Sunday, 30 November 2008

Fyrsta baðið

Litli prinsinn í fyrsta baðinu sínu:) - hann var nú ekki alveg sæll og glaður með það svona í fyrstu en áttar sig örugglega fjótlega:)

Monday, 24 November 2008

Sunday, 23 November 2008

Prinsinn kominn á skrá

Fyrsta skráin um tilveru Prinsins:) Fest á rúmið hans.

Einn að farast úr monti:)

Friday, 21 November 2008

"Algjör dúlla" eins og stelpurnar segja

Í dag var stór stund því það virðist vera að prinsinn hafi sætt sig við nýja heimilið því að hann ákvað að byrja að merkja sér svæði, og byrjaði á því að pissa heljar stórri sprænu á þetta fína sófasett í stofunni:)

Thursday, 20 November 2008

Raunir nýbakaðra foreldra

Jæja áfram heldur fjörið:) Seinasta nótt byrjaði skrautlega eins og sú þar áður - hann sem sagt fór að gráta um 11 og ég prófaði að skipta á honum - hann hafði sem sagt pissað í bleyjuna. Það tókst. Síðan þegar ég var kominn með hann upp í rúm aftur - þá fór hann að gráta aftur og ívið hærra. Heyrðu þá hafði hann kúkað í bleyjuna á leiðinni til baka, þegar ég var búinn að skipta um bleyjuna vegna pisserísins. Síðan fór að versna í því því að hann hætti bara ekkert að gráta eftir að ég var búinn að skipta um kúkableyjuna, og þá fór aðgerðaáætlun nr 3 af stað og mamman gaf honum brjóstamjólk. Heyrðu stráklingurinn helt afram. Þá fóru nú að renna tvær grímur á hina nýbökuðu foreldra - strákurinn búinn að grenja á háa C-inu í meira en hálftíma og örugglega búinn að vekja alla á hæðinni fyrir ofan. Þá voru góð ráð dýr - við prufðum að syngja einhverja vögguvísur og tókst það herfilega. Hann lækkaði aðeins gráttónin þegar Þórunn söng en hækkaði tóninn þegar ég söng og ég svo sem skil hann vel enda er ég gersamlega laglaus! Þá var prufað að vagga honum og velta í allar áttir en hann gaf sig ekki. Var að verða hás af öskri og við bara skyldum ekkert hvað var í gangi - "neyðarfundur" var í hinni nýju fjöldskyldu og nýjar tilgátur voru reifaðar. Nýjasta tilgátan var að hann vildi fá ábótamjólkina sem að hann fékk eftir að hann fékk brjóstamjólkina þegar hann var á sængurkvennadeildinni á spítalanum! Til að sannreyna þessa kenningu var hæstráðandi á heimilinu vakinn af værum blundi (sem sagt Ásthildur) og aðgerðaráætlun nr 7 hófst. Það var sem sagt til mjólkurduft sem þurfi blanda með sjóðandi vatni, láta kólna undir köldu kranavatni og ég veit ekki hvað. Eftir rúma klukkustund í heljargreipum Prinsins náðist loks að koma ábótamjólk á pela og hann var í bókstaflegri merkingu orðin hás af gráti. Sem betur fer þá tókst þessi aðgerðaáætlun og strákurinn var hinn sælasti og ég held að hann hafi drukkið tvöfaldan skammt. Eftir þetta þá voru bara allir búnir á því og hann svaf stanslaust í eina 4-5 klst samfelt - sem er nýtt met. Og vaknaði síðan ekki fyrr en um 9.30 um morgunin sæll og ánægður og skildi ekkert í þessum foreldrum og afhverju þeir skildu hann ekki kvöldið áður eins og það hefði fylgt með leiðbeiningarbæklingur.

Hann hefur síðan verið sæll og ánægður í allan dag og dundað sér við að reyna að læra að brosa. Hann er meira að segja farinn að halda haus núna aðeins 5 daga gamall - sem er mjög snemmt eins og mer skilst.

Þórunni líður aftur á móti verr en áður - og getur varla labbað núna greyið. Einhver fleiri eftirköst að ágerast. Ætlum að fara til læknis á morgun með hana.

Wednesday, 19 November 2008

Upp með hendur segir Prinsinn

Þá er prinsinn kominn heim til sín í fyrsta skiptið:) Ég svaf á spítalanum í nótt því að Þórunn var orðin svo þreytt eftir andvökunóttina þar á undan. Þetta hófst með látum því að hann vaknaði eftir aðeins 1 klst og heimtaði allan pakkann, mjólk úr brjóst, mjólk sem ábót úr pela, skipta um bleyju og endalaust knús aður en hann samþykkti að fara að sofa aftur:) - og mér var hætt að lítast á blikuna og bjóst við að vera vakinn með 1 klst fresti allan nóttina og næstu vikur! - en svo svaf hann barasta í 3 klst og þá var skipt um allt í snatri og hann svo svaf til 7.15 - þannig ég get nú ekki sagt að þetta hafi verið eins rosalegt eins og upphafið gaf í skyn:) Síðan fórum við heim um hádegi eftir að læknar voru búnir að skoða, pota, stinga fram og til baka. Hann kunni strax vel við sig hér og hefur verið gersamlega sallarólegur síðan hann kom. Hefur varla grátið nema rétt þegar hann var orðinn svangur. Hann sá sjálfan sig í spegli og fannst það voðalega skrýtið - allaveg kom stór undrunarsvipur á hann he he. Þórunn er enn voðalega slöpp, því að hun missti svo mikið blóð - um 1.5 lítra - og neitar að fá blóðgjöf frá læknum. Svo sem skil það - þannig að hún er enn bara að jafna sig og sefur mikið. Hún reynir að borða mikið járn því að það á að flýta fyrir blóðframleiðslu.

Monday, 17 November 2008

Prinsinn að braggast:)

Prinsinn er allur að braggast og byrjaður að fá sér að drekka móðurmjólkina af meiri lyst. Hann var víst eitthvað dregur til þess fyrst enda fékk hann þessa "gulu" sem svo margir nýburar fá. Gulan kemur víst vegna þess að notkun rauðu blóðkornana er á einhvern annan hátt í kviður móður og svo ræður óþroskuð lifrin ekki við breytingarnar fyrstu dagana. En núna er þetta líklega allt yfirstaðið og þá fær hann meiri lyst. Hann var strax byrjaður að heilla allt kvennfólkið þarna á ganginum og allir að knúsa og pota í hann:) Hann kærði sig kollóttan um þetta allt og hélt þvílíku jafnaðargeði allan daginn að það hálfa væri nóg. Grét ekki nema algjör nauðsyn væri - svona rett til að minna foreldrana á að hann þarf að borða vegna þess að hann er ekki alveg tilbúinn að halda á hnífi og gafli á degi 2 !