Friday, 29 February 2008

Enn einn fjárfestirinn sem skoðar

Þetta eru endalausir þessir fundir við fjárfesta - það er svo erfitt að finna þa rettu - t.d. hitti Skype a sínum tíma yfir 700 fjárfesta áður en þeir fundu þann retta/u - vona að eg þurfi ekki að leita svo lengi!!! Hitti þennan kauða (Andrin)á myndinni, í morgunmatsfundi kl 9 í morgun. Hann er sem sagt fjárfestir í símafyrirtækjum og öðrum svipuðum fyrirtækjum. Hann varð forríkur af því að setja af stað símafyrirtæki í Svíþjóð, árið 1996 og í dag er það þriðja stærsta símafyrirtæki Svíþjóðar. Hann er annars fra Sviss. Veit ekki alveg hvernig hann endaði í Svíþjóð. Mér sýndist reyndar að hann væri frekar spenntur fyrir Redspray en maður veit aldrei hvað þessir kallar eru í raun að hugsa. Það verður allavega annar fundur fljótlega - og þeir væru nú varla að hafa annan fund nema þeir hefðu ahuga. Þessi vissi hvar Ísland er og hafði komið hingað nokkrum sinnum og þekkti til aðeins - spurði mig mikið út í hver Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi forstjori Nyherja væri og hvort eg þekkti hann - og hvernig mer litist a nyja fyrirtækið hans www.dohop.com - en siðan kom eining í ljós að þessi Andrin vann með Bjögga Thors - en þeir gerðu saman tilboð í QXL uppboðsfyrirtækið, upp a einhverja tugi milljarða. Náðu ekki að kaupa það með eðlilegum hætti og enduðu því með að gera fjandsamlega yfirtöku (þa sem sagt hefur stjórn fyrirtækisins ekki samþykkt að þeir kaupi og þeir fara því að kaupa hlutafe af hverjum og einum hluthafa beint - an samþykkir stjornar og na þannig yfirhönd í fyrirtækinu) - siðan held eg að þeir hafi selt það aftur til fyrirtækis í S-Afriku. En allavega þá var mjög gott kaffi þarna á þessu kaffihúsi í Mayfair í morgun - og það var fyrir öllu:) Er reyndar þannig með þessa fundi sem eru haldnir yfir morgunmat að maður nær aldrei að borða morgunmatinn - þannig hefur það nær alltaf verið þegar eg hef farið því að ég er að kynna allt dæmið og eg verð því að tala og tala - þannig að maður nær aldrei að borða neitt og allt verður kalt. Þannig ég var búinn að fa mer minn hafragraut aður en ég for og fekk mer siðan bara kaffibolla meðan þeir svolgruðu í sig einhverju beikoni og eggjum:)

Það skondna við þetta allt er hvernig maður kemst í samband við þessa gaura. Slóðin að þessum byrjaði þannig að ég skrá mig í netsamfélagið aSmallWorld og þar getur maður sett sig í samband við fullt af fólki. Þetta er lítið en mjög mikið af frægu og ríku líði þarna. Ég sem sagt set mig í samband við aðila sem heitir Thomas sem er að vinna í fjármálaumhverfinu (City) herna í London. Það var fyrir ári siðan eða svo. Þa var hann voða upptekinn og gat ekki skoða Redspray. Siðan fæ eg email fra honum fyrir 2 manuðum siðan þar sem hann segir mer að nu hafi hann meiri tima. Siðan sendi eg honum samantekt upp a 3 bls um fyrirtækið og enn og aftur verður hann upptekinn og nær ekki að hitta mig. En lætur vin sinn Gregory vita af þessu (sá aðili var reyndar einu sinni stjórnarformður Betfair, en það stærsta veðmálafyrirtæki Evrópu og Agis sem ég fór í giftingu til í Grikklandi vinnur hjá) - og þennan Gregory hitti ég siðan fyrir can 1 manuði siðan. Hann siðan segir þessum Andrin fra þessu og það siðan endar með því að við hittumst í morgun (asamt Gregory) - þannig er Andrin í raun þriðjar kynslóðar tenging við þetta netsamfelag. Siðan gæti eg haldið afram því að þessi Andrin þekktir Mr Boonstoppel sem við hittum fyrir 2 árum og hann var í stjórn QXL og svo framvegis. Það er hreint ótrúlegt hvað þetta samfélag fjárfesta sem ég er aðeins byrjaður að kynnast er í raun lítið og samtengt.

Núna er eg orðin svo gersamleg útkeyrður eftir þessa viku að eg er að spa í að taka mér frí það sem eftir lifir dags - þannig að ég hafi einhverja orku aður en helgartörnin byrjar - þa þarf ég að klara að endurskrifa viðskiptaáætlunina fyrir bandaríkjamanninn. uff - þetta er nú meira programmið.

Thursday, 28 February 2008

Ísrael - Ofir

Hitti Ofir Leitner í dag. Hann er frá ísrael og var her í London að fara a einhverja fagsýningu. Eg þekki kauða ekki neitt en hann bað um fund - en honum langaði að fræðast um það sem ég væri að gera. Var bara gaman að hitta hann en hann er að þroa hugbúnað í farsíma líka en er að tengja saman spjallrásir (IM - Instant messengers) í farsíma og sýndarveruleika t.d. Second Life. Þetta er auðvitað smá ótrúlegt en þetta er auðvitað bara byrjunin á þeim hlutum sem eiga eftir að kollríða 21 fyrstu öldinni. Það er nú þegar byrjuð mikil slagsmál um réttin á að nota London í þrívíddarlíkani. Þannig væri hægt að fara a kaffihúsið hérna neðar í götunni, nákvæmlega eins og það er, annað hvort í raunveruleikanum eða í tölvunni. Og það sem hann er að gera er að búa til leið fyrir fólk að spjalla saman hvort sem að það er þar í raunveruleikanum eða í syndarveruleika. Já þetta er svona sci-fic en samt að verða að raunveruleika. Gaman að vera í sambandi við hann því að hann er mikill snillingur greinilega. Svo er aldrei að vita að maður kíki á hann í Ísrael einn daginn. Hann var reyndar ekki svo mikill snillingur að hann vissi ekkert um hvar Ísland væri í heiminum. Hélt að það væri einhver eyja norður af Rússlandi ha ha ha. Eg sagði honum að það væri þarna frekar kalt og oft gæti það farið niður í 20 mínus í frosti. Þa sagði hann mer fra því (voða stoltur) að hann hefði séð snjó!!! Ég var svona - já ok - jú ég hef séð svollis líka hmmmmm

Wednesday, 27 February 2008

Kostir fáfræðarinnar!



Hitti Ashwin Beeharee, tæknistjórann, hjá okkur á löngum og ströngum fundi í dag. Hann er frá Mauritius, lítilli eyju austan megin við Afriku (sja mynd). Hann er með doktorsgráðu í tölvunarfræðum og sér heiminn í tölum. Það er ótrúlega gaman að honum, hann er mikill pælari en það besta við hann er að hann getur alltaf komið með svör við öllum þeim spurningum sem eg kem með - og hvort að þær hugmyndir sem ég fæ séu hreinlega framkvæmanlegar. Það er eiginlega það besta við samvinnu okkar - það er nefnilega þannig að ef maður veit of mikið um einhverja tækni - þá einangrar maður þær hugmyndir við það "þekkingarbox". Þannig festast flestir inn í ákveðnu boxi og komast ekki út úr því - og fá bara nýjar hugmyndir innan þess box. Þess vegna er það í raun ákveðinn kostur að ég veit ekki alltof mikið um þróun hugbúnaðar í farsímu. Í UT (upplýsingatækni) þá sérhæfi ég mig í u-inu og hann í t-inu (samanber: IT - information technology) Ég aftur á móti á erfit með svefn vegna þess að ég fæ hugmyndir á færibandi og þetta færiband getur bara ekki stoppað stundum. Serstaklega getur það verið pirrandi þegar kl fer að nálgast 4 að morgni og maður reynir að slökkva á því en það er bara engin off og on takki. Óþolandi. En sem sagt þa fæ eg hugmyndir og tek síðan svona fundi með Ashwin einstöku sinum og við leggjum á ráðin hvað er hægt að gera til að laga og bæta. Það er mjög mikilvægt því annars fer ég að selja hugmyndir til hugsanlegra fjárfesta, sem eru bara hugmyndir í kollinum á mér - og hugsanlega ekki framkvæmanlegar - það getur verið ákveðinn galli:) Þannig er eg oft byrjaður að selja ákveðna framtíðarsýn til fjárfesta - án þess að vita í raun alveg hvort að það sé hægt. Þarna er voðalega fína lína sem er gott að passa sig á. Og þess vegna er gott að hittast einstöku sinnum og bera saman bækur. Þannig að við séum nokkurveginn á "sömu blaðsíðunni". Það sem aftur á móti gerist þegar nálgast að vera með fullþróað viðskiptalíkan/vöru - að hugmyndirnar og pælingarnar verða alltaf um afmarkaðra og þrengra svið. Þannig heldur þetta áfram þangað til að kerfið verður orðið nógu gott að hægt sé að láta viðskiptavinina nota það. Það sem gerst reyndar líka í millitíðinni er að ég reyni að soga inn eins mikla þekkingu frá hugsanlegum notendum sem prufa vöruna - til að hægt sé að taka eins mikið af þeirra sjónarhornum inn í mótunina eins og hægt er. T.d. komumst við að því í januar þegar við vorum að testa þetta a nemendafélaginu í Háskóla Íslands að flækjustigið við að niðurhala þessu fra vefnum í farsíman sjálfan var einfaldlega alltof mikið - þannig öll orka seinustu vikurnar hefur fari í að gera þetta einfaldara og notendavænna. Þannig rúllar þetta áfram þangað til sá dagur kemur að um tilbúna vöru verður að ræða. Ég veit að þetta er erfitt fyrir flesta að skilja - afhverju þetta tekur svona langan tíma - en jú þetta er vara sem hefur aldrei verið þróuð fyrir farsíma í heiminum áður og þess vegna er ekkert til að læra af - nema hugmyndir og útfærsla okkar sjálfra. Engar skólabækur eða bókasöfn til að stúdera þetta - bara viðbrögð viðskiptavina þegar þeir prufa. Mjög langur og strangur ferill - serstaklega þegar ekki er mikið fjármagn til að vinna með.

