Sunday, 24 February 2008

Engin moðsoðning yfir nóttu


Man eftir því þegar faðir minn sagði mér frá því að hafragrauturinn hafi verið búinn til með svokallaðri moðsoðningu. Þá var víst haframjölið sett í pott og moð í kring og látið standa þannig yfir nóttina. Þannig hitnaði þetta um nóttina og var víst orðið að hafragraut um morgunin. Líklega hefði maður sá sem hefði stungið upp á því að nokkrum áratugum seinna að þetta kæmi bara á færibandi allt og það matur frá Japan - jú mar hefði verið spurður af því hvort að maður væri eitthvað skildur Reyni Pétri! Þeim mikla göngugarpi frá Sólheimum. Datt þetta í hug þegar eg fór og fékk mer að borða áðan á YoSushi (ekkert kaupfélag það!):). Þar kemur maturinn í svona dollum á færibandi (sjá mynd) og maður bara pikkar eina og borða. Gersamlega brilli fyrir mig - enda ekki landsfrægur kokkur! Hefði nú haft gaman af að smakka moðsoðinn hafragraut - þó að eg se nokkuð viss um að betri helmingurinn hjá mér myndi nú ekki vera of hrifinn af þannig guttli. Dagurinn var annars frekar "frumkvöðlalegur" - eyddi honum í að byggja tengslanetið. Vaknaði kl 9 í morgun (jú sunnudagsmorgun) og ákvað að markmiðið væri að finna 15 "stóra fiska" í dag. Það náðist nú reyndar ekki alveg - en fann um 8 sem er bara gott mál. "Stórir fiskar" í mínum augum eru aðilar sem hafa reynslu og tengslanet sem geta tekið Redspray (www.redspray.com) á næsta stig. Komið inn í fagráð eða annað og hjálpað við að finna næstu fjármögnun. Allavega kom eitt út úr vinnunni í dag - náði sambandi við Todd Corbett aðila fra Texas - hringdi í hann til Parísar þar sem hann var á viðskiptaferð og náði að bæta við einu millistoppi hjá honum í næstu viku. Hann er sem sagt að fara til Milano núna á í kvöld, svo til Frankfurtar í Þýskalandi á þriðjudag - og ætlar svo að koma og kíkja á mig í London á miðvikudag eða fimmtudag í staðinn fyrir að fljúga beint til Texas. Er nátturlega mjög ánægður með það - þó að maður viti ekkert hvað kemur út úr því. Hann náði allavega að finna fjármagn fyrir Voxas þegar það var að byrja og náði hann í USD 300 milljónir fyrir það (eða í kringum 19.8 milljarða ísl kr) - þannig hann ætti að kunna sitt fag. Fyrir mig er þetta auðvitað ákveðinn sigur að aðilar eins og þessi finnist það svo spennandi það sem maður er að gera að þeir taki svona stóran krók á leið sína til að hitta mig:) Baaaara stoltur af því! Reyndar lítill heimur því að hann sagði að hann hefði verið í IMD skólanum í Sviss á sínum tíma með Árna Oddi Þórðarsyn, stjórnarformanni Marel - og vissi hann allt um kaup þeira a Stork í Hollandi. Svona er þetta nú lítill heimur. Jæja ætla að fara að koma mer af stað - ætla að skella mér í bíó í kvöld svo ég geri nú eitthvað annað en vinna alla helgina.

1 comment:

Anonymous said...

Reyndar er ég farin að fá mér hafragraut og lifrarpylsu á hverjum morgni og finnst það nú bara alveg meiriháttar gott :) Sushi stendur lika alltaf fyrir sínu.... samt kannski ekki alveg í morgunmat ;)