
Ákvað að það væri kominn tími á að endurskýra matvöruverslunina hérna fyrir utan - gengur ekki lengur að vera án kaupfélags í London, þar sem ég og Þórunn töluðum alltaf um að fara út í kaupfélag. Líklega á ég nú mestu sökina í þessu máli og jú líka tölvan mín sem hjálpaði við að koma þessu skilti upp á matvöruverslunina sem ég fer alltaf í. Nú ætti Bjarni Harðar að vera ánægður. Framsókn í sókn í London. Hvernig gat annars sá ágæti maður úr Tungunum endað í framsókn - hann sem er alinn upp við tómatarækt - ekki man ég eftir að hafa séð óskemdan tómat í kaupfélaginu þegar það var og hét. Og hvílík firra er það að kalla þann flokk FRAMSÓKN - væri ekki Aftursókn - Snúum Við - Bakkgírinn - Bremsuför - Baksýnispegilinn - Vörninn - Varngerður - eða bara KAUPFÉLAGIÐ skárri nöfn. Það myndi allavega hafa meira breytingar í för með sér fyrir þennan 0% flokk en sú stefnubreyting hjá Guðna að halda úti sjónvarpsþætti hjá Ingva Hrafni á INN sjónvarpsstöðinni (klikkið á slóðina hérna á eftir til að njóta listasemdanna ha ha - eini fræðilegi möguleikinn hjá honum að ná einhverju áhorfi væri ef einhverjir unglingar myndu finnast hann "massa retro" eða "hnakki nr 1" og settu hann a "jútjúb")
http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=INN&programID=6d7100d1-9b4c-45fa-b050-65b3e9823e54&mediaSourceID=64755747-8cc9-4083-8903-ed51cb035787
No comments:
Post a Comment