Grey Ashwin fótbraut sig víst fyrir 2 vikum og var hálf haltur - því að það uppgötvaðist víst ekki fyrr en nokkuð seinna að hann var í raun fótbrotinn - og hafði hann þá gert það verra með því að fara ekki til læknis strax. Þetta er auðvitað hið besta mál fyrir fyrirtækið - því hvað er betra en að þessi aðila se bara fyrir framan tölvuna að þróa hugbúnaðinn - í staðinn fyrir að vera út í skógi að elta stelpur eða hross.

Náttúruöflin að taka völdin??

Ég taldi mig gersamlega orðinn ruglaðann í nótt kl 1 því húsið, þetta 5 hæða ferliki, lek a reiðskjalfi. Ég rauk upp í rúminu og kleip í eyrað á mér til að ath hvort ég væri ekki örugglega á þessari jörð! jú húsið var að skjálfa og það ekki bara einu sinni, heldur gekk þetta yfir í þó nokkurn tíma! Margir litlir og svo stærri skjálftar. Eina vandamálið sem ég átti við að stríða er að eg taldi að Bretland væri ekki virkt skjálftasvæði. Var eiginlega 110% viss á því og útilokaði því strax að um venjulegan jarðskjálfta hefði verið að ræða. Fór því að leita að orsökinni og datt í hug sprengjur - vitandi að það að allt gæti gerst her í landi hryðjuverka og elda í líkamsræktum! En nei eg gat ekki seð hvernig það ætti að hafa hrist húsið svona svakalega - það væri þá sprening inní húsinu og ég gat nú lítið annað heyrt en hrotur nágrannans! Ut um gluggan sá eg ekki neitt - nema einn og einn tveggja hæða strætó keyra hjá. eg því gafst upp á þessum pælingum og akvað að eg væri líklega orðinn ruglaður - það var því notaleg tilfinning að fá "frett" um þetta í mbl þegar eg vaknaði og komast að þvi að eg væri þa eftir allt ekki ruglaður orðinn. Því ekki var þetta a BBC í nott þegar eg var að reyna að finna ut - þeir hafa greinilega ekki verið snöggir að komast að þessu enda gerist þetta ekki nema a 10-20 ara fresti að svona stórir jarðskalftar ríða yfir. Þannig á einum sólarhring er eg búinn að þurfa að eiga við elda og jarðskjálfta - eru nátturuöflin eitthvað að láta vita af sér?

Tuesday, 26 February 2008

Eldur í líkamsræktinni !

Ætlaði í líkamsrækt núna kl 9, labbaði framhjá húsinu og fann einhverja undarlega reykjarlykt. Og þegar eg kom í andyrið og ætlaði að segja afgreiðsludömunni frá þessu - þá kemur einhver stelpa hlaupandi og öskrar eldur eldur í búningsklefanum. Afgreiðsludaman var hin pollrolegasta, eins og hun væri ekki alveg að trúa þessu, en fór þó niður að ath málið. Kemur síðan á harðahlaupum upp aftur, greinilega vel skelkuð - hringir síðan í slökkviliðið og tekur síðan á stökkið upp á aðra hæð þar sem allir voru að æfa. Síðan sé ég strolluna hlaupa niður rennsveitta - líklega um 50-60 manns. Litlu síðar kemur slökkviliðið, greinilega öllu vanir - voru ekki mikið að æsa sig. Síðan kemur stigabíllinn og fleiri. Við húgtum öll út í kuldanum og flestir rennsveittir á stuttbuxunum. Ég var sem betur fer ekki búinn að klæða mig og var því fínn:) Síðan eftir smá tíma kemur einhver út og segir að þetta sé alvarlegt og líklega eldur sem átti ser stað í rafmagnstöflu. Ég ákvað þá að vera ekki að bíða lengur og skellti mér heim - enda bara fyrir. Ég er reyndar alveg viss um að ég er fyrsti "fréttamiðilinn" í heiminum í dag sem er með þessa frétt:)

Rólegt í dag

Frekar rólegur dagur. Svaf hörmulega seinustu nótt og var alveg ónýtur allan daginn. Náði þó einum ágætum fundi með Chad Smith seinni partinn og er hann að lesa viðskiptaáætlunina yfir. Ætlum síðan að senda hana á hóp fjárfesta sem hann þekkir. Það gæti reyndar þýtt að ég myndi þurfa að fara til USA í ferð - ef að einhverjir af þeim eru jákvæðir - en sjáum til hvað gerist eftir svona 2-3 vikur.

Monday, 25 February 2008

Samkeppnisyfirburðir Bretans á sviði mjólkurferna

Það er kýrskýrt að Bretar salta Íslendinga í stærð mjólkurferna. Þessi sem ég keypti áðan er 3.4 lítrar. Geri aðra þjóðir betur. Það liggur við að maður þurfi að hafa múlasna með í innkaupaleiðangurinn - sem svona burðardýr. Eins og gefur að skilja þá er ég mjög ánægður með þetta mál.

Meira seinna

Allt brjálað að gera við að klára viðskiptaráætlun fyrir fund með Chad Smith seinn í kvöld - þannig lítið um blogg núna. Á einnig von á símatal frá einum breta. Hef legið yfir fjárhagsáætlun í allan dag og augun á mér eru orðin ferköntuð og með talnarunna sem augnabrýr.

Sunday, 24 February 2008

Engin moðsoðning yfir nóttu


Man eftir því þegar faðir minn sagði mér frá því að hafragrauturinn hafi verið búinn til með svokallaðri moðsoðningu. Þá var víst haframjölið sett í pott og moð í kring og látið standa þannig yfir nóttina. Þannig hitnaði þetta um nóttina og var víst orðið að hafragraut um morgunin. Líklega hefði maður sá sem hefði stungið upp á því að nokkrum áratugum seinna að þetta kæmi bara á færibandi allt og það matur frá Japan - jú mar hefði verið spurður af því hvort að maður væri eitthvað skildur Reyni Pétri! Þeim mikla göngugarpi frá Sólheimum. Datt þetta í hug þegar eg fór og fékk mer að borða áðan á YoSushi (ekkert kaupfélag það!):). Þar kemur maturinn í svona dollum á færibandi (sjá mynd) og maður bara pikkar eina og borða. Gersamlega brilli fyrir mig - enda ekki landsfrægur kokkur! Hefði nú haft gaman af að smakka moðsoðinn hafragraut - þó að eg se nokkuð viss um að betri helmingurinn hjá mér myndi nú ekki vera of hrifinn af þannig guttli. Dagurinn var annars frekar "frumkvöðlalegur" - eyddi honum í að byggja tengslanetið. Vaknaði kl 9 í morgun (jú sunnudagsmorgun) og ákvað að markmiðið væri að finna 15 "stóra fiska" í dag. Það náðist nú reyndar ekki alveg - en fann um 8 sem er bara gott mál. "Stórir fiskar" í mínum augum eru aðilar sem hafa reynslu og tengslanet sem geta tekið Redspray (www.redspray.com) á næsta stig. Komið inn í fagráð eða annað og hjálpað við að finna næstu fjármögnun. Allavega kom eitt út úr vinnunni í dag - náði sambandi við Todd Corbett aðila fra Texas - hringdi í hann til Parísar þar sem hann var á viðskiptaferð og náði að bæta við einu millistoppi hjá honum í næstu viku. Hann er sem sagt að fara til Milano núna á í kvöld, svo til Frankfurtar í Þýskalandi á þriðjudag - og ætlar svo að koma og kíkja á mig í London á miðvikudag eða fimmtudag í staðinn fyrir að fljúga beint til Texas. Er nátturlega mjög ánægður með það - þó að maður viti ekkert hvað kemur út úr því. Hann náði allavega að finna fjármagn fyrir Voxas þegar það var að byrja og náði hann í USD 300 milljónir fyrir það (eða í kringum 19.8 milljarða ísl kr) - þannig hann ætti að kunna sitt fag. Fyrir mig er þetta auðvitað ákveðinn sigur að aðilar eins og þessi finnist það svo spennandi það sem maður er að gera að þeir taki svona stóran krók á leið sína til að hitta mig:) Baaaara stoltur af því! Reyndar lítill heimur því að hann sagði að hann hefði verið í IMD skólanum í Sviss á sínum tíma með Árna Oddi Þórðarsyn, stjórnarformanni Marel - og vissi hann allt um kaup þeira a Stork í Hollandi. Svona er þetta nú lítill heimur. Jæja ætla að fara að koma mer af stað - ætla að skella mér í bíó í kvöld svo ég geri nú eitthvað annað en vinna alla helgina.

