Wednesday, 27 February 2008

Kostir fáfræðarinnar!



Hitti Ashwin Beeharee, tæknistjórann, hjá okkur á löngum og ströngum fundi í dag. Hann er frá Mauritius, lítilli eyju austan megin við Afriku (sja mynd). Hann er með doktorsgráðu í tölvunarfræðum og sér heiminn í tölum. Það er ótrúlega gaman að honum, hann er mikill pælari en það besta við hann er að hann getur alltaf komið með svör við öllum þeim spurningum sem eg kem með - og hvort að þær hugmyndir sem ég fæ séu hreinlega framkvæmanlegar. Það er eiginlega það besta við samvinnu okkar - það er nefnilega þannig að ef maður veit of mikið um einhverja tækni - þá einangrar maður þær hugmyndir við það "þekkingarbox". Þannig festast flestir inn í ákveðnu boxi og komast ekki út úr því - og fá bara nýjar hugmyndir innan þess box. Þess vegna er það í raun ákveðinn kostur að ég veit ekki alltof mikið um þróun hugbúnaðar í farsímu. Í UT (upplýsingatækni) þá sérhæfi ég mig í u-inu og hann í t-inu (samanber: IT - information technology) Ég aftur á móti á erfit með svefn vegna þess að ég fæ hugmyndir á færibandi og þetta færiband getur bara ekki stoppað stundum. Serstaklega getur það verið pirrandi þegar kl fer að nálgast 4 að morgni og maður reynir að slökkva á því en það er bara engin off og on takki. Óþolandi. En sem sagt þa fæ eg hugmyndir og tek síðan svona fundi með Ashwin einstöku sinum og við leggjum á ráðin hvað er hægt að gera til að laga og bæta. Það er mjög mikilvægt því annars fer ég að selja hugmyndir til hugsanlegra fjárfesta, sem eru bara hugmyndir í kollinum á mér - og hugsanlega ekki framkvæmanlegar - það getur verið ákveðinn galli:) Þannig er eg oft byrjaður að selja ákveðna framtíðarsýn til fjárfesta - án þess að vita í raun alveg hvort að það sé hægt. Þarna er voðalega fína lína sem er gott að passa sig á. Og þess vegna er gott að hittast einstöku sinnum og bera saman bækur. Þannig að við séum nokkurveginn á "sömu blaðsíðunni". Það sem aftur á móti gerist þegar nálgast að vera með fullþróað viðskiptalíkan/vöru - að hugmyndirnar og pælingarnar verða alltaf um afmarkaðra og þrengra svið. Þannig heldur þetta áfram þangað til að kerfið verður orðið nógu gott að hægt sé að láta viðskiptavinina nota það. Það sem gerst reyndar líka í millitíðinni er að ég reyni að soga inn eins mikla þekkingu frá hugsanlegum notendum sem prufa vöruna - til að hægt sé að taka eins mikið af þeirra sjónarhornum inn í mótunina eins og hægt er. T.d. komumst við að því í januar þegar við vorum að testa þetta a nemendafélaginu í Háskóla Íslands að flækjustigið við að niðurhala þessu fra vefnum í farsíman sjálfan var einfaldlega alltof mikið - þannig öll orka seinustu vikurnar hefur fari í að gera þetta einfaldara og notendavænna. Þannig rúllar þetta áfram þangað til sá dagur kemur að um tilbúna vöru verður að ræða. Ég veit að þetta er erfitt fyrir flesta að skilja - afhverju þetta tekur svona langan tíma - en jú þetta er vara sem hefur aldrei verið þróuð fyrir farsíma í heiminum áður og þess vegna er ekkert til að læra af - nema hugmyndir og útfærsla okkar sjálfra. Engar skólabækur eða bókasöfn til að stúdera þetta - bara viðbrögð viðskiptavina þegar þeir prufa. Mjög langur og strangur ferill - serstaklega þegar ekki er mikið fjármagn til að vinna með.

Grey Ashwin fótbraut sig víst fyrir 2 vikum og var hálf haltur - því að það uppgötvaðist víst ekki fyrr en nokkuð seinna að hann var í raun fótbrotinn - og hafði hann þá gert það verra með því að fara ekki til læknis strax. Þetta er auðvitað hið besta mál fyrir fyrirtækið - því hvað er betra en að þessi aðila se bara fyrir framan tölvuna að þróa hugbúnaðinn - í staðinn fyrir að vera út í skógi að elta stelpur eða hross.

No comments: