Tuesday, 26 February 2008

Rólegt í dag

Frekar rólegur dagur. Svaf hörmulega seinustu nótt og var alveg ónýtur allan daginn. Náði þó einum ágætum fundi með Chad Smith seinni partinn og er hann að lesa viðskiptaáætlunina yfir. Ætlum síðan að senda hana á hóp fjárfesta sem hann þekkir. Það gæti reyndar þýtt að ég myndi þurfa að fara til USA í ferð - ef að einhverjir af þeim eru jákvæðir - en sjáum til hvað gerist eftir svona 2-3 vikur.

1 comment:

Anonymous said...

USA eftir 2 - 3 vikur?!?! Þegar ég er að koma....?!?! Hmmm kannski fæ ég þá bara að koma með og kíki í búðirnar meðan þú fundar ;) dollarinn hagstæður og svona ;)