Saturday, 23 February 2008

Sveitamannsins draumar ha ha

Ákvað að það væri kominn tími á að endurskýra matvöruverslunina hérna fyrir utan - gengur ekki lengur að vera án kaupfélags í London, þar sem ég og Þórunn töluðum alltaf um að fara út í kaupfélag. Líklega á ég nú mestu sökina í þessu máli og jú líka tölvan mín sem hjálpaði við að koma þessu skilti upp á matvöruverslunina sem ég fer alltaf í. Nú ætti Bjarni Harðar að vera ánægður. Framsókn í sókn í London. Hvernig gat annars sá ágæti maður úr Tungunum endað í framsókn - hann sem er alinn upp við tómatarækt - ekki man ég eftir að hafa séð óskemdan tómat í kaupfélaginu þegar það var og hét. Og hvílík firra er það að kalla þann flokk FRAMSÓKN - væri ekki Aftursókn - Snúum Við - Bakkgírinn - Bremsuför - Baksýnispegilinn - Vörninn - Varngerður - eða bara KAUPFÉLAGIÐ skárri nöfn. Það myndi allavega hafa meira breytingar í för með sér fyrir þennan 0% flokk en sú stefnubreyting hjá Guðna að halda úti sjónvarpsþætti hjá Ingva Hrafni á INN sjónvarpsstöðinni (klikkið á slóðina hérna á eftir til að njóta listasemdanna ha ha - eini fræðilegi möguleikinn hjá honum að ná einhverju áhorfi væri ef einhverjir unglingar myndu finnast hann "massa retro" eða "hnakki nr 1" og settu hann a "jútjúb") http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=INN&programID=6d7100d1-9b4c-45fa-b050-65b3e9823e54&mediaSourceID=64755747-8cc9-4083-8903-ed51cb035787

Friday, 22 February 2008

Rólegur dagur í dag


Lítið gerst í dag annað en að eg hitti Alessandro Galtieri lögfræðingin fra Ítaliu (sja mynd) sem keypti 2% í felaginu. Hann er lögfræðingur hjá Interoute (www.interoute.com) sem er fyrirtækið á bakvið stærsta ljósleiðaranet Evrópu. Gæjinn er nátturlega snillingur og alltaf gaman að hitta - heilmikið af góðum ráðleggingum og hugmyndum sem hann hefur komið með - en maðurinn talar samt alveg gríðarlega mikið uff! Oft erfitt að stoppa hann:) Við vorum samala um flest öll atriði og hvað þyrfti að gera - þeas við erum að fara að búa til kaupréttakerfi fyrir aðila sem geta hjalpað til - erum að fara út í stærri fjármögnun upp á ca 80 milljónir ísl kr. - ætlum að reyna að byggja upp fagráð með reynsluboltum. Síðan er að koma í ljós að fjárfestir frá Dubai í Sameinuðu Furstadæmunum er líklega að fjárfesta í kringum 1.75 milljónum króna í okkur fyrir 1% - hann gaf allavega grænt ljós í dag. Bara eftir að ganga fra pappírum. Það er gríðarmikilvægt fyrir okkur að mínu mati. En best að fagna ekki fyrr en ég se peninga í banka. Siðan er fundur í kvöld með bandaríkjamanninum Chad Smith sem segir að hann sé með tvo fjárfesta sem vilja koma með allar 80 milljonirnar í felagið, en eg trui því nú ekki fyrr en á reynir:)

