Thursday, 20 November 2008

Raunir nýbakaðra foreldra

Jæja áfram heldur fjörið:) Seinasta nótt byrjaði skrautlega eins og sú þar áður - hann sem sagt fór að gráta um 11 og ég prófaði að skipta á honum - hann hafði sem sagt pissað í bleyjuna. Það tókst. Síðan þegar ég var kominn með hann upp í rúm aftur - þá fór hann að gráta aftur og ívið hærra. Heyrðu þá hafði hann kúkað í bleyjuna á leiðinni til baka, þegar ég var búinn að skipta um bleyjuna vegna pisserísins. Síðan fór að versna í því því að hann hætti bara ekkert að gráta eftir að ég var búinn að skipta um kúkableyjuna, og þá fór aðgerðaáætlun nr 3 af stað og mamman gaf honum brjóstamjólk. Heyrðu stráklingurinn helt afram. Þá fóru nú að renna tvær grímur á hina nýbökuðu foreldra - strákurinn búinn að grenja á háa C-inu í meira en hálftíma og örugglega búinn að vekja alla á hæðinni fyrir ofan. Þá voru góð ráð dýr - við prufðum að syngja einhverja vögguvísur og tókst það herfilega. Hann lækkaði aðeins gráttónin þegar Þórunn söng en hækkaði tóninn þegar ég söng og ég svo sem skil hann vel enda er ég gersamlega laglaus! Þá var prufað að vagga honum og velta í allar áttir en hann gaf sig ekki. Var að verða hás af öskri og við bara skyldum ekkert hvað var í gangi - "neyðarfundur" var í hinni nýju fjöldskyldu og nýjar tilgátur voru reifaðar. Nýjasta tilgátan var að hann vildi fá ábótamjólkina sem að hann fékk eftir að hann fékk brjóstamjólkina þegar hann var á sængurkvennadeildinni á spítalanum! Til að sannreyna þessa kenningu var hæstráðandi á heimilinu vakinn af værum blundi (sem sagt Ásthildur) og aðgerðaráætlun nr 7 hófst. Það var sem sagt til mjólkurduft sem þurfi blanda með sjóðandi vatni, láta kólna undir köldu kranavatni og ég veit ekki hvað. Eftir rúma klukkustund í heljargreipum Prinsins náðist loks að koma ábótamjólk á pela og hann var í bókstaflegri merkingu orðin hás af gráti. Sem betur fer þá tókst þessi aðgerðaáætlun og strákurinn var hinn sælasti og ég held að hann hafi drukkið tvöfaldan skammt. Eftir þetta þá voru bara allir búnir á því og hann svaf stanslaust í eina 4-5 klst samfelt - sem er nýtt met. Og vaknaði síðan ekki fyrr en um 9.30 um morgunin sæll og ánægður og skildi ekkert í þessum foreldrum og afhverju þeir skildu hann ekki kvöldið áður eins og það hefði fylgt með leiðbeiningarbæklingur.

Hann hefur síðan verið sæll og ánægður í allan dag og dundað sér við að reyna að læra að brosa. Hann er meira að segja farinn að halda haus núna aðeins 5 daga gamall - sem er mjög snemmt eins og mer skilst.

Þórunni líður aftur á móti verr en áður - og getur varla labbað núna greyið. Einhver fleiri eftirköst að ágerast. Ætlum að fara til læknis á morgun með hana.

7 comments:

Anonymous said...

jiii hvað hann er sætur...maður kannast nú við þessar andvökunætur sem og flestir foreldrar en þetta á bara eftir að batna :) gangi ykkur vel. kv.eva

Inga Lara said...

Hvad er thetta, voru thid ss ekki buin ad lesa leidbeiningarnar... kannski hafid thid laert af thessu ad hafa abotarpelan reddy from now on eda hvad??
Sammala Evu: hann er voda mikid krutt.
Vona ad laeknirinn geti gert eh fyrir Thorunni.

Unknown said...

sæl
Innilega til hamingju með litla prinsinn..Gullfallegur!!!

Fyrstu dagarnar geta sko verið erfiðir..Man alveg eftir andvökunóttum og gráti. En ég get huggað ykkur og lofað að þetta verður betra...Alveg satt!!
Þegar þið farið að þekkja hvert annað og rútína er komin á alla þá er þessi reynsla dásamleg..
Endilega að halda dagbók yfir bleyjur og drekkutíma til að þið áttið ykkur fyrr á dagskránni.


Just hang in there :)

kv.
guðrún davíðs..og Co...

Unknown said...

Eitt trix með ábótarpela
..
Ef þið hafið pela tilbúinn með parti af hreinu köldu vatni og búin að mæla duftið í skál þá þurfið þið aðeins sjóða vatn í hraðsuðukatli og bæta út í kalda þangað til það er á réttu hitastigi...ca 3 mín.. Svo hendið þið duftinu út í, hrista og voala..tilbúið!!

Einnig er hægt að setja vatn á pela og geyma pelana á ofni inn í herbergi. Ofnarnir halda vatninu á akkurt réttu hitastigi. Passa bara magnið út af uppgufun. Síðan að geyma rétt mælt magn af dufti í skál við hliðina..hrista or ready. Þurfið þá ekki að fara fram einu sinni :)

kv.
guðrún aftur.

Anonymous said...

Very good!

Anonymous said...

I think I come to the right place, because for a long time do not see such a good thing the!

Anonymous said...

See you in these things, I think, I started feeling good!
Sports Net