May 2008
Tuesday, 13 May 2008
Prjóna - spurning - hmm
Buinn að vera að undirbua næstu tvo daga - en það verða 5 fundir nuna á næstu tveim dögum og svo beint heim til Íslands. Verður agætt að slaka aðeins á yfir helgina heima - þó að þetta verði natturlega fáranlega stutt stopp í þetta skiptið. Það er fullt sem þarf að taka ákvorðun um þegar eg kem heim - t.d. hvort við Þórunn tökum kjallaraíbúðina á leigu frá 1 júlí og svona. Ju svo á Bjarki afmæli. Þannig heilasellurnar fá lítið sumarfrí en sem komið er - enda engin ástæða til - nóg að gera, smá álag og stress og þá er mest gaman:) Svo er bara að vona að krúttið dafni vel þarna inni - fer með Þórunni í mæðraskoðun á mánudaginn og þá fær maður vonandi að heyra hjartsláttinn aftur:) Það er ótrúleg tilfinning. Mar á kannski einn daginn eftir að fara að hekla bara - jú eða prjóna húfu - hmm ekki viss reyndar ha ha. Vantar alveg sjálfboðaliða í það - kannski ég spyrji pabba he he veit ekki:) Líkleg væri nú móðir mín betri í það - voðalega handlagin og flínk við allt svona. Held ég hafi ekki erft það frá henni - ekki nema að litlu leiti þá. Jú eða þá bara að þetta eru óræktaðir og leyndir hæfileikar hja mer sem eiga eftir að koma í ljós seinna - líklega best að segja það bara!!!
Monday, 12 May 2008
Víla og díla
Lítið sem gerðist í dag. Aðallega fór dagurinn í að skiptast a tölvupóstum við Roger sem eg er að reyna að fá í vinnu herna næstu 3 mánuði. Ætla að taka lokafund með honum á morgun og þá verður þetta sett á eða af. Væri gott að geta haft hann í málunum líka því að þetta er alltof mikið álag fyrir einn að eiga við. Fekk einnig tilboð fra Simon Gall sem er til í að hjálpa við að finna fjármagn og koma svo í stjórn - þarf að leggja það tilboð fyrir aðra hluthafa og sja hvort það verður samþykkt. Gæti verið gott að fa hann með í þetta, því hann er vel tengdur herna í UK og með góða reynslu. Þannig var þessi dagur. Jú þá reyndar borgaði Dubai fjarfestirinn það sem hann átti eftir að borga eða um 385þus ikr. þannig að ég gat þa borgað indverjunum mánaðarlaunin sin sem er um 523 þus ikr (fyrir þrjá menn)
Sunday, 11 May 2008
Undirbúningur vegna Nick House Entertainment
Engin hvítasunnuhelgi her - bretarnir eru greinilega ekki mikið að spá í það og líklega er það vegna þess að úrslitaleikurinn í ensku úrvaldsdeildinni var í dag og þá hreinilega tæmptust allar helstu götur í 100 mín. Það var ótrúlegt. Þetta var svona eins og þegar áramótaskaupið er heima! Hef verið alla helgina að útbúa kynningarplagg fyrir Nick House Entertainment en ég hef ákveðið að það reyna að fá þá til að vera samstarfsaðili okkar her í London til að koma Redspray á markað. Þeir hafa allt sem til þarf - nú er bara að sjá hvort að þeir séu til í samstarf. En alltaf betra að vera vel undirbúin áður en maður setur í þá kauða, þetta er svona eitt af mikilvægustu skrefunum í þessum ferli öllum og gríðarmikilvægt ef það tekst. Þeir hafa allt sem við þurfum - t.d. 240.000 manna vefsamfélag (www.londonparties.co.uk), eru eigendur að fjölda næturklúbba og eiga því að sjá sér hag í því að "white-label" lausnina okkar - það er að segja setja sitt vörumerki á hana. Það er oft gert þegar verið er að fara af stað því að það er það vörumerki sem þeirra notendur treysta og því auðveldara að keyra inn nýja vöru á þá. Sjáum hvað gerist í þeim málum núna næstu viku - vona að ég nái fundi með þeim áður en ég fer heim á föstudag. Það er samt alls ekki öruggt því að allt tekur um það bil 10x lengri tíma í Bretlandi en á Íslandi. Veit ekki afhverju en þannig er það bara - alveg sama hvað það er. Nema kannski þegar maður biður um bjór á einhverri krá, þá eru þeir voðalega snöggir - enda algjörir svolgarar.
Thursday, 8 May 2008
Bankaþjónusta pirrar
Ég tók eftir nýlund í bankaþjónustu herna í Bretlandi í dag. Eitthvað sem hefur ekki verið hér áður. Veit ekki hvort að þetta sé merki um að það se kreppa hja þeim eða þá að þeir hafi ráðið inn eitthvað nýtt markaðsseníið. Málið er að núna að þegar maður talar við einhvern bankamann hja HSBC, hvort sem að það er í gegnum síma eða fer í útibúið - þá þurfa þessir kjánar alltaf að reyna að selja manni í lok samtalsins. Þannig fór ég í dag og bað þa um að opna netbankann minn - var með hann bara opinn fyrir fyrirtækið. Jú það gekk ágætlega en svo þegar allt var búið - þá byrjar hann að tala um einhverja innbúatryggingu og hvort að ég sé með svollis. Ég náttúrlega skildi ekkert hvað maðurinn var að fara, því það kom mínu erindi ekkert við - en náði svo að skilja að manninum var full alvara með að reyna að selja mer þetta. Eg nattulega afþakkaði dæmið. Síðan þurfi ég að hringja í símalínuna þeirra í dag því að það var eitthvað að lykilorðinu og eg fór í gegnum einhvern heljarferil af samtali við tölvu, innslætti á tölum og samtölum við einhverjar útvistaða Indverja - sem er nú alveg nógu óþolandi, því þeir tala varla ensku sem einhver maður skilur - þá þurfi þjónustufulltrúinn þar líka að fara að ath hvort að eg vildi ekki fá mer einhverja aðra tegund af sparnaðareikning. Eg atti heldur ekki til orð og fannst þetta alveg fáranlegt því að það kom mínu erindi ekkert við. Eg veit satt best að segja ekki hvort að þetta bætir stöðu þeirra eftir allt. Eflaust ná þeir að selja til einhverra en eg held að þeir pirri hugsanlega fleiri en hitt. Allavega mig - en ég ætla samt ekki að fara í hungurverkfall í bankanum eða reyna að leggja vörubíl fyrir utan útibúið:)
Wednesday, 7 May 2008
Það sem er í gangi
Hitti Tom Kozlowski í dag og hann bætist við hópinn af fjárfestum sem sýnir Redspray alvarlegan áhuga. Núna ætlar hann að tala við tvo felaga sína, skrifa undir leyndarsamning og fá svo öll gögn til að skoða. Hann byggði upp fyrirtæki (City Practioners) sem þjónustaði fjármálastofnanir með flókin upplýsingatæknikerfi og seldi það síðan fyrir ári síðan. Þegar hann seldi það þá velti það 6 milljörðum ísl kr - þannig hann hefur reynslu. Hægt er að lesa frettatilkynningu um söluna her: http://www.capco.com/WorkArea/showcontent.aspx?id=3608
Aðrir aðilar sem eru enn að skoða og velta þessu fyrir sér eru þessir þrír Bretar og Kanadamenn í Shanghai, Kína, það er Sifco fyrirtækið í Dubai, doktorinn í endurskoðun við Uni of Chicago (London útibú), allt ex-Vodafone gengið í Newbury, Trevor og Kim (þessi sem á 7 bíla, þyrlu og flugvél), Chad í Chicago sem hefur verið að tala við fjarfesta í Dubai og hann segir að hann se mjög heitur, svo 4-5 aðrir sem eg hef ekki enn hitt og svo nuna þessi Tom Kozlowski og felagar. Þetta bara hlýtur að takast!!!! Skal.
Einnig erum við mjög líklega að fá tvo nyja starfsmenn í hlutastarf sem munu byrja að vinna með mér á næstunni. Það eru Roger sem er svona social media expert - markaðssérfræðingur og svo kona sem hefur verið stjórnandi á markaðsviðinu í Intel örgjörvafyrirtækinu. Hun mun fokusera á fagsýningar og hvernig hægt er að nota kerfið í þannig umhverfi eða allavega að byrja að skoða það mál.
Síðan er ég að endurskipuleggja stjórn fyrirtækisins og mjög líklega mun endurskoðandinn okkar, Andrew, koma nýr inn og svo lögfræðingurinn Alessandro líka. Þeir taka við af Graham og Santoshi í stjórn. Mjög anægður með það, því alltaf gott að hafa reynda endurskoðanda og lögfræðinga í stjórn - enda eru þetta svið sem ég hef afskaplega lítin áhuga á en þarf samt að eyða tíma í að hafa áhyggjur af. Þannig þetta léttir af mér áhyggjunum og eg get fokuserað minn tíma á hluti sem skipta meira mali.
Þannig nóg að gera og svo ekki sé meira sagt.
Aðrir aðilar sem eru enn að skoða og velta þessu fyrir sér eru þessir þrír Bretar og Kanadamenn í Shanghai, Kína, það er Sifco fyrirtækið í Dubai, doktorinn í endurskoðun við Uni of Chicago (London útibú), allt ex-Vodafone gengið í Newbury, Trevor og Kim (þessi sem á 7 bíla, þyrlu og flugvél), Chad í Chicago sem hefur verið að tala við fjarfesta í Dubai og hann segir að hann se mjög heitur, svo 4-5 aðrir sem eg hef ekki enn hitt og svo nuna þessi Tom Kozlowski og felagar. Þetta bara hlýtur að takast!!!! Skal.
Einnig erum við mjög líklega að fá tvo nyja starfsmenn í hlutastarf sem munu byrja að vinna með mér á næstunni. Það eru Roger sem er svona social media expert - markaðssérfræðingur og svo kona sem hefur verið stjórnandi á markaðsviðinu í Intel örgjörvafyrirtækinu. Hun mun fokusera á fagsýningar og hvernig hægt er að nota kerfið í þannig umhverfi eða allavega að byrja að skoða það mál.
Síðan er ég að endurskipuleggja stjórn fyrirtækisins og mjög líklega mun endurskoðandinn okkar, Andrew, koma nýr inn og svo lögfræðingurinn Alessandro líka. Þeir taka við af Graham og Santoshi í stjórn. Mjög anægður með það, því alltaf gott að hafa reynda endurskoðanda og lögfræðinga í stjórn - enda eru þetta svið sem ég hef afskaplega lítin áhuga á en þarf samt að eyða tíma í að hafa áhyggjur af. Þannig þetta léttir af mér áhyggjunum og eg get fokuserað minn tíma á hluti sem skipta meira mali.
Þannig nóg að gera og svo ekki sé meira sagt.
Monday, 5 May 2008
Bankamannahelgi
Ein af mörgum verslunarmannahelgum Breta var í dag. Það kallast Bank holiday - sem þýðist frekar bankamannahelgi - heldur en verslunarmannahelgi. Þetta er sem sagt helgi þar sem það er frí á mánudegi líka. En eg veit ekki hversu margar svona helgar eru yfir árið allavega 4-5x. Þannig lítið sem ekkert gerðist í dag. Fer vonandi að færast fjör í þetta allt á morgun. Er búinn að þvo og vaska upp og það segir nú meira en margt annað:)
Sunday, 4 May 2008
Hvert næst

Heim eftir 11 daga
Var að kaupa miða heim 16 Maí og svo út aftur 21 Maí. Fra föstudegi til miðvikudags. Fyrirtækið borgar þessa ferð.
Saturday, 3 May 2008
Fyrsta myndin
Subscribe to:
Posts (Atom)