Thursday, 21 February 2008


Það ótrúlega gerðist í morgun. Eg lagaði til. Þessu til sönnunar hef eg tekið ljósmynd þannig að alþjóð og aðrir áhugamenn geti séð afrekið:) Eins og Ajax stormsveipur. Hægt er að klikka a myndina til að stækka og þa er hægt að sja að eg ryksugaði líka sko sko! Gleymdi reyndar einum penna a golfinu en það ætti að sleppa.

Annað sem vakti athygli mína í dag var hversu mikið fagnaðaröskur ég fekk fra Andy í Indlandi. Hann er sá sem er verkefnastjórinn hjá okkur í Mediasoft Ltd en þeir eru að þróa hugbúnaðinn fyrir okkur. En þannig er mál með vexti að hann hefur fengið visa-kort. Það væri svo sem ekkert til að segja fra, en eg sem sagt gerði honum þann greiða að mæla með honum og hversu goður starfsmaður hann væri og allt það. Þetta bref for hann siðan með til bankastjórans og nuna 3 manuðum seinna hefur hann fengið kortið. Það virðist vera gríðarlega mikilvægt stöðutákn þar í borg að hafa svona kort - því þá ertu ekki lengur partur af fátæklingastéttinni og allir geta seð það. Ja margt skrýtið sem mar lendir í - aldrei hefði mer dottið í hug þegar eg setti upp þetta bref að það ætti eftir að skipta svona miklu máli:) en gott mál og gaman að þessu.

Wednesday, 20 February 2008

Tveir fundir í gær

Fór á tvo fundi í gær. Fyrst hitti ég auglýsingastofu (www.nitrogroup.com) sem hefur áhuga á að nota Redspray í markaðsherferð - þeim leist vel á tæknina og ætla að kynna þetta fyrir viðskiptavini sínum á næstu dögum. Seinna um daginn hitti eg svo ítalann Armando Ruffini en hann stofnaði www.zubka.com sem er fyrirtæki sem ser um atvinnumiðlun á netinu. Lagði fyrir hann þá hugmynd að Zubka gæti notað Redspray sem miðil fyrir sína þjónustu - en á farsíma þá. Honum leist mjög vel á pælinguna og við ætlum að hittast aftur og skoða þessi mál betur. Hann ætlar einnig að njósna hjá fagfjárfestinum sem kom með fjármagn í hans fyrirtæki - hvort að þeir séu búnir að fjárfesta í einhverju svipuðu og við erum að búa til. Ef ekki þá hefur hann áhuga á að kynna okkur fyrir þeim. Það er auðvitað mjög spennandi fyrir okkur því þetta er besta leiðin inn - það er að segja að samstarfsaðili þeirra kynni okkur. Gefur trúverðugleika. Fagfjárfestirinn er www.benchmark.com sem er líklega stærsti og þekktasti fjárfestirinn í þessum geira. Fjárfestu t.d. í ebay, betfair og öðrum stórum nöfnum:) Kom svo heim rétt áður en Liverpool fór að spila við Inter Milan í meistaradeildinni og horfði eg a Liverpool vinna 2-0 - ekki slæmt:)

Monday, 18 February 2008

Ein bloggfærsla á ári???



Þetta byrjaði nu ekki nógu vel. Eins og sjá má á þessari mynd þá hef eg náð að blogga einu sinni árið 2007 og svo einu sinni núna árið 2008. Þannig að nú þegar þessi færsla kemur inn erum við að tala um 100% betri árangur - nú þegar!!!!! Geri aðri betur. Er annars kominn til London og ferðinn gekk eins og í sögu. Hafði meira segja þrjú sæti undir mig og gat sofið værum hundablundi.

Sunday, 17 February 2008


Selfoss í dag. Fór að sjá Fisher í Laugardælakirkjugarði. Hálf ótrúlegt að fyrrverandi heimsmeistari í skák sé jarðaður þarna. Hérna í 2 km fjarlægð frá Selfossi þar sem foreldrar mínir